Morgunblaðið - 17.09.2008, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. SEPTEMBER 2008 23
- kemur þér við
Sérblað um tísku
fylgir blaðinu í dag
!"
#$
%
&
'
(
) * +
(
)$
)
# ,
# #-
* $
-
(
.
,
(
$
!
#
! &
# 012
#&
!"
"#$%&'$" (') *
+ ,--
!
Bændur hafna mat-
vælafrumvarpi
Skólameistarinn á
Ísafirði bannaði óvissu-
ferðina
Götubolti í Grundar-
firði
Nýsir á barmi gjald-
þrots
Játningar Helga Seljan
Hvað ætlar þú
að lesa í dag?
SEINT ætlar að linna
árásum á Íbúðalánasjóð,
einn af hornsteinum ís-
lensks velferðarkerfis.
Það er hlálegt að Samtök
atvinnulífsins skuli nú
kalla eftir þjóðarsátt um
að fórna Íbúðalánasjóði
og þjónustu hans á altari
einkavæðingarinnar ein-
mitt þegar hann hefur
sannað gildi sitt sem aldrei fyrr.
Aðrar þjóðir eins og Bandaríkja-
menn bregðast nú við samdrætti og
erfiðleikum á fjármálamörkuðum
með auknum inngripum á íbúða-
lánamarkaði og hefur það haft já-
kvæð áhrif víða um heim, m.a. á Ís-
landi. Forsvarsmenn Samtaka
atvinnulífsins hérlendis halda samt
áfram að berja hausnum við stein-
inn af tómri þráhyggju. Íbúðalána-
sjóður er nú nánast eini bakhjarlinn
sem fólk getur leitað til vegna fjár-
mögnunar íbúðarkaupa og þannig
hefur staðan raunar verið víða um
land um langt skeið, eða síðan hof-
móðurinn rann af bönkunum í
áhlaupi sínu inn á íbúðalánamark-
aðinn.
Slæm áhrif á efnahagslíf
Illa grunduð spilamennska með
fé og óábyrg útrás bankanna inn á
húsnæðismarkað
landsmanna á sinn
þátt í þeim efnahags-
vanda sem þjóðin
stendur nú frammi
fyrir. Íbúðalánasjóð-
ur er ein af grunn-
stoðum íslensks sam-
félags og landsmenn
verða að geta treyst
því að húseignir
þeirra og heimili
verði ekki duttl-
ungum og ásælni
fjármagnsafla að
bráð. Það er því með öllu ólíðandi ef
ríkisstjórnin ætlar nú að rétta af
óráðsíu viðskiptabankanna á und-
anförnum árum með því að veikja
Íbúðalánasjóð.
Frekari hugmyndir um einka-
væðingu almannaþjónustu
Hugmyndir um einkavæðingu al-
mannaþjónustu njóta stuðnings
Sjálfstæðisflokksins og því miður
eiga þær einnig hljómgrunn innan
Samfylkingarinnar. Starfsemi
Íbúðalánasjóðs hefur gríðarlega
mikla þýðingu fyrir atvinnulíf og
byggð á landsbyggðinni. Með tilvist
öflugs Íbúðalánasjóðs hefur tekist
að tryggja jafnrétti allra lands-
manna, óháð búsetu, til íbúðarlána á
hagkvæmum kjörum. Með fé-
lagslegum tilstyrk sjóðsins er hlut-
fall eignarhúsnæðis jafn hátt og
raun ber vitni hér á landi.
Kemur illa við landsbyggðina
Tillögur um að ráðast gegn starf-
semi Íbúðalánasjóðs eru nú á borði
ríkisstjórnarinnar. Félagsmálaráð-
herra hefur rætt um að skilja að al-
menn lán og félagsleg lán Íbúða-
lánasjóðs. Slík aðgerð veikir
Íbúðalánasjóð til muna og grefur
undan þeirri samtryggingu og þeim
félagslega grunni sem sjóðurinn
byggir á. Íbúðalánasjóður er ekki
síst mikilvægur þeim hluta þjóð-
arinnar sem lifir og starfar í dreif-
býli og því mun veikari Íbúðalána-
sjóður koma sérlega illa við
landsbyggðina. Að kalla eftir þjóð-
arsátt um að eyðileggja Íbúðalána-
sjóð er ákall um að ráðast gegn lífs-
kjörum stórs hluta landsmanna og
afkomu heilla byggðarlaga.
Þjóðarsátt um Íbúðalánasjóð
í þágu allra landsmanna
Stöndum vörð um
Íbúðalánasjóð segir
Bjarni Jónsson
» Að kalla eftir
þjóðarsátt um að
eyðileggja Íbúðalána-
sjóð er ákall um að
ráðast gegn lífskjörum
stórs hluta lands-
manna og afkomu
heilla byggðarlaga.
Bjarni Jónsson
Höfundur er sveitarstjórnarfulltrúi
VG í Skagafirði.
„STÓRISJÓR gefur
tækifæri til að styrkja
gróðurvernd“ segir
Jónas Elíasson pró-
fessor í Morgunblaðs-
grein. „Öll virkjanalón
Íslands voru einu
sinni stöðuvötn“ segir
hann líka, – sem er að
vísu rangt. Hann átel-
ur ríkisstjórnina fyrir
þá „þvermóðsku að ekki megi end-
urreisa gömul vötn“. Af grein Jón-
asar má skilja að eitt stærsta fram-
faramál landsins sé að sökkva með
stíflum svo miklu af hálendinu und-
ir vatn að það grói allt upp í kring-
um lónin. Jónas rökstyður ekki
hvernig myndun Stórasjávar geti
verið forsenda fyrir gróðurvernd
enda er síbyljan um gróðurvæn lón
argasta öfugmæli. Um 40 ferkíló-
metrum af þykku gróðurlendi var
sökkt vegna Kárahnjúkavirkjunar
og Hálslón er margfalt stærra en
vatnið sem þar var fyrir 11 þúsund
árum. Svipuð drekking gróðurs átti
sér stað með allt of stóru Blöndu-
lóni þar sem ekki var áður stórt
stöðuvatn. Ég hef skoðað og mynd-
að mikið og fagurt gróðurlendi sem
sökkt verður vegna virkjunar
Skjálfandafljóts. Gróðurvinjar há-
lendisins eru í lægðum en einmitt
þessar sömu lægðir henta til miðl-
unarlóna. Ef það er keppikefli að
sökkva landi, sem áður var undir
vatni, liggja Fnjóskadalur og jafn-
vel allt Suðurlandsundirlendið vel
við.
Í umræðu um virkjanir er yf-
irleitt ekki rætt um þá hluta vatns-
fallanna sem á að þurrka upp. Yf-
irleitt er ekki minnst á að
Norðlingaölduveita muni svipta
burtu tveimur af tólf stórfossum
Íslands og Kárahnjúkavirkjun
þremur slíkum og auk þess tugum
minni fossa. Þegar prófað var 11.
september (minnisverð dagsetning)
að setja Kirkjufoss og
Faxa í rafmagnsstól
aftökumeistara Lands-
virkjunar komst ég að
því að ég var eini mað-
urinn sem var staddur
við fossana og tók þar
myndir. Engu orði
hefur verið minnst á
fossadrápið í fjöl-
miðlum þegar þessi
orð eru sett á blað og
hefur þó ekki áður
verið skrúfað fyrir tvo
stórfossa í einum
rykk. Ekki er minnst á að helm-
ingur stórfossa landsins að minnsta
kosti séu á aftökulista. Að mínum
dómi eru stærstu umhverfisáhrif
Bjallavirkjunar uppþurrkun
Tungnaár á fallegasta kafla hennar
milli Landmannalauga og Veiði-
vatna. Umræðan er hins vegar öll
um hið nýja lón.
Jónas telur núverandi virkjanir í
Tungnaá vera í anddyri Land-
mannalauga. Hið rétta er að virkj-
anirnar eru í 30 km aksturs-
fjarlægð frá Laugum en
Kýlingasvæðið er aðeins 5 km í
burtu og 3 km frá Námshrauni og
Frostastaðavatni. Miðja Fjallabaks-
leiðar nyrðri liggur um Kýlinga. 46
megavött Bjallavirkjunar munu
skapa um 30 störf í álveri, sem
samsvara hvað snertir virðisauka
10 störfum í sjávarútvegi. Það er
nú allt og sumt. Þegar Bjallavirkj-
un og friðlandið voru fyrst sett á
blað réð hin gamla hugsun Jónasar:
„Virkjum fyrst og friðum svo,“
löngu úrelt sjónarmið, sem Jónas
hangir á eins og hundur á roði –
hefur ekkert lært og engu gleymt.
Ég tel mig geta fært að því gild
rök að svæðið milli Vatnajökuls og
Suðurjökla beri af Yellowstone í
Bandaríkjunum og raunar kemst
hinn frægi þjóðgarður vestra ekki
á blað með 40 mestu nátt-
úruundrum heims í nýrri og vand-
aðri bók um það efni þótt hinn eld-
virki hluti Íslands geri það. Jónas
og hans menn vilja virkja hér svo
að Bandaríkjamenn geti haldið
orkumesta svæði síns lands óvirkj-
uðu. Jónas segir að mjög fáir nema
hestamenn fari um Dómadalsleið
þar sem engar virkjanir sé að sjá.
Hins vegar fari margir hjá Hraun-
eyjafossvirkjun enda „hefur venju-
legt fólk gaman af að skoða virkj-
anir.“ Ég veit ekki hvort þeir sem
hafa farið báðar þessar leiðir hlæja
eða gráta við að sjá svona lagað á
prenti eða þá það að án virkj-
anaæðisins væri „Ísland afskekkt
eyja með deyjandi þorskstofn og
fátækt fólk á flótta til annarra
landa.“ Að ekki sé nú talað um
þegar Jónas lýsir meirihluta að-
spurðra í skoðanakönnunum, sem
telja nóg komið af virkjunum, sem
„þröngsýnum sértrúarflokki.“
Bjallavirkjun, lónaglýja
og fossafælni
Ómar Ragnarsson
svarar
Jónasi Elíassyni
» Jónas Elíasson
telur virkjanalón
styrkja gróðurvernd
þótt þau drekki gróð-
urvinjum og helmingur
stórfossa landsins
sé þurrkaður upp.
Ómar Ragnarsson
Höfundur er formaður Íslands-
hreyfingarinnar – lifandi lands.
Vöggusæn
gur
vöggusett
PÓSTSENDUM
Skólavörðustíg 21 ● sími 551 4050 ● Reykjavík