Morgunblaðið - 29.08.2008, Page 36
36|Morgunblaðið
Boot Camp er alhliða lík-amsrækt þar sem fjöl-breyttar, krefjandi enjafnframt skemmtilegar
æfingar ráða ríkjum,“ segir Arn-
aldur Birgir Konráðsson, fram-
kvæmdastjóri og annar stofnandi
Boot Camp.
„Námskeiðin hjá okkur sækja allir
þeir sem vilja komast í gott form
óháð því hver grunnur einstaklings-
ins er. Til okkar kemur öll flóra fólks
með mismunandi óskir og þarfir. Við
fáum til okkar afreksíþróttamenn,
lögreglumenn, skólakrakka, banka-
starfsmenn og allt þar á milli.
Kynjahlutfallið er aðeins konum í vil
og er aldurshópurinn 18-39 þótt til
okkar hafi komið mun eldri ein-
staklingar og náð frábærum ár-
angri.“ Boot Camp-námskeiðin eru í
grunninn sex vikur að sögn Arn-
aldar Birgis og fer hver og einn í
gegnum
nýliðaviku þar sem viðkomandi
fær að undirbúa sig fyrir komandi
átök.
Reglulegar ástandsmælingar
„Margir stunda Boot Camp reglu-
bundið allt árið og leggjum við ríka
áherslu á að hver og einn nái sínum
markmiðum. Farið er í reglulegar
ástandsmælingar og eru það jafnt
verklegar æfingar sem og þyngdar-
og ummálsmælingar,“ segir Arn-
aldur Birgir ennfremur.
„Viðskiptavinir okkar hafa tök á
að skila inn matardagbók og aðhald-
ið er því fyrir hendi. Ef fólk vill ná
árangri þá bjóðum við alla þá þjón-
ustu sem til þarf.
Það hefur líka verið raunin að Bo-
ot Camp-iðkendur hafa verið dug-
legir að taka þátt í ýmsum keppnum
hvort sem er sér til ánægju eða með
verðlaunasæti í huga.
Stundað utan- sem innandyra
Boot Camp er stundað jafnt utan-
sem innandyra óháð því hvernig
viðrar. Við bjóðum einnig upp á Boot
Camp Outsiders þar sem æfingar
fara eingöngu fram utandyra allt ár-
ið enda eru margir sem vilja æfa úti í
náttúrunni við mismunandi að-
stæður hverju sinni og fylla lungun
af tæru lofti. Einnig bjóðum við upp
á grænjaxlanámskeið þar sem æf-
ingahraðinn er töluvert minni en á
hinum hefðbundnu námskeiðum Bo-
ot Camp. Unglinganámskeiðin okk-
ar
eru einnig mjög vinsæl og við
fáum marga krakka til okkar sem
vilja hreyfa sig en vilja ekki vera
undir mikilli pressu varðandi keppn-
isþátttöku o.s.frv.
Ekkert þarf nema æfingagalla
Í Boot Camp notum við mikið þær
grunn- og undirstöðuæfingar sem
margir þekkja í bland við fjöl-
breyttar og nýjar æfingar sem við
höfum mótað og sótt okkur þekk-
ingu að utan. Hjá okkur eru um
1.000 iðkendur og eru íþróttafélög
og fyrirtæki stór hluti af við-
skiptavinum okkar.
Til að stunda Boot Camp þarftu
ekkert nema æfingagallann og því er
hægt að stunda æfingarnar hvar og
hvenær sem er. Boot Camp er jafn-
vinsælt á sumrin og veturna.
Boot Camp er með námskeið um
allt land, á Akranesi, Keflavík, Ak-
ureyri, Reyðarfirði, Selfossi – og svo
höfuðstöðvarnar í Reykjavík.
Allir kennarar okkar hafa sótt
þjálfaranámskeið Boot Camp og því
má finna sömu aðferðafræði á öllum
stöðunum.
Haustnámskeiðin hefjast um allt
land 8. september nk.
Allar upplýsingar má finna á
www.bootcamp.is.“
Óháð veðri Boot Camp er stundað jafnt utan sem innandyra óháð því hvernig viðrar.
Einfalt Til að stunda Boot Camp þarftu ekkert nema æfingagallann
Alhliða
líkamsrækt
Framkvæmdastjóri Arnaldur Birg-
ir Konráðsson, framkvæmdastjóri
og annar stofnenda Boot Camp.
Fitnesskort
w w w . b a d h u s i d . i s
Tilboð. 19.990.-
Kort gildir til 31.12.08.
Fitnesskort er tilboðskort sem veitir aðgang að öllum opnum tímum
í stundaskrá, tækjasal, heitri laug, vatnsgufu og hvíldarhreiðri.
Þú getur mætt eins oft og þú vilt til 31.12.2008.
Sj
á
st
un
da
sk
rá
r á
w
w
w.
ba
dh
us
id
.is
og
w
w
w.
th
re
kh
us
id
.is
www.th rekhus id . i s
Stundum er talað að „dansagegnum lífið“. Ef það áað verða mögulegt er lík-lega rétt að taka dans-
tíma, alltént í öryggisskyni og
byrja að læra sem allra fyrst.
Dansskóli Ragnars er að sögn
Ragnars Sverrissonar eini dans-
skólinn á landinu sem er með
námskeið fyrir 2–3 ára börn þar
sem foreldrarnir dansa með í tím-
unum við börnin sín.
„Það eflir samskipti foreldra og
barna og einnig er þetta eins kon-
ar líkamsrækt fyrir foreldrana í
leiðinni,“ segir Ragnar.
Hann kveður skólann vera með
afreksdanspar við nám í skól-
anum, Hilmar Stein Gunnarsson
og Elísabetu Halldórsdóttur.
„Það par fór fyrir Íslands hönd
á tvö heimsmeistaramót í mars og
maí og gekk mjög vel, lenti í 27.
sæti í heiminum öllum.“
Greinilega mikill árangur og
vekur væntanlega glæstar vonir í
litlum sálum sem seinna verða
kannski í stakk búnar til að fara
út í heim og vinna þar glæsta
sigra.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Kennari Þarna er Ragnar Sverrisson að segja til nemendum sínum.
Dansað
gegnum lífið