Morgunblaðið - 17.09.2008, Síða 27

Morgunblaðið - 17.09.2008, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. SEPTEMBER 2008 27 ✝ Ólafur EinarSigurbjörnsson fæddist í Kötluhól í Leiru 24. janúar 1923. Hann lést á Garðvangi í Garði 9. september síðastlið- inn. Foreldrar hans voru hjónin Sigur- björn Eyjólfsson, f. 8. september 1896, d. 20. október 1974, og Margrét Einars- dóttir, f. 25. nóv- ember 1898, d. 10. febrúar 1936. Systkini Ólafs eru Steinunn Lilja, f. 1921, Jóhanna, f. 1924, d. 2008, Eyjólfur, f. 1926, Jónas, f. 1928, d 1955, Friðrik, f. 1930 og Margeir, f. 1939, d. 1965. Ólafur kvæntist 4. júlí 1948 Ás- Kamilla og Róbert. b) Ásdís Brá, f. 1976, maki Reynald Ormsson, f. 1975, börn þeirra eru Auðunn Almar, og Valgerður Amelía, son- ur Reynalds er Davíð Þórir. c) Ólafur Einar, f. 1978, sambýlis- kona Ásdís Ármannsdóttir, f. 1980, börn þeirra eru Ármann Þór og Gerður Rós. Árni Hrannar, f. 1981. 3) Sonur Ólafs, Eggert Dalmann, f. 1942, kvæntur Sólrúnu Jósefínu Valsdóttur, f. 1944. Börn hans eru a) Árný Sigurlaug, f. 1971, gift Birgi Þórissyni, f. 1965, börn þeirra eru Daníel Ágúst, Stefanía Lilja og Berglind Rós. b) Guð- mundur Friðrik, f. 1975, kvæntur Guðnýju Kristinsdóttur, f. 1981, börn þeirra eru Kristinn Dagur og Svala Dís. c) Ingimar, f. 27. febr- úar 1984. Ólafur bjó alla tíð í Keflavík, þau hjónin bjuggu sér heimili á Hring- braut 98 og byggðu það hús sjálf. Hann starfaði lengst af hjá Esso á Keflavíkurflugvelli. Útför Ólafs fer fram frá Kefla- víkurkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. dísi Emilsdóttur frá Seyðisfirði, f. 16. júní 1921, d. 22. febrúar 2005. Foreldrar henn- ar voru Emil Theódór Guðjónsson, f. 10. maí 1986, d. 11. janúar 1976, og Guðný Helga Guðmundsdóttir, f. 6. ágúst 1896, d 16. júní 1974. Börn Ólafs og Ásdísar eru: 1) Sig- urbjörn, f. 1948, dótt- ir hans og Agnesar Sigurgeirsdóttur er Þórdís, f. 1969, dætur Þórdísar eru Tara Ósk, Belinda Sól, og Ástrós Eva. 2) Gerður, f. 1951, gift Hrólfi Karlssyni, f. 1947. Börn þeirra eru a) Karl Eiríkur, f. 1971, sambýliskona Karitas Gunn- arsdóttir, f. 1974, börn þeirra eru Elsku afi. Ég er innilega þakklát fyrir okkar síðustu stund saman. Það voru for- réttindi að fá að vera með þér þar til að þú yfirgafst okkar veraldlega heim. Ég trúi því að amma hafi verið hjá okkur allan tímann tilbúin með uppábúið rúmið handa þér og tekið á móti þér með heilan her af syngjandi englum. Ég trúi því að þér líði vel og þú munir vaka yfir af- komendum þínum og haldir yfir okkur verndarhendi og sendir frið. Alveg fram til það síðasta varst þú til staðar fyrir mig á þinn hátt og án orða gafstu mér styrk til að tak- ast á við þau tímamót sem ég stend frammi fyrir í mínu lífi núna eins og þú hefur áður gert. Þú gafst mér þá yndislegu stund að vera með þér á þeirri stund sem var að líða og ekk- ert annað truflaði okkar samvistir. Við vorum þarna bæði í núinu, í okk- ar veruleika og á einhvern sérstak- an hátt varð þessi stund yndisleg þar sem æðri máttur gaf okkur báð- um styrk til að mæta örlögum okkar þó ólík væru. Afi, ég elska þig og minning þín lifir í afkomendum þínum, Tara og Belinda urðu þeirrar gæfu aðnjót- andi að fá að kynnast þér og munu þær bera minninguna um þig í sínu hjarta, Ástrós litla mun einnig bera minningu þína í gegnum stóru syst- ur sínar og mig. Drottinn blessi þig. Aldan hnígi til að mæta þér, vindurinn sé í bak þér, sólin vermi andlit þitt, regnið falli milt að jörðu. Og allt til þess að við sjáumst á ný, varðveiti þig Guð í örmum sínum. (Írsk blessun.) Við elskum þig, afi, og takk fyrir allar okkar stundir sem við áttum saman í lífinu. Þín afastelpa og þínar langafa- stelpur, Þórdís Björk, Tara Ósk, Belinda Sól og Ástrós Eva. Elsku afi. Þá er komið að kveðjustund. Og eins og ávallt á svona tímamótum flæða minningarnar um hugann. Allar sumarbústaðaferðirnar við Laugarvatn, sundferðirnar, gisti- nætur á Hringbrautinni, skoðunar- ferðir upp á flugvöll þar sem þú vannst sem lengst, Bláa lónið, sunnudagsrúntar og ýmislegt annað skemmtilegt. Allt er þetta sveipað dýrðarljóma þar sem þú og amma gerðuð allt sem í ykkar valdi stóð til að gera hverja ferð að ævintýri. Þú hafðir yndi af því að fara í sund og þú smitaðir okkur öll af sundbakteríunni og er við gistum hjá ykkur var hægt að ganga að því sem gefnu að við vorum ræst klukk- an 7 í morgunmat og svo var farið í sund og þetta fannst okkur alltaf jafn-gaman. Í hverri ferð á Laug- arvatn var ný sundlaug prófuð, al- veg sama þó þú þyrftir að keyra í dágóðan tíma þá léstu það ekki á þig fá. Á Hringbrautinni var allt til alls handa öllum og allir velkomnir og ávallt eitthvað gott á boðstólum. Við vissum öll hvar gotterísskápurinn var og gosgeymslan. Í seinni tíð er árin færðust yfir var ávallt hægt að hlæja og brosa með þér yfir sögum af sumarbústaðaferðunum. Elsku afi okkar, við eigum svo mikið af yndislegum og góðum minningum um þig og ömmu, minn- ingar sem við varðveitum í hjörtum okkar. Það sem huggar okkur á þessum tímum er að vita af þér og ömmu saman á ný. Lækkar lífdaga sól. Löng er orðin mín ferð. Fauk í faranda skjól, fegin hvíldinni verð. Guð minn, gefðu þinn frið, gleddu og blessaðu þá, sem að lögðu mér lið. Ljósið kveiktu mér hjá. (Herdís Andrésdóttir.) Þín barnabörn, Karl, Ásdís, Ólafur og Árni. Óli eins og við kölluðum hann allt- af, var giftur Ásdísi „frænku“, syst- ur mömmu. Móðir mín, þá einstæð móðir, bjó með mig hjá þeim hjón- um fyrstu ár ævi minnar. Allar göt- ur síðan hefur sambandið milli fjöl- skyldnanna verið náið. Óli og frænka gengu okkur systkinunum í ömmu og afa stað, en afar okkar og ömmur bjuggu úti á landi og sam- göngur voru ekki eins tíðar þá og nú til dags. Óli og frænka komu nánast dag- lega á heimili okkar og við krakk- arnir komum gjarnan við hjá þeim. Þannig skruppum við oft í frímín- útum úr skólanum og fengum epli eða annað hollt góðgæti hjá þeim. Við Gerður dóttir þeirra vorum eins og systur og Bjössi var stóri bróð- irinn. Óli hafði gaman af því að atast í okkur krökkunum og gaf okkur öll- um skemmtileg nöfn sem hann not- aði á okkur þegar hann var í þeim gírnum. Það var upphefð í því að fá uppnefni hjá Óla. Óli og frænka voru ákaflega sam- hent hjón allt fram á síðasta dag. Það sést best á því að þegar maður sest niður til að skrifa minningar- grein um Óla, er einhvernvegin sjálfgefið að nafn frænku fylgi í þeirri upprifjun. Frænka lést í des- ember 2005 og eftir fráfall hennar dofnaði lífslöngunin hjá Óla. Síðustu mánuðina var sem hún væri aftur orðin áþreifanlegur hluti af lífi hans, hann talaði þannig um hana. Nú hafa þau sameinast aftur í nýjum heimkynnum. Óli og frænka voru ákaflega stolt af börnum sínum og barnabörnum og skilja eftir sig stóran og mynd- arlegan hóp afkomenda. Ég votta aðstandendum öllum mína innilegustu samúð. Kæri vinur, hafðu þökk fyrir allt og allt, hvíl þú í friði. Hjördís. Ólafur Einar Sigurbjörnsson ✝ Þorlákur Breið-fjörð Guðjóns- son fæddist á Flat- eyri við Önundar- fjörð 15. ágúst 1930. Hann lést á hjúkr- unarheimilinu Sól- túni 8. september síðastliðinn. For- eldrar hans voru Guðjón Jóhannes- son verkamaður, f. 1900, d. 1974 og Þórunn Þorláks- dóttir húsfreyja, f. 1904, d. 1936. Þor- lákur var elstur af fjórum systk- inum. Hin eru eru Margrét, f. 1932, Jón, f. 1934, d. 1988, og Leif- ur, f. 1935, d. 2005. Hálfbróðir þeirra er Þröstur Guðjónsson, f. 1943. Sex ára gamall fór Þorlákur að Sæbóli á Ingjaldssandi þar sem hann ólst upp hjá Elísabetu Guðna- dóttur og Ágúst Guðmundssyni. Þegar hann er 14 ára flyst hann til Reykjavíkur til föðursystur sinnar Steinunnar Jóhannesdóttur, f. 1904, d. 1984, og Stefáns Lárus- sey Tate, f. 1956. Dóttir hans og Ásu Maríu Björnsdóttur, f. 1963, er Íris Ósk, f. 1982. 4) Svava, f. 1964, d. 1984. Sonur hennar og Gunnars Karlssonar, f. 1961, er Karl Fannar, f. 1983. 5) Ólafur Magnús, f. 1967, eiginkona Her- borg Þuríðardóttir, f. 1968, sonur þeirra Viktor Ingi, f. 1996. Sonur hans og Ragnheiðar Huldu Ólafs- dóttur er Stefán Máni, f. 1998. 6) Ragnheiður Kr., f. 1974, maður Fergal Malone, f. 1970. Þorlákur flutti árið 1955 aftur til Flateyrar og fékk námssamning í rafvirkjun hjá Magnúsi Konráðs- syni og síðan útskrifaðist hann sem rafvirki frá Iðnskólanum í Reykjavík 1960. Þorlákur og Ragnheiður hófu búskap sinn á Flateyri við Önundarfjörð þar sem hann starfaði við rafvirkjun. 1969– 72 starfaði hann hjá Pólnum á Ísa- firði, 1972-1974 á Rafvirkjaverk- stæði Sigurðar Bernódussonar á Bolungarvík. Er þau bjuggu á Sauðarkróki 1974-1981 var hann eftirlitsmaður hjá RARIK og við Laxárvatnsvirkun í Austur-Húna- vatnssýslu frá 1981 þar sem hann endaði starfsferil sinn 1996. Þá fluttist hann til Reykjavíkur og bjó að Bláhömrum 2 frá 1996. Þorlákur verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13. sonar, f. 1900, d. 1973. Þorlákur kvæntist 2. júlí 1961 Ragnheiði Þóru Sturludóttur, f. 1936, dóttur hjón- anna Ólafar Bern- hardsdóttur, f. 1913, d. 1983, og Sturlu Þórðarsonar frá Neðri-Breiðadal í Önundarfirði, f. 1901, d. 1986. Börn Þorláks og Ragnheiðar eru: 1) Þórunn, f. 1960, eiginmaður Þorgeir Haukdal Jónsson, f. 1960. Börn þeirra; a) Jón Haukdal, f. 1979, dóttir Etel María, f. 2006, b) Þor- lákur Heiðar, f. 1984, og Katrín Svava, f. 1996. 2) Herborg, f. 1961, maður Axel Jóhann Hallgrímsson, f. 1957 Börn þeirra; Bryndís, f. 1974, dóttir Kara Lind Melsted, b) Hallgrímur Þór, f. 1981, dóttir Karítas Freyja, f. 2008, og c) Ingi- björg Axelma, f. 1985, sonur Axel Þór Dunaway, f. 2004. 3) Guð- steinn Stefán, f. 1962, kona Lind- Þegar móðir mín hringdi í mig snemma á mánudagsmorgun og færði mér tíðindin, að hann afi minn væri farinn, fylltist ég af bæði sorg og þakklæti. Merkilegasti og ljúfasti maður sem ég hafði á ævi minni kynnst var látinn. En eins sárt og mér fannst það varð mér rótt við þá tilhugsun, eins veikur og hann var orðinn, hafði hann loksins fengið hvíldina. Ein af elstu minningum mínum um hann afa hlýtur að vera dagurinn sem mér var sagt að hann væri ekki hinn eini sanni Lukku-Láki, eins og ég hafði alltaf haldið fram. En ég hélt samt áfram að kalla hann þetta, vegna þess í mínum augum var hann alltaf hetja, líkt og sögupersónan í samnefndum bókum. Og held ég að hann hafði bara unað því vel. Ég man svo vel eftir heimsóknum mínum til þeirra ömmu og afa, er þau bjuggu á Laxárvatni, því þar leiddist manni aldrei. Afi var ávallt reiðubúinn til þess að hafa ofan af fyrir okkur barna- börnunum, sama hvernig viðraði. Ef það var mikill snjór og vont veður, lét hann sig hafa það að húka úti til að byggja handa okkur snjóhús svo við gætum nú leikið okkur úti í öruggu skjóli. Og ef hann var að vinna eitthvað úti í bílskúr var hann ætíð feginn að hafa okkur hjá sér og sagði okkur ófáar sögur af liðinni tíð og aldrei þá sömu. Þegar amma og afi fluttust til Reykjavíkur fyrir rúmum áratug, þótti mér ennþá meira spennandi að koma í heimsókn til þeirra. Afi var iðinn við að fara með mig í bíltúr og sýna mér alla helstu staðina á höfuð- borgarsvæðinu, enda kunni hann margvíslegar og skemmtilegar sög- ur um þá flesta. Það leið aldrei leiðinleg stund í kringum hann afa, enda var hann al- veg einstaklega litríkur og skemmti- legur persónuleiki sem lýsi sér kannski best í hversu glettinn og fyndinn hann átti til að vera. Engu skipti hvað gekk á, alltaf var stutt í bros og hlátur hjá honum afa. Jafn- vel þegar hann byrjaði að veikjast, þá sparaði hann aldrei brosið né brandarana og var ljúfur við alla þá sem hann hitti. Mér þykir því erfitt að kveðja hetjuna mína, hann Lukku-Láka. Afi, ég elska þig, og ég á eftir að sakna þín heil ósköp. Ég get bara vonað, að þegar ég eldist og fer úr þessari veröld fái ég að hitta þig aft- ur og tjá þér hversu þakklát ég og við hin erum fyrir að hafa fengið að hafa þig í lífi okkar. Ingibjörg Axelma Axelsdóttir. Þorlákur Breiðfjörð Guðjónsson ✝ Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma, langamma og systir, DÓRÓTHEA DANÍELSDÓTTIR, Hjallaseli 55, Reykjavík, lést miðvikudaginn 3. september. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 19. september kl. 13.00. Daníel R. Ingólfsson, Olga E. Ágústsdóttir, Ágúst Sverrir Daníelsson, Davíð Ingi Daníelsson, Ívar Þórir Daníelsson, Guðjón H. Daníelsson, Anna Lillý Daníelsdóttir og fjölskyldur. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, RAGNHILDUR SIGURÐARDÓTTIR, Eskihlíð 13, lést á Landspítalanum í Fossvogi sunnudaginn 14. september. Útförin verður gerð frá Fossvogskirkju fimmtu- daginn 25. september kl. 13.00. Sigurður Jóhannsson, Halldór Ágúst Jóhannsson, Grímheiður Freyja Jóhannsdóttir, Arnar Friðriksson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, afi og bróðir, MAGNÚS BERGÞÓRSSON rafmagnsverkfræðingur, lést 11. september í Danmörku. Útför hans fer fram 24. september í Danmörku. Þórunn Jónsdóttir, Jón Magnússon, Bergþór Magnússon, Hjálmar Magnússon, Janna Magnúsdóttir, barnabörn og systkini hins látna.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.