Morgunblaðið - 17.09.2008, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 17.09.2008, Blaðsíða 18
Eftir Þuríði Magnúsínu Björnsdóttur thuridur@mbl.is Við tökum þettamjög alvarlega,“segir GunnarSturla Hervars- son kennari um uppsetningu söngleiksins Vítahringur hjá leikfélagi í grunnskólanum Grundaskóla á Akranesi. „Við sýnum í Bíóhöllinni hérna ein- faldlega vegna þess að sal- urinn okkar er ekki nógu stór. Uppsetningarnar hing- að til hafa verið 10–15 og gestirnir um 2.000.“ Hann segir því miður færri komast að en vilja til að taka þátt. Hvorki fleiri né færri en 100 krakkar sóttu um en eftir leikprufur hrepptu um 40 hnossið sem leikarar og dans- arar. „Að vísu vilja ekki allir stóru hlutverkin en það er alltaf eitthvert svekkelsi,“ viðurkennir Gunnar er hann er spurður hvort sátt hafi verið um hlutverkaskipan sem fór fram morguninn sem blaðamaður hafði samband. Þrír kennarar semja lög og texta Gunnar er einn þriggja kennara sem hafa verið potturinn og pannan í feikivinsælum leiksýningum á vegum nemendafélags skólans, hinir eru Einar Viðarsson og Flosi Einarsson. Sem fyrr hafa þeir skrifað handrit og samið lög og texta en þeir hafa allir fengist við tónlist, t.d. með „hljóm- sveitarbrölti“. Verkið í þetta sinn er byggt á sögu Kristínar Steinsdóttur, Vítahrings. Hún byggði sögu sína á Íslendingasögunni Harðar sögu Grímkelssonar sem gerist að miklum hluta í nágrenni Akraness, í Hvalfirði og líka í Skorradal svo dæmi séu tek- in. Kristín hefur verið til aðstoðar við undirbúninginn og sýnt þessu mikinn áhuga að sögn skipuleggjenda. Nokkur fjöldi nemenda, utan hinna 40 á leiksviðinu, sér um allt sem teng- ist sýningunni, t.d. ljós, hljóð, förðun og hárgreiðslu. „Margir eru líka spenntir fyrir því og hentar þeim mjög vel,“ upplýsir Gunnar. Allir söngleikirnir hafa fjallað um krakka og því tekið mið af því sem getur hent nemendurna og pælingar þeirra. „Við viljum að krakkarnir í skólanum njóti söngleiksins og geti skilið söguna. Við erum að vísu á al- varlegri nótum núna en við reynum að hafa þetta eins létt og hægt er. Sagan hennar Kristínar er saga af krökkum sem lifa í skugganum af átökum fornmanna,“ segir Gunnar. Söngleikjapersónurnar séu ekki í hringiðu hörmunga „en það vofir allt- af yfir“. Þátttakan hefur jákvæð áhrif á skólagönguna Það sem stundaskráin býður upp á er auðvitað nægt verkefni og því leik- ur blaðamanni forvitni á að vita hvað fái fólk til að leggja svona mikla auka- vinnu á sig. „Við höfum náttúrlega geysilega gaman af þessu. Skólinn hefur alltaf lagt mikla áherslu á list- og verkgreinakennslu. Áður en við byrjuðum á þessu lögðum við mikið upp úr því að krakkarnir kæmu fram á sviði, t.d. í styttri leikritum. Við Einar og Flosi vorum einnig farnir að semja lög fyrir ýmis tilefni og langaði bara að prófa á sínum tíma hvort við gætum gert söngleik í fullri lengd og kanna hvort þau hefðu ekki jafn- gaman af þessu og við. Það hefur margfalt skilað sér. Maður heyrir það á öllum sem hafa tekið þátt að þetta er hápunkturinn,“ segir Gunnar og bendir á að við könnun á því hvernig söngleikjaþátttakendurnir, sem oft eru tíundubekkingar, hafi staðið sig í náminu hafi enginn munur fundist á einkunnum nema þá til bóta. „Sumir krakkar eru mjög listhneigðir og vaxa mjög í svona skapandi verk- efnum og við höfum margoft séð að það hafi jákvæð áhrif á skólagönguna almennt, að menn fái að njóta sín þar sem þeir eru sterkastir.“ Síðast en ekki síst gefur leikfélagið út geisladisk í tilefni söngleikjanna og það þykir mikið sport hjá krökk- unum. Hvalfjarðarsöngleikur í Skagabíói Akranes | Glæsilegir söngleikir á vegum Grunda- skóla á Skaganum hafa vakið verðskuldaða athygli og hefur þurft allt að fimmtán sýningar til að mæta aðsókninni – og það í stórum bíósal. Sönggleði Nemendur á æfingu. Í efri röð (f.v.): Margrét Saga Gunnarsdóttir, Stefanía Sól Sveinbjörnsdóttir og Elísa Svala Elvarsdóttir. Í neðri röð eru Steinunn Traustadóttir, Inga Lára Guðmundsdóttir og Unnur Ýr Haraldsdóttir. Af innlifun Guðmundur Sverrisson (t.v.) og Daníel Magnússon taka á því. Metnaður F.v. Gunnar Sturla Hervarsson, Einar Viðarsson og Flosi Ein- arsson, kennarar í Grundaskóla, hafa eflt félagslíf skólans svo um munar. unglingar 18 MIÐVIKUDAGUR 17. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ Stórir söngleikir hafa verið settir upp á þriggja ára fresti í Grunda- skóla en að sögn Gunnars Sturlu Hervarssonar kennara yrði það of stórt verkefni á hverju ári. Fyrir tveimur árum tók skólinn þátt í samevrópsku verkefni þar sem saga var skrifuð í samvinnu og verkið sýnt í hverju landi fyrir sig. Krakkarnir eru að hefja æfingar á Vítahring á fullu en þær fara nú fram utan skólatíma. Æft verður hvern virkan dag fram að frumsýn- ingunni sem verður á Vökudögum í byrjun nóvember. Jafnframt verður gefinn út geisladiskur með 12 nýjum lögum úr söngleiknum. Æft fram að Vökudögum Heimsferðir bjóða nú frábært tækifæri til að heimsækja hið heillandi Toscana hérað, sem er án ef ein af fallegustu borgum heims. Fergurð Toscanahéraðsins er einstök og í héraðinu eru nokkrar af helstu borgarperlum Ítalíu, s.s. Flórens, Siena, Lucca og svo mætti lengi telja. Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Toscana *** Aðeins örfá sæti í boði *** Verð kr. 29.990 Netverð á mann. Flugsæti báðar leiðir, útflug til Pisa 28. sept. og heimflug frá Róm 3. okt. (aðfararnótt 4. okt.). Munið Mastercard ferðaávísunina Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara. frá kr. 29.990 28. sept. - 3. okt Við bjóðum flugsæti til Pisa 28. sept. og heimflug frá Róm 3. okt. (aðfararnótt 4. okt.) Gríptu þetta frábæra tækifæri og leggðu Toscana að fótum þér á yndislegum tíma í haust. JÓGAÁSTUNDUN getur dregið úr hita- köstum og svefntruflunum hjá konum sem ganga í gegnum tíðahvörfin og skerpir andlegt atgervi þeirra, samvkæmt ind- verskri rannsókn sem fréttastofa Reuters greindi frá. Rannsakendurnir völdu af handahófi 120 konur á aldrinum 40-55 ára, sem komnar voru á breytingaskeiðið, og fengu þær til að ýmist stunda jóga eða einfaldar teygju- og styrktaræfingar fimm sinnum í viku yfir tveggja mánaða tímabil. Var til- gangurinn með rannsókninni að kanna hvort jóga gæti hjálpað konum að sigrast á líkamlegum sem og andlegum einkenn- um tíðahvarfanna. Jógastöðunum, önduninni og hugleiðsl- unni var öllum ætlað að gera þátttak- endum kleift að ná „stjórn á breytingum hugans“ í gegnum það að „hægja á hugs- anaferli hugans“, hefur Reuters eftir rannsakendunum. Þeir þátttak- endur sem voru í jógahópnum hlýddu einnig á fyrirlestra um hvernig nota mætti jóga til að sigr- ast á streitu og um önnur jógatengd efni, á meðan konurnar í samanburðarhóp- inum hlýddu á fyrirlestra um mataræði, hreyfingu, streitu og lífeðlisfræði tíðahvarfanna. Að tveimur mánuðum liðn- um hafði dregið umtalsvert úr hitaköstum, nætursvita og svefn- truflunum hjá þeim sem lagt höfðu stund á jóga á meðan engar slíkar breytingar höfðu átt sér stað hjá samanburðar- hópnum. Hjá báðum hópunum hafði and- legt atgervi og athyglisgáfa hins vegar skerpst, þótt aukningin væri meiri hjá jógahópnum. Jóga gegn tíðahvörfum Vinsælt Sól- veig Rún Sam- úelsdóttir var valin úr 100 manna hópi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.