Morgunblaðið - 17.09.2008, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. SEPTEMBER 2008 31
Kær frænka mín er skyndilega
horfin á braut og jarðvist hennar er
lokið alltof fljótt. Þegar ég var lítill
strákur bjó Eyja á heimili foreldra
minna með litlu stelpuna sína hjá
sér, hana Ellu. Eyja passaði mig
þegar ég var lítill prakkari og tókst,
að mér skilst, nokkuð vel að hafa
hemil á mér. Það var aðeins vika á
milli afmælisdaga okkar, ég fæddist
viku fyrir afmæli Eyju en hún vildi
nú að það hefði verið viku síðar.
Flesta afmælisdaga mína hringdi
Eyja eða kíkti við. Ég man alltaf
eftir því þegar Benni kom á jepp-
anum í Vanabyggðina og sótti þær
mæðgur því nú átti að flytja í þorp-
ið, fannst mér vont að þær væru að
fara og stóð úti á götu og beið eftir
að Eyja hætti við og kæmi til baka.
En þær fluttu í Skarðshlíðina þar
sem Eyja tók við húsmóðurhlut-
verkinu af miklum myndarskap.
Barnahópurinn var stór þar sem
börnin hans Benna voru þrjú. Var
Eyja fljót að líta á þau sem sín eigin
og hefur alltaf reynst þeim sem
besta móðir. Síðar bættist Anna
dóttir þeirra Benna við. Eftir að ég
flutti í Skarðshlíðina til ömmu og
afa þá var stutt á milli okkar og hitt-
umst við nær daglega í nokkuð
mörg ár. Oft þegar við Sveini og
strákarnir vorum að leika okkur á
vellinum fyrir neðan húsið þeirra þá
kallaði Eyja til að athuga hvort að
við þyrftum ekki smáhressingu eða
bað okkur að hlaupa í búðina fyrir
sig og fengum við alltaf smá nammi
að launum. Eyja var barngóð og um
tíma passaði hún annarra manna
börn sem hændust mjög að henni,
passaði m.a. Jenna, son minn, þegar
hann var pínulítill og sl. vor þegar
Jenni varð þrítugur sendi Eyja hon-
um lítinn pakka bara til að minna á
að henni fyndist hún nú eiga smá í
honum. Síðast hitti ég frænku mína
í júní sl. þegar við vorum í sum-
arbústað á Illugastöðum, þá skelltu
þau hjónin sér í bíltúr bara rétt til
að líta á fjölskylduna og þótti okkur
mjög vænt um það.
Kæru vinir, Benni, Sibbi, Sveini,
Hildur, Ella, Anna og fjölskyldur.
Söknuðurinn er alltaf sár en þið eig-
ið margar góðar minningar um góða
konu sem mun veita ykkur styrk í
sorginni. Elsku amma mín, við
huggum okkur við það að Eyja er
nú kominn til pabba síns og þar hafa
orðið fagnaðarfundir.
Ég og fjölskylda mín þökkum
Eyju innilega fyrir samfylgdina og
sendum samúðarkveðjur til fjöl-
skyldunnar. Guð blessi minningu
Þóreyjar Ólafsdóttur.
Ólafur Jensson.
Elsku Eyja okkar.
Það er enginn tilbúinn að fara frá
ástvinum sínum og sérstaklega ekki
þú, Eyja mín, því þú áttir svo margt
eftir að gera, það veit ég.
Við börnin mín kynntumst þér og
Benna árið 2005 undir erfiðum
kringumstæðum en það jafnaði sig.
Þið Benni tókuð á móti mér og mín-
um börnum eins og ekkert væri,
sem mér finnst oft einkennilegt en
þannig varstu, tókst alltaf öllum
opnum örmum.
Það geislaði alltaf af þér vinátta
og notalegheit, þótt þú værir þreytt
eftir langan vinnudag.
Við börnin mín vorum alltaf vel-
komin á heimili ykkar Benna og
mér fannst svo gott að tala við þig,
því mér fannst þú skilja mig betur
en nokkur annar og held ég að þú
vitir hvað ég meina.
Takk fyrir allt, elsku Eyja okkar,
að við fengum að kynnast þér, þú
varst svo yndisleg manneskja. Von-
andi ertu komin á fallegan stað þar
sem allt er svo gott.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(Valdimar Briem.)
Við vottum Benna og öðrum að-
standendum okkar innilegustu sam-
úð.
Kærar kveðjur,
Jóhanna Arna,
Skúli Guðbjörn, Björgvin Már
og Sigríður Lára.
✝ Magnús Aðal-steinn Aðal-
steinsson fæddist í
Reykjavík 26.
október 1924.
Hann lést á líkn-
ardeildinni á
Landakoti að
morgni laugar-
dagsins 6. sept-
ember síðastliðins.
Foreldrar hans
voru: Kristín
Sigurrós Magnús-
dóttir, síðar Eng-
elke, f. 19.8. 1901,
d. 1984, og Aðalsteinn Péturs-
son Ólafsson, f. 19.9. 1899, d.
1980. Systir Magnúsar sam-
mæðra er Aase Samuelsson, f. í
Danmörku 1933, fyrri maður
hennar var Svend Samuelsson
látinn, börn þeirra eru Heidi og
Kim. Maður Aase er Jörgen
Dyrlund Hansen. Systkini sam-
feðra eru Bolli, Heba, Sjöfn,
Sif, Hera, Pétur.
Fyrri kona Magnúsar var
Fjóla Bjarnadóttir. Börn þeirra
eru Einar Hafsteinn, f. 1943,
kvæntur Þor-
björgu Gríms-
dóttur, f. 1942,
þau eiga fjögur
börn, Guðrún Ása,
f. 1944, hún á
fimm börn, og
Kristinn Magnús,
f. 1946.
Seinni kona
Magnúsar er
Beatrice Aðal-
steinsson, áður
Gallagher, f. í
Londonderry á Ír-
landi 5. mars 1934.
Magnús var að mestu alinn
upp á Framnesvegi 14 í
Reykjavík hjá móðurafa sínum,
móðursystur, Margréti, og
manni hennar, Gunnari Bjarna-
syni.
Á yngri árum var hann á sjó
en í 40 ár vann hann hjá
bandaríska sendiráðinu í
Reykjavík.
Magnúsi verður sungin sálu-
messa í Kristskirkju í Landa-
koti í dag og hefst hún klukkan
13.
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt.
Þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfinn úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð.
Þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir.)
Elsku Maggi, minn elskulegi
stóri bróðir.
Nú ert þú farinn en þrátt fyrir
það munt þú eins og ætíð áður
eiga stað í hjarta mínu.
Þótt mikil vegalengd skildi okk-
ur að öll árin, þar sem þú og fjöl-
skyldan voruð á Íslandi og ég
sunnar, í Danmörku, þá hafa kær-
leiksböndin sem bundu okkur sam-
an verið sterk.
Ég er svo glöð í hjarta mínu að
hafa átt möguleika á að hitta þig á
Íslandi sl. júní, þá vorum við svo
heppin að fá nokkra yndislega
daga saman.
Við munum heiðra minningu
þína.
Samúð mín og hugsanir eru hjá
Beatrice og fjölskyldunni.
Ása, Jörgen, Kim og Heidi.
Drottinn er minn hirðir, mig mun
ekkert bresta.
Á grænum grundum lætur hann mig
hvílast,
leiðir mig að vötnum,
þar sem ég má næðis njóta.
Hann hressir sál mína,
leiðir mig um rétta vegu
fyrir sakir nafns síns.
Jafnvel þótt ég fari um dimman dal,
óttast ég ekkert illt,
því að þú ert hjá mér,
sproti þinn og stafur hugga mig.
Þú býr mér borð
frammi fyrir fjendum mínum,
þú smyr höfuð mitt með olíu,
bikar minn er barmafullur.
Já, gæfa og náð fylgja mér
alla ævidaga mína,
og í húsi Drottins bý ég
langa ævi.
(23. Davíðssálmur)
Maggi ólst upp í húsi fjölskyld-
unnar sem afi okkar byggði, þegar
of þröngt var orðið um 13 manns í
60 fermetrum á Litla-Seli við
Vesturgötu. Fyrstu árin naut
Maggi faðms móður sinnar, en hún
flutti síðan til Kaupmannahafnar
til að búa þeim mæðginum betra
líf þar ytra. Alltaf stóð til að
Maggi færi til hennar, en lífið varð
aldrei sá dans á rósum sem hún
hélt að það yrði.
Maggi varð eftir hjá afa okkar
og Axel föður mínum. Samband
pabba og Magga var alla tíð mjög
kærleiksríkt. Magga móðursystir
hans bjó þar og átti Maggi skjól
hjá þeirri blíðu konu.
Maggi og Beatrice hafa verið
stór partur af lífi okkar systra frá
bernsku okkar. Aldrei voru svo jól
eða aðrar hátíðir hjá okkur að þau
vantaði. Fyrstu 40 árin hjá for-
eldrum mínum og eftir það hjá
mér. Mér fannst alltaf einhver
ljómi yfir Magga, hann var óvenju
dökkur með lítið yfirvaraskegg,
ekki ósvipaður Errol Flynn leik-
ara. Á dögum kanasjónvarpsins
fannst mér hann eiga heima í The
Untouchables sem einn af mönn-
um Elliots Ness. Maggi var ekki
margmáll maður en þegar hann
var umkringdur sinni nánustu fjöl-
skyldu lék hann á als oddi. Hann
naut þess að sýna krökkum ýmsa
galdra sem vöktu kátínu.
Eitt sinn man ég eftir þegar við
systur vorum litlar og vorum
staddar með foreldrum okkar í
London. Þá fengu Maggi og
Beatrice að gista hjá okkur á
Piccadilly Hotel. Í minningunni
var sprell frá morgni til kvölds.
Maggi komst þar í búð sem seldi
hluti til að hræða fólk og þar á
meðal voru mjög raunverulegar
stórar kóngulær, þetta faldi hann
undir sængum okkar og hló sig
máttlausan þegar við öskruðum og
görguðum.
Maggi vann í 40 ár hjá banda-
ríska sendiráðinu og var þar allt í
öllu. Mjög trúr sínum yfirmönnum
og þagmælska var honum í blóð
borin.
Beatrice og Maggi ferðuðust
mikið um ævina, oft til Írlands.
Einnig hafa þau ferðast til Aase
systur Magga og hennar fjöl-
skyldu, síðast á 70 ára afmæli
hennar. Aase kom hingað í sumar
til að kveðja bróður sinn. Þótt þau
hafi alla tíð búið hvort í sínu land-
inu var kærleikur mikill milli
þeirra.
Seinni árin hafa verið erfið,
sjónin var orðin mjög slæm og
setti það þessum duglega manni
miklar skorður. Á þessu ári upp-
götvaðist krabbamein hjá honum
sem varð hans banamein.
Beatrice hefur staðið eins og
klettur við hlið hans, tilbúin að
létta honum lífið. Hann sagði mér
margsinnis hve ótrúlega heppinn
honum fyndist hann hafa verið að
hafa átt hana. Ég bið Beatrice,
Einari, Ásu, Kidda og börnum
þeirra Guðs blessunar um ókomna
framtíð
Kristín Axelsdóttir.
Magnús Aðalsteinn
Aðalsteinsson
✝
Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
ástkærrar eiginkonu minnar, móður, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
HULDU HALLDÓRSDÓTTUR
frá Sunnuhlíð,
Svalbarðsströnd.
Sérstakar þakkir til starfsfólksins á Sjúkrahúsi
Akureyrar fyrir góða umönnun.
Guð blessi ykkur öll.
Hreinn Ketilsson,
Hólmfríður Hreinsdóttir, Stefán Stefánsson,
Ingibjörg Hreinsdóttir, Haukur Már Ingólfsson,
Hólmkell Hreinsson, Kristín Sóley Sigursveinsdóttir,
ömmubörn og langömmubörn.
✝
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og
hlýhug vegna andláts og útfarar
SVEINS GUÐBJARNASONAR
frá Ívarshúsum.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki dvalar-
heimilisins Höfða á Akranesi fyrir einstaka
umönnun.
Fjóla Guðbjarnadóttir,
Vigdís Guðbjarnadóttir,
Erna Guðbjarnadóttir,
Sigmundur Guðbjarnason, Margrét Þorvaldsdóttir,
Sveinbjörn Guðbjarnason, Sigríður Magnúsdóttir,
Sturla Guðbjarnason, Diljá Sjöfn Pálsdóttir,
Hannesína Guðbjarnadóttir, Eggert Þór Steinþórsson,
Jón Hallgrímsson.
✝
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og
hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengda-
móður, ömmu og langömmu,
LÁRU PETRÍNU GUÐRÚNAR
BJARNADÓTTUR,
Háaleitisbraut 155,
Reykjavík.
Birna María Eggertsdóttir,
Ásta Lóa Eggertsdóttir,
Ingigerður Eggertsdóttir,
Unnur Eggertsdóttir, Hermann Arnviðarson,
Gunnhildur Hrefna Eggertsdóttir, Óskar Þorsteinsson,
Kolbrún Eggertsdóttir, Arnaldur F. Axfjörð,
Pétur Eggert Eggertsson, Sigurborg Steingrímsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs
föður okkar, tengdaföður og afa,
SIGURÐAR KJARTANS BRYNJÓLFSSONAR.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á deild 13E
og gjörgæsludeild Landspítalans við Hringbraut.
Einnig færum við Karlakórnum Stefni og öðru
tónlistarfólki þakkir fyrir tónlistarflutning við útförina sem og
Frímúrarareglunni fyrir þeirra aðstoð.
Einar Sigurðsson, Jarþrúður Guðnadóttir,
Auður G. Sigurðardóttir, Frosti Richardsson
og barnabörn.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför eigin-
manns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og
langafa,
JÓSAFATS VILHJÁLMS FELIXSONAR,
Húsey.
Okkur er ógleymanleg öll sú góða hjálp og
stuðningur sem við urðum aðnjótandi frá ykkur á
erfiðum tímum.
Guð blessi ykkur öll.
Inda Indriðadóttir,
Felix Jósafatsson, Baldvina G. Valdimarsdóttir,
Indriði Jósafatsson, Hrönn Helgadóttir,
afabörn og langafabörn.