Morgunblaðið - 26.09.2008, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 26.09.2008, Qupperneq 10
10 FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ VEÐUR Björn Bjarnason dómsmálaráð-herra er ekki hissa á að for- ystumenn Evrópusambandsins í Brussel hafi ekki talið möguleika á að Ísland geti tekið upp evru með tvíhliða samningum við ESB.     Björn bendir áað fram- kvæmdastjórnin hafi ekki síðasta orðið um inntak laga sambands- ins. Það er alveg rétt hjá honum. Pólitískur vilji til að sveigja regl- urnar gæti leynzt hjá aðildarríkjum ESB.     En hvað á Björn við þegar hannsegist undrast hvað sumir stjórnmálamenn og álitsgjafar séu mjúkir í hnjáliðunum þegar rætt sé við embættismenn í ESB?     Illugi Gunnarsson, annar formaðurEvrópunefndarinnar, sagði í lok ferðar nefndarinnar til Brussel að afstaða framkvæmdastjórnarinnar væri einörð og mikinn pólitískan vilja þyrfti til að hnekkja henni.     Var Illugi mjúkur í hnjáliðunum?Ekki nógu harður við skrif- finnana?     Morgunblaðið hvatti forsætisráð-herra og utanríkisráðherra til að kanna hinn pólitíska vilja hjá að- ildarríkjum ESB á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna..     Geir H. Haarde vildi engu svaraum það í gær hvort málið hefði verið kannað.     Er hann líka mjúkur í hnjálið-unum?     Eða hefur hann enga trú á hug-myndinni? STAKSTEINAR Björn Bjarnason Mjúkir í hnjáliðunum                      ! " #$    %&'  (  )                 *(!  + ,- .  & / 0    + -                    !!   12     1  3   4 2- 2  * -  5  1 % 6! (78 9 4 $  (     "    # $$ !!% # $$ !!%            :  3'45 ;4 ;*<5= >? *@./?<5= >? ,5A0@ ).?   &    &' &  &' &'     &'                           *$BC                     ! "#  $ #    *! $$ B *! ( ) * $  $) $    + <2 <! <2 <! <2 (* ! $, !% -$. !/   CD$ -                  B     %# &'  #(  !    #')#*     # # +#     *  , $   !##    -&#   .   #  $ #     # ! ( &  /    /#( !       #')#  "*   #  $ #     # ! ( &      01 $ $22  ! $  $3   $, !% Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ FRÉTTIR INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir er þriðji utanríkisráðherrann á sex árum sem verður frá vinnu vegna læknisaðgerðar. Síðan haustið 2004 hafa þrír utanríkisráðherrar glímt við erfið veik- indi í embætti, en tveir fyrirrennarar Ingibjargar eru nú stálslegnir. Halldór Ásgrímsson, þáverandi utanrík- isráðherra, gekkst undir aðgerð vegna meins í blöðruhálskirtli 15. október 2002 og var í veik- indaleyfi um nokkurt skeið í kjölfarið. Davíð Oddsson, þáverandi forsætisráðherra, lagðist inn á sjúkrahús 21. júlí 2004 vegna gall- blöðrubólgu. Gallblaðran var fjarlægð og við rannsókn kom í ljós staðbundið æxli í hægra nýra, sem var fjarlægt. 3. ágúst var Davíð skor- inn upp öðru sinni vegna illkynja meins í skjald- kirtli og var hann fjarlægður ásamt nærliggjandi eitlum. 15. september sama ár tók Davíð við emb- ætti utanríkisráðherra og var þá enn undir eft- irliti lækna. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkis- ráðherra, veiktist á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna sl. mánudag og kom í ljós góðkynja mein í höfði. Hún verður eitthvað frá eftir aðgerð. Forverar sigruðust á veikindum Veikindi hafa sett strik í reikninginn hjá þremur utanríkisráðherrum síðan 2002 Halldór Ásgrímsson Davíð Oddsson Ingibjörg Sólrún Gísladóttir NÝSKRÁNINGAR ökutækja á fyrstu 298 dögum ársins, þ.e. frá áramótum til 19. september eru samtals 16.525 en á sama tímabili í fyrra voru 22.878 ökutæki nýskráð hér á landi. Þetta er 27,8% fækkun nýskráninga milli ára. Þessar upplýsingar koma fram í yfirliti sem Umferðarstofa hefur tekið saman yfir nýskráningar öku- tækja og eigendaskipti á tímabilinu. Hafa ber í huga að hér er um að ræða nýskráningu og eigendaskipti allra ökutækja, ekki bara bifreiða. Eigendaskipti ökutækja á sama tímabili þessa árs eru 63.969 en þau voru 76.592 eftir jafnmarga skrán- ingardaga á síðasta ári. Hlutfallsleg fækkun eigendaskipta nemur 16,5% milli ára. Viðsnúningur varð á ný- skráningum í vor. egol@mbl.is Morgunblaðið/Ómar Bílar Mjög dauft hefur verið yfir bílasölu hér á landi síðustu mánuði Nýskráning ökutækja dregst saman um 28% Í HNOTSKURN »Fyrstu 74 daga ársins 2008varð mikil aukning á ný- skráningum eða 46,8% borið saman við sama tímabil árið á undan. Það er því ljóst að eftir þann tíma hefur orðið mikill viðsnúningur. NEMENDUR hins nýstofnaða Krikaskóla tóku í gær skóflustungu að nýju húsnæði skólans með plastskóflum sínum. Skólinn er frá- brugðinn öðrum að því leyti að í honum verður boðið upp á nám fyr- ir 1-9 ára gömul börn. Skólinn hef- ur nýhafið fyrsta starfsár sitt og eru nú 45 nemendur í honum á aldr- inum 2-5 ára. Skólinn er staðsettur í Helgafellshverfi en þegar nýja húsnæðið í Krikahverfi verður tek- ið í notkun næsta haust verður nemendunum fjölgað í 200. Að sögn HaraldS Sverrissonar, bæjarstjóra Mosfellsbæjar, er með skólanum verið að samtvinna leik- skólastigið og grunnskólann ásamt því að aðlaga yngsta stig grunn- skólans að þörfum nútímafjöl- skyldna. Börn upp í 4. bekk fái heilsdagsskóla líkt og tíðkist í leik- skólum en tómstundir fléttist inn í skóladaginn. Stefnt er að því að hægt verði að veita slíka þjónustu allt árið um kring fyrir öll börnin. Þrúður Hjelm, skólastjóri Krika- skóla, segist finna fyrir miklum áhuga hjá foreldrum sem fagni því að loks sé í boði úrræði í skóla- málum yngri barna sem henti kröf- um nútímaþjóðfélags. ylfa@mbl.is Skóli frábrugðinn öðrum Skóflustunga tek- in að skóla fyrir 1-9 ára börn Morgunblaðið/Valdís Thor

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.