Morgunblaðið - 26.09.2008, Síða 2
2 FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir,
annaei@mbl.is, Bergþóra Njála Guðmundsdóttir, ben@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson,
Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur
elva@mbl.is
VLADÍMÍR Títov, aðstoðarutanrík-
isráðherra Rússlands, gerði á fundi
með Sturlu Böðvarssyni, forseta Al-
þingis, í Rússlandi í síðustu viku, ein-
dregnar athugasemdir við yfirlýs-
ingar íslenskra stjórnvalda um
Rússa og málefni Georgíu. Þá var
ráðherrann ekki sáttur við athuga-
semdir sem Sturla gerði við flug
Rússa á íslensku flugumferðarsvæði.
Fundur ráðherrans og Sturlu fór
fram í tengslum við opinbera heim-
sókn íslenskrar þingnefndar til
Rússlands, en til heimsóknarinnar
var boðið af hálfu forseta Dúmunnar.
Aðstoðarráðherrann gerði þar grein
fyrir sjónarmiðum Rússa í Georgíu-
deilunni.
„Hann lagði mikla áherslu á að
sjálfsstjórnarhéruðin þar yrðu ekki
hluti af Georgíu um ókomna framtíð.
Hann lagði líka áherslu á, að Rússar
hefðu á undangengnum árum orðið
að láta undan stöðugum þrýstingi frá
Vesturveldunum og NATÓ-ríkjun-
um. Nú væri komin sú tíð að þeir
hefðu fullt afl til þess að fara sínar
leiðir,“ segir Sturla.
Þá var ráðherrann ósáttur við at-
hugasemdir sem Sturla, sem forseti
Alþingis, tók þátt í að samþykkja
gagnvart deilum Rússa og Georgíu-
manna á nýlegum fundi forseta
Norðurlandaþinga. Á fundinum var
samþykkt ályktun þar sem innrás
Rússa var fordæmd og hvatt til frið-
samlegrar lausnar.
Ennfremur var aðstoðarráðherr-
ann búinn að kynna sér ræðu sem
Geir H. Haarde forsætisráðherra
flutti á dögunum í Valhöll, þar sem
hann vék að Rússum. „Ráðherrann
gerði á fundinum athugasemdir við
yfirlýsingar forsætisráðherra um
framgöngu Rússa.“
Vakti máls á auknu
flugi Rússa við Ísland
Sturla gerði á fundinum með Títov
athugasemdir við aukið flug Rússa á
íslensku flugumferðarsvæði. „Hann
sagði að þessu væri með engum
hætti beint gegn Íslendingum. Flug-
vélarnar bæru ekki kjarnorkuvopn,
þetta væri strategískt flug sem væri
til mótvægis við aðgerðir NATO-
þjóðanna og Bandaríkjamanna sem
væru samstarfsmenn okkar. Við yrð-
um að sætta okkur við þetta, enda
flugið löglegt,“ segir Sturla, sem
gerði athugasemd við svörin. Hefði
hann vísað til þess að mjög mikil-
vægt væri að fullkomnar upplýsing-
ar væru veittar um allt flug til að
skapa ekki óþarfa hættu eða spennu.
Rússar ósáttir við Íslendinga
Vladímír Títov, aðstoðarutanríkisráðherra Rússlands, gerði ákveðnar athugasemdir við yfirlýs-
ingar íslenskra stjórnvalda um Rússa Sagði að Rússar hefðu nú fullt afl til að fara sínar leiðir
Í HNOTSKURN
»Sturla fundaði í ferð sinnieinnig með orkunefnd
Dúmunnar.
»Þá hélt hann fyrirlesturum orkumál í háskóla á
vegum utanríkisráðuneytis
Rússa í Moskvu.
»Fyrirlesturinn var fjölsótt-ur. Sturla gerði grein fyrir
íslenskum orkumálum og
fjallaði einkum um nýtingu
jarðvarma og endurnýjanlega
orku.
»Ennfremur skoðaði ís-lenska þingnefndin starf-
semi íslenskra fyrirtækja í
Rússlandi.Skoðanaskipti Sturla Böðvarsson, forseti Alþingis, ásamt Vladímír Títov,
aðstoðarutanríkisráðherra Rússlands, að loknum fundi þeirra.
Eftir Silju Björk Huldudóttur
silja@mbl.is
VIÐ verðum að snúa bökum saman til þess að ná ár-
angri í pólitík. Innbyrðis deilur flokksins eru of sýni-
legar á yfirborðinu og ekki til þess fallnar að auka
trúverðugleika flokksins út á við. Formaðurinn verð-
ur að setja niður þær deilur sem innan flokksins
ríkja fljótt og örugglega eigi flokkurinn ekki að
hljóta skaða af. Þetta var inntakið í orðum margra
þeirra sem til máls tóku á fundi sem Reykjavíkur-
félög Frjálslynda flokksins boðuðu til í gærkvöldi.
Greinilegt var að fundargestum var mörgum
hverjum afar heitt í hamsi. Sumir deildu býsna hart
á formanninn meðan aðrir lýstu yfir fullum stuðn-
ingi við hann. Einn fundargesta líkti formanninum
við skipstjóra í brúnni sem umkringdur væri fáein-
um útvöldum mönnum í stórsjó og væri sama þótt
einum og einum manni í áhöfninni skolaði útbyrðis
sem og hluta af farminum sem upp hefði verið lagt
með. Sagði viðkomandi formanninn gera mikla
skyssu í því að veðja á Kristin H. Gunnarsson, þing-
mann FF í Norðvesturkjördæmi. Aðrir fundarmenn
tóku undir þetta og deildu hart á framgöngu Krist-
ins. „Hann hefur vonda nærveru og það sem verra
er, hann hefur óskaplega óþægilega fjarveru líka,“
sagði einn fundargesta.
„Stormur varir aldrei að eilífu. Einhvern tímann
lægir,“ sagði Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður
FF, í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi. „Menn
hafa misjafnar skoðanir á því hvernig eigi að vinna
úr þessum málum, en það verður mitt hlutskipti að
reyna að vinna úr því á skynsamlegan hátt,“ sagði
Guðjón og tók fram að hann myndi skoða allar skyn-
samlegar tillögur til að setja niður deilurnar í
flokknum, m.a. þá leið að skipa sáttanefnd.
Morgunblaðið/Golli
Forystan Guðjón Arnar Kristjánsson formaður Frjálslynda flokksins, Magnús Þór Hafsteinsson varaformaður
og Jón Magnússon þingmaður á fundi sem Reykjavíkurfélög flokksins stóðu fyrir í gærkvöldi.
Einhvern tíma lægir
Formaður Frjálslynda flokksins útilokar ekki skipun
sáttanefndar til að setja niður deilurnar í flokknum
GEIR H. Haarde forsætisráðherra
á fund með Ban Ki-moon, fram-
kvæmdastjóra Sameinuðu þjóð-
anna, í höfuð-
stöðvum samtak-
anna í New York
í dag.
Í samtali við
Morgunblaðið í
gær sagði for-
sætisráðherra að
fundurinn yrði
án formlegrar
dagskrár en að
þeir myndu ræða
þau mál sem
helst hefur borið
á góma í allsherj-
arþinginu nú í
vikunni.
„Ég á ekki von
á því að ég ræði
við hann sérstak-
lega um framboð
okkar til örygg-
isráðsins nema
til að vekja athygli hans á því að við
förum í þetta á ákveðnum forsend-
um sem eru kunnar og að við höfum
verið að auka sýnileika okkar hér
og leggja meira af mörkum en við
áður höfum gert. Og það veit ég að
er mikils metið,“ sagði Geir.
Hann bendir á að það sé í mörg
horn að líta fyrir framkvæmda-
stjóra SÞ á allsherjarþinginu.
Hefur unnið sér traust
„Hann þarf að blanda sér í mörg
málefni og það eru víða vanda-
málin. En mér hefur fundist hann
fara vel af stað í sínu starfi. Ég
held að þetta sé maður sem hafi
þegar unnið sér mikið traust, sem
er mikilvægt í hans erfiða verkefni.
Og það sem er verið að fást við til
dæmis í Afríku og í Mið-Austur-
löndum eru mál sem eru svo flókin
og erfið að það þarf mjög öflugt lið
hér á vegum Sameinuðu þjóðanna
til að fást við þau, sagði Geir.
bab@mbl.is
Höfum
verið
sýnilegri
Geir H. Haarde hittir
Ban Ki-moon í dag
Geir H. Haarde
Ban Ki-moon
LÖGREGLAN í Dóminíska lýðveld-
inu hefur nefnt þrjá grunaða í
tengslum við morðið á Hrafnhildi
Lilju Georgsdóttur á Extreme-
hótelinu í bænum Cabarete. Frank-
lin Genao heitir sá sem grunaður er
um morðið og segja þarlendir vef-
miðlar að þau Hrafnhildur Lilja hafi
átt í ástarsambandi. Einnig munu
vera í haldi þau Kelvin Corniel
Fermín og Paola Jiménes en hún
mun hafa starfað á barnum á hót-
elinu og þeim Hrafnhildi Lilju verið
vel til vina. Hefur fréttavefurinn El
nuevo Norte eftir lögregluforingj-
anum Rafael Guillermo Guzman
Fermin að þau þrjú séu grunuð um
aðild að morðinu.
Ástvinir Hrafnhildar Lilju hafa
stofnað styrktarsjóð fyrir fjölskyldu
hennar og geta þeir sem vilja veita
þeim fjárhagslegan stuðning lagt
inn á reikningsnúmerið: 0537-14-
609973 með kennitölu: 081079-5879.
Á heimasíðu Hrafnhildar Lilju
kemur fram að haldinn verður
bænastund í Vídalínskirkju í Garða-
bæ í dag, föstudag, kl. 18 fyrir þá
sem vilja minnast hennar.
Morðrann-
sókn langt
komin
SÁTT hefur náðst í deilu Reynis
Jónssonar, forstjóra Strætó bs., og
Jóhannesar Gunnarssonar, fyrrver-
andi trúnaðarmanns hjá félaginu,
en málið var komið fyrir dómstóla.
Í vor var Jóhannesi veitt áminn-
ing í starfi sem hann vildi að yrði
gerð ógild fyrir héraðsdómi. Jó-
hannesi var síðan boðinn starfs-
lokasamningur sem hann þáði ekki
og var honum í kjölfarið sagt upp
störfum. Ásakaði Jóhannes for-
stjórann um að hafa lagt sig í ein-
elti.
Þótt málið hafi verið látið niður
falla stendur áminningin og upp-
sögnin, segir Reynir. Hann vill ekki
útskýra í hverju sáttin felst. „Þessu
máli er lokið og það er ekkert
meira um það að segja.“ ylfa@mbl.is
Sömdu um
sátt hjá
Strætó