Morgunblaðið - 17.09.2008, Page 19
Fréttir
í tölvupósti
Traustur Þessi er eftirgefan-
legri og þ.a.l. öruggari en
brettahjálmarnir og
hanskarnir setja punkt-
inn yfir i-ið. Hvoru-
tveggja er úr Ern-
inum, hjálmur kostar
14.500 kr. og hansk-
arnir 3.294 kr.
Vinsæll Svartir og mattir
brettahjálmar hafa rokið út
eins og heitar lummur í
ár. Sumir skipta líka
út gíratannhjólinu til
að létta hjólreið-
arnar. Úr Erninum,
hjálmur kostar
4.985 kr. og tann-
hjól 6.592 kr.
Þótt vetur konungur sé genginn í garðer engin ástæða til að leggja hjól-hestinum. Á tímum dýrra bensín-dropa og þrengri fjárhags er tilvalið
að halda áfram þeim umhverfisvæna
samgöngumáta sem sló í gegn svo um
munaði í sumar, þ.e. hjólreiðum, og
styrkja þannig líkamann og budduna í
leiðinni.
Þetta gildir auðvitað ekki bara um
fullorðna fólkið. Yngri kynslóðin sem
komin er með aldur til hefur aldrei
verið betur í stakk búin til að koma
sjálfri sér milli staða á fráum álfákum
þegar þeyst er í tómstundir og skóla út
um borg og bý.
Öryggið þarf auðvitað að vera í fyr-
irrúmi eins og ætíð og þá getur verið
hvetjandi ef hjálmurinn er af svalara
taginu. Undanfarið hefur nýtt form og
lína á hjólahjálmum verið að ryðja sér
til rúms hjá unglingum og eldri krökkum
eða svokallaðir brettahjálmar og er hægt að velja úr ýmsu í
þeim efnum. Sumir láta ekki þar við sitja heldur verða sér
úti um glæsilega hjólahanska eða „klassa“ reiðskjótann
sjálfan upp með ýmiss konar aukahlutum á borð við skraut-
legar ventlakúlur eða glæsileg gíratannhjól. ben@mbl.is
Að vera töff
á toppstykkinu
Hermannalegur Mosagræni lit-
urinn hefur komið sterkur inn hjá
krökkunum að undanförnu og það
kostar ekki mikið að skreyta
hjólið með glaðlegum ventla-
kúlum. Fæst í Markinu,
hjálmur kostar 4.500 kr. og
parið af ventlakúlunum
350 kr.
Háglans Hvítt er sígilt, líka hjá
ungu kynslóðinni. Hanskarnir eru
örlítið skrautlegri. Fæst í Mark-
inu, hjálmur kostar 3.990 kr. og
hanskar 2.990 kr.
Morgunblaðið/Frikki
Öðruvísi Hvort sem
glaðlegir litir eða
hauskúpur heilla er
eitthvað að finna
fyrir alla. Þessir fást
í GÁP-fjallahjóla-
búðinni og kosta
4.990 kr. stykkið.
tíska
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. SEPTEMBER 2008 19
Í vísnasafni afa míns, Lárusar H.Blöndals bókavarðar, er ódag-
settur miði með vísu eftir Þorstein
Erlingsson. Undir henni stendur
með rithönd Lárusar: „Þórunn Sig-
fúsdóttir bróðurdóttir Páls í Ár-
kvörn. Vísan aldrei prentuð.“
Þökk fyrir vina bros á brá,
best er að vera kátur.
Gott er á meðan Árkvörn á
okkar gleðihlátur.
Bjargey Á. Arnórsdóttir segist
hafa litið í spegil og ort:
Andlit mitt er rúnum rist,
rúin flestum gæðum.
Augun hafa eldinn misst
þó enn sé líf í glæðum.
Karl á Laugaveginum orti:
Út af þessu álveri
úti á Bakka á Tjörnesi
er til neyðarúrræði:
umhverfismat á Þórunni!
Stefán Þorláksson hringdi með
vísu úr Svarfaðardal, en vissi ekki
nafn á höfundi:
Allar gjafir eru frá
almáttugum drottni.
En hákarlinn sem Hólsmenn fá
hann er neðan frá botni.
VÍSNAHORN pebl@mbl.is
Óbirt vísa
Þorsteins
Bókin sem sló öll met
„Meistaralega fléttuð.“
Silja Aðalsteinsdóttir / tmm.is
„Flott innra samhengi.“
Jón Yngvi Jóhannsson / Ísland í dag, Stöð 2
„Besta skáldsaga Arnaldar
frá því að Grafarþögn kom út.“
Hávar Sigurjónsson / Morgunblaðið
„Bók sem ekki gleymist og mun
lifa lengi í minningu lesanda.“
Úlfhildur Dagsdóttir / bokmenntir.is
„Arnaldur er í toppformi í spennandi,
læsilegri og vel hugsaðri glæpasögu
sem er hans besta í nokkur ár.“
Kolbrún Bergþórsdóttir / Ísafold