Morgunblaðið - 26.09.2008, Page 4

Morgunblaðið - 26.09.2008, Page 4
4 FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR VERÐHRUN 4 mismu nandi ák læðiBjóðum 1 5 tungu sófa verð áður 139.000 kr.69.000,- á aðeins yfir 200 gerðir af sófum Dugguvogi 2 / s: 557 9510 / www.patti.is Patti lagersala Opnunartími : Mánudaga - Föstudaga frá 9 til 18 og Laugardaga frá 11 til 16 FRÉTTASKÝRING Eftir Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is EVRÓPUSAMBANDIÐ leggur áherslu á fjöltyngisstefnu með það að markmiði að fólk kunni tvö tungumál fyrir utan móðurmálið. Evrópusambandið er enn langt frá þessu takmarki en tungumálakunn- átta Íslendinga virðist ekki vera frá- brugðin því sem best gerist innan ESB. Enskan langmikilvægust Fyrir um sjö árum lét mennta- málaráðuneytið gera tungu- málakönnun. Þar kom meðal annars fram að 96,4% svarenda töldu ensku vera það tungumál sem mikilvægast væri að hafa vald á. 25,8% töldu þýsku vera næst mikilvægasta er- lenda tungumálið, 24,2% nefndu spænsku og 23,1% dönsku. Franska var í fjórða sæti með 6,6% fylgi. 87,6% þátttakenda sögðust kunna ensku, 59,5% dönsku og 30,4% þýsku, en kunnátta í öðrum málum var sögð mun minni. Fyrr á þessu ári flutti Eyjólfur Már Sigurðsson, forstöðumaður Tungumálamiðstöðvar Háskóla Ís- lands, erindi um tungumálafærni í Evrópu. Niðurstaða hans var að enskukunnátta Íslendinga væri sambærileg við aðrar Norð- urlandaþjóðir og Hollendinga, þýskukunnáttan væri sambærileg við Svía en frönskukunnáttan væri lakari en á öðrum Norðurlöndum. Í könnun ESB í aðildarríkjunum 2005 kom fram að um 56% þátttak- enda töluðu að minnsta kosti eitt er- lent tungumál fyrir utan móð- urmálið. Um 28% sögðust tala tvö erlend tungumál. Í Lúxemborg sögðust um 99% tala að minnsta kosti eitt erlent tungumál, um 90% í Svíþjóð og Danmörku, um 67% í Þýskalandi og um 51% í Frakklandi, en hlutfallið fór síðan lækkandi. Það var um 36% á Englandi. Í 19 af 29 löndum var enskan mest talaða erlenda tungumálið og alls staðar nema í Lúxemborg var enska annað af tveimur mest töluðu tungu- málunum. Um 47% töluðu erlent tungumál nánast daglega en í könn- un menntamálaráðuneytisins sögð- ust um 48% nota erlent tungumál í vinnunni. Á ráðstefnunni í dag verður meðal annars reynt að svara því hvort enskan nægi eða ekki. Morgunblaðið/Golli Vinnumál Mörg íslensk fyrirtæki starfa í alþjóðlegu umhverfi og nota þar annað tungumál en íslensku. Enskan ráðandi Markmiðið hjá Evrópusambandinu er að fólk kunni tvö tungumál fyrir utan móðurmálið en enn er langt í land               ! " #    !  "! # $%          $ $ $ $ $ $ $ $ $     STEFNT er að því að flutt verði inn í nýju heilsugæslustöðina í Árbæ 1. desember næstkomandi og segir Burkni Dómaldsson, verkstjóri hjá Ris, að það ætti að ganga eftir miðað við ganginn að undanförnu. „Það gengur mjög vel núna,“ segir hann. Veðrið hefur ekki beint leikið við verkamennina nýliðnar vikur, en Burkni segir að menn láti það ekki á sig fá. „Það kvartar enginn yfir rign- ingunni, en það er miklu meira gam- an að vinna í svona veðri eins og er núna,“ segir hann. „Menn fyllast af gleði í svona veðri og þá er gaman að vera úti.“ Mönnum í nýju heilsugæslustöðinni í Árbæ finnst rigningin góð en sólin enn betri Kraftur eykst í blíðunni Morgunblaðið/Valdís Thor Líf og fjör Mikill kraftur er í byggingu heilsugæslustöðvarinnar og Burkni Dómaldsson er kátur með gang mála. Eftir Ylfu Kristínu K. Árnadóttur ylfa@mbl.is ÍBÚAR Garðabæjar, Reykjanesbæj- ar og Seltjarnarness eru ánægðastir með þjónustu síns sveitarfélags. Þetta kemur fram í könnun Capacent en markmið hennar var að gera sam- anburð á ánægju íbúa fimmtán stærstu sveitarfélaga landsins og leggja grunn að þjónustuvísitölu sveitarfélaga. Lestina ráku Árborg, Fjarðabyggð og Reykjavík. Heildarútkoman frekar jákvæð „Þetta er góður mælikvarði á hæft starfsfólk og skýra sýn sem bæjaryf- irvöld leggja fram,“ segir Árni Sig- fússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar. Hann telur að gott gengi í könnun- inni skýrist einnig af góðu samstarfi bæjarstarfsmanna við íbúa auk vel upplýstra íbúa sem njóta þjónustu hæfra bæjarstarfsmanna, hvort held- ur sem er í skólum eða á bæjarskrif- stofu. Aðspurður viðurkennir hann að niðurstöður könnunarinnar hafi kom- ið á óvart. „Við erum samfélag sem er á margan hátt ólíkt Garðabæ og Sel- tjarnarnesi. Útsvarstekjur á einstak- ling eru mun lægri hjá okkur en hjá þessum sveitarfélögum þannig að verkefni okkar að veita góða þjón- ustu er á margan hátt flóknara,“ seg- ir Árni. Hann bætir þó við að Reykja- nesbær hafi lært vel af þessum tveimur sveitarfélögum og hafi átt gott samstarf við þau. „Við höfum fylgst með vinnu þeirra og tekið upp margt af því sem þeir hafa haft til fyrirmyndar en við erum um leið stolt af okkar uppfinningum.“ Hvatning til að gera betur Að sögn Hönnu Birnu Kristjáns- dóttur, borgarstjóra Reykjavíkur, var könnun sambærileg þessari gerð fyrir nokkrum árum af Gunnari Helga Kristinssyni við Háskóla Ís- lands og þar kom Reykjavík út með svipuðum hætti. Þar voru niðurstöð- urnar útskýrðar á þann hátt að íbúar séu yfirleitt ánægðari með nærþjón- ustu lítilla sveitarfélaga en stærri. „Engu að síður tel ég að þessi könnun eigi að vera okkur hvatning til að gera enn betur. Ég vil auðvitað meina að þjónusta borgarinnar sé góð en ég held að menn geti alltaf bætt hana.“ Könnun Capacent var netkönnun og var úrtakið 4.800 manns en svar- endur alls 2.962. Minnsta ánægj- an með þjónustu Reykjavíkur 15 stærstu sveitarfélögin borin saman Í HNOTSKURN »Í könnuninni var fólk m.a.beðið um að meta hversu góður búsetustaður sveitarfé- lagið þess væri, hversu ánægt það væri með þjónustu við barnafjölskyldur, grunnskóla og leikskóla og hversu ánægt það væri með þjónustu á bæj- arskrifstofu, umhverfis- og skipulagsmál. » Í niðurstöðum Capacentsegir að í heildina hafi út- koman verið frekar jákvæð. MANNI er haldið sofandi í önd- unarvél eftir að bíll hans fór út af í Hálsasveit í Borgarbyggð um miðj- an dag í gær. Að sögn vakthafandi læknis á gjörgæsludeild Landspít- alans í Fossvogi (LSH) er mað- urinn alvarlega slasaður og með út- breidda áverka, m.a. á höfði, en í gærkvöldi var hann sagður í stöð- ugu ástandi. Tildrög slyssins í rannsókn Maðurinn var einn á ferð í bíl sem fór út af milli Reykholts og Norður Reykja. Bíllinn valt ekki en lenti í vegkanti eftir nokkuð hátt fall fram af vegi. Maðurinn var fluttur með þyrlu Landhelgisgæsl- unnar á slysadeild LSH þar sem hann gekkst undir aðgerð. Lög- reglan rannsakar tildrög slyssins. Ökumaður alvarlega slasaður EVRÓPSKI tungumáladagurinn er í dag og af því tilefni bjóða Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur og Sam- tök tungumálakennara á Íslandi til hátíðardagskrár í stofu 101, Há- skólatorgi. Ráðstefnan hefst klukkan 14:30 og er öllum opin en markmiðið með deginum er að vekja athygli á tungumálum í Evr- ópu og fagna menningarlegum fjölbreytileika. M.a. verður rætt um mikilvægi tungumálakunnáttu. Dagskrá í tilefni evrópska tungumáladagsins

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.