Morgunblaðið - 29.08.2008, Síða 24
H10 er að bjóða upp ánýtt námskeið meðnýjum áherslum semer fyrir þá sem vilja
komast í betra form, bæta heils-
una og fyrirbyggja sjúkdóma,“
segir Anna Borg sjúkraþjálfari.
„Heilsulausnir heitir nýja nám-
skeiðið og byggist á mati og ráð-
gjöf mismunandi fagaðila ásamt
markvissri þjálfun og skýrum
markmiðum. Um er að ræða
fjögra mánaða námskeið, ein-
staklingsmiðað með miklum stuðn-
ingi og eftirfylgni.“
Í hverju felst stuðningurinn og
eftirfylgnin?
„Hjúkrunarfræðingur gerir
heilsufarsmælingar í upphafi og
lok tímabils. Sjúkraþjálfari metur
líkamsstöðu og líkamsbeitingu og
fer yfir meiðslasögu.
Næringarfræðingur gefur svo
ráð um næringu og fæðuval.“
Hvað um þjálfun?
„Fólk á val um ýmsar þjálf-
unarleiðir, svo sem hópþjálfun en
þá fer fram þjálfun þrisvar í viku
undir leiðsögn þjálfara
Í öðru lagi er boðið upp á svo-
kallað lyklakerfi, þ.e. viðtal við
þjálfara einu sinni í mánuði sem
gerir þjálfunaráætlun inn á lykla-
kerfi sem er sérhannað tölvutengt
þjálfunarkerfi og loks einkaþjálfun
sem veitir mjög mikið aðhald.
Golflausnir og Sportlausnir
Eru þið með eitthvað alveg nýtt
núna í þjálfun?
„Já, í H10 er nú nýtt námskeið í
boði fyrir þá sem vilja hámarka
árangur sinn í golfinu, komast í
betra form og bæta heilsuna. Golf-
lausnir eru einstaklingsmiðað
námskeið sérsniðið að golfíþrótt-
inni sem jafnframt miðar að því að
fyrirbyggja meiðsl og sjúkdóma.
Námskeiðið byggist á mati og ráð-
gjöf mismunandi fagaðila ásamt
markvissri þjálfun og skýrum
markmiðum. Eins og á fyrrnefndu
námskeiði koma til sögunnar
hjúkrunarfræðingur, sjúkraþjálf-
ari,
næringarfræðingur og sálfræð-
ingur með alla sína þekkingu og
þjónustu. En að auki bjóða
golfkennarar upp á golfkennslu
ásamt mati á golfsveiflu og ráð-
gjöf.
Þá má nefna námskeið sem við
nefnum Sportlausnir. Það felur í
sér leiðir til að bæta árangur í
sportinu og hámarka getu fyrir
einstaklinga, íþróttalið og íþrótta-
hópa. Samhæft mat og ráðgjöf
sérfræðiteymis er hér allt á einum
stað. Fjölbreyttar lausnir sem
gefa kost á mismunandi þjónustu
eftir því sem hentar hverju sinni
og hverjum og einum.
Ef upp koma heilsufarsvanda-
mál á námskeiðunum vísum við á
lækni til að takast á við þau.“
Í tækjasal Anna Borg sjúkraþjálfari.
Lyft lóðum Úr Sportlausnum
Heilsulausnir Ráðgjöf og markviss þjálfun.
Á þrengingatímum er ágætt að byggja sig sem allra best upp. Það má
gera með ýmsu móti. Anna Borg segir hér frá því sem H10 hefur komið
sér niður á að sé heppilegt hvað heilsulausnir snertir.
Lyklakerfið Sérhannað æfingakerfi
Heppilegar heilsulausnir
24|Morgunblaðið
fyrir fullorðna,
16 ára og eldri
Losaðu um hömlur, breyttu til
og leiktu þér.
Námskeiðið hefst miðvikudaginn
17. september kl. 20.00
í Bolholti 4, 105 Rvk, 4. hæð.
Reyndir leikarar og leiklistakennarar
kenna. Sérstök aðstoð fyrir þá sem
eru að sækja um leiklistarskóla.
Byrjenda- og framhaldsnámskeið,
2 klst. á viku í 5 vikur, 19.500 kr.
Leiklistarnámskeið
Nánari upplýsingar og skráning í síma 845 8858
og á iceolof@hotmail.com
Á Hilton Nordica í Reykja-vík er að hætti erlendrastórhótela starfandiheilsurækt sem ber nafn-
ið Nordica Spa.
„Heilsuræktin er þó ótengd hót-
elrekstrinum sjálfum en auðvitað
fáum við oft hótelgesti hingað,
einkum sækja þeir í nudd, heita
potta og gufuklefa til að ná slökun
eftir ferðalög,“ segir Gunnar Már
Sigfússon sem verið hefur þjálfari
í heilsurækt í 17 ár og er nú yf-
irþjálfari hjá Nordica Spa.
„Hjá okkur er lögð höfuðáhersla
á gæði og persónulega þjónustu.
Við viljum gera vel við alla okkar
viðskiptavini og tryggja að þeim
líði vel og hver og einn fái per-
sónulega þjónustu og ráðgjöf við
hæfi,“ segir Gunnar.
„Við veitum viðskiptavinum okk-
ar aðhald og sjáum um að þeir fái
leiðsögn hjá þjálfara í tækjasaln-
um í hvert skipti sem komið er í
heilsuræktina. Þjálfararnir að-
stoða viðskiptavini við æfingar –
stilla tæki og leiðbeina samkvæmt
æfingaáætlun hvers og eins og að-
stoða einnig við teygjur ef óskað
er eftir því.“
Eruð þið með einkaþjálfun?
„Þjónustu okkar má kalla einka-
þjálfun. Allir þjálfarar Nordica
Spa eru með reynslu og þekkingu
á sínu svið og þeir sérsníða æfing-
ar og mataráætlun fyrir hvern og
einn. Allir fá þjálfara og aðhald í
hverjum æfingatíma, það er okkar
sérstaða.
Í upphafi eru viðskiptavinir Nor-
dica Spa heilsufarsmældir, þjálf-
arinn fer yfir stöðumat og setur
upp æfingakerfi fyrir viðkomandi.
Á fjögurra til átta vikna fresti er
æfingaáætlunin endurskoðuð og
viðskiptavinum gefst kostur á
reglulegum mælingum þess á milli
til að fylgjast með árangrinum.
Við bjóðum einnig fjögurra
vikna námskeið. Þar æfir fólk und-
ir leiðsögn fimm sinnum í viku og
þarna er mikil áhersla lögð á gott
mataræði og fjölbreytni í æfingum.
Þetta er gott fyrir þá sem eru í
átaki og vilja gera aðeins meira en
hinir um tíma.
Við leggjum satt að segja mjög
mikla áherslu á einstaklinginn og
réttan fróðleik um mataræði og
hreyfingu.“
Þess má geta að hjá Nordica
Spa er góð nuddaðstaða í rúmgóð-
um herbergjum og hægt að velja
nuddtegund – klassískt nudd,
svæðanudd, ilmolíunudd, leir-
meðferð með íslenskum hveraleir
og steinanudd svo eitthvað sé
nefnt.
Yfirþjálfari Gunnar Már Sigfússon
Nudd Á Nordica Spa er lögð höfuð áhersla á gæði og persónulega þjónustu
í björtu og fallegu umhverfi.
Persónuleg
þjónusta