Morgunblaðið - 29.08.2008, Síða 17
Morgunblaðið |17
Höfuðbeina- og spjald-hryggjarmeðferð ersmám saman að verðaþekktari á Íslandi.
„Þessi meðferð var fyrst notuð í
Ameríku. Frumkvöðullinn var dr.
Upledger, læknir og lífefnafræð-
ingur, og hann þróaði höfuðbeina-
og spjaldhryggjarmeðferð út frá
skekkjulækningum,“ segir Erla
Ólafsdóttir sjúkraþjálfari sem
ásamt manni sínum Birgi Hilm-
arssyni rekur meðferðarstofu í
þessum fræðum.
En er þetta mikið notað hér á
landi nú?
„Já, þetta er mikið notað og al-
menningur hefur tekið þessu með-
ferðarformi vel. Fólk kemur oft í
svona meðferð þegar það er búið að
reyna allt annað og undantekning-
arlaust fær það einhverja bót.“
En við hverju gagnast þessi með-
ferð?
„Við erum ekki að meðhöndla
einkenni heldur orsök, það er því
víðtækt sem við vinnum með, allt
frá ungbörnum með vandamál eftir
fæðingu til fullorðinna með þung-
lyndisvandamál, verkjavanda og
fleira.“
Hvers vegna virkar þetta á þung-
lyndi?
„Þegar við lendum í áföllum og
mótbyr í lífinu bælum við oft til-
finningar og þar af leiðandi er flæði
í líkamanum ekki eins gott. Það
koma stíflur og tilfinningalegar
bælingar. Við notum sálvefrænar
losanir þar sem við losum stífluna
og tilfinninguna úr vefnum ásamt
því að beita samtalstækni og styðja
manneskjuna tilfinningalega.“
Gagnast þetta við gigt?
„Já, þetta er mjög gott meðferð-
arform fyrir gigt vegna þess að við
aukum með meðferðinni blóðflæði
og næringarfræði og þar af leiðandi
smurningu á liðamót án þess að
auka álag á manneskjuna. Hún
liggur bara afslöppuð. Liðagigt er
oft afleiðing af áföllum þannig að
við skoðum þá líka undirliggjandi
orsök með sálrænni vinnu.
Þess má geta að við rekum auk
meðferðarinnar skóla í höfuðbeina-
og spjaldhryggjarmeðferð og auk
þess bjóðum við upp á meðferð-
arprógrömm þar sem viðskiptavin-
urinn kemur og fær meðhöndlun
allan daginn í fimm daga. Á hverj-
um tíma eru tveir til þrír aðilar að
meðhöndla viðkomandi á hverjum
tíma. Aðalmeðferðarformið er höf-
uðbeina- og spjaldhryggjarmeðferð
og sálvefræn vinna, auk þess er
boðið upp á nálastungur, nudd,
hnykkingu og önnur óhefðbundin
meðferðarform sem eru enn lítt
þekkt hér á landi þar sem unnið er
með innri líffæri og aukið er jafn-
vægi í orkuflæði manneskjunnar.
Þessi prógrömm fara fram í Bláa
lóninu, bæði á bekk og í vatni.“
Víðtæk meðferðarform
Morgunblaðið/Frikki
Sjúkraþjálfari Erla Ólafsdóttir hefur starfað hjá Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins,
ásamt því að hafa lært þroskaþjálfun.
Morgunblaðið/Frikki
Nærfærni Í höfuðbeina- og spjaldhryggjarmeðferð er
fyrst og fremst unnið með himnukerfi líkamans.
Kartöflur geyma
vissa
menningarsögu
sem Hildur
Hákonardóttir re
kur af sinni
alkunnu frásagn
argleði. Fróðleg
og
stórskemmtileg
lesning.
Garðyrkja, hollusta,
uppskriftir – allt þetta
og meira til er að finna í
hinum sívinsæla Ætigarði. Hér kallast á girnilegar
uppskriftir og skemmtilegar
lýsingar á héruðum
Frakklands. Fallegar myndir,
fróðleikur og skemmtun.
Djúsbókin vinsæla
með ljúffengum,
áhrifaríkum og
hressandi drykkjum
sem byggja upp
vöðva, hreinsa út
eiturefni og vekja
vellíðan.
Hollu bækurnar eru
tilvaldar fyrir fólk sem vill
hyggja að heilsunni og
matbúa einfalda, ódýra
og spennandi rétti.
HEILSA ... já takk
www.salkaforlag.is
NÝKOMIN
Í BÚÐ I R