Morgunblaðið - 26.09.2008, Síða 12
12 FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eftir Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
TEKJUR Orkuveitu Reykjavíkur
(OR) munu aukast um 500 milljónir
á ári vegna 9,7% hækkunar á gjald-
skrá fyrir heitt vatn sem kynnt var í
fyrradag. Helstu ástæðurnar fyrir
hækkuninni voru sagðar vera bygg-
ing nýrrar varmastöðvar á Hellis-
heiði og lagning nýrrar hitaveitu-
lagnar þaðan auk kostnaðarhækk-
ana.
OR stendur í kostnaðarsömum
framkvæmdum við hitaveitukerfi
víða á Suðvesturlandi og fleiri
standa fyrir dyrum. Sú dýrasta er
fyrrnefnd varmastöð og hitaveitu-
lögn þaðan og að höfuðborgarsvæð-
inu en samtals er reiknað með að
kostnaður nemi um 13 milljörðum
króna. Þá er verið að endurnýja, í
hlutum, hitaveitulögn frá Deild-
artunguhver til Akraness.
Að sögn Eiríks Hjálmarssonar,
upplýsingafulltrúa OR, er áætlað að
kostnaður við endurnýjun á hita-
veitulögninni frá Deildartunguhver
– sem er 70 km löng og sú lengsta í
heimi – verði um 1-2 milljarðar
króna. Eiríkur segir að lögnin sé illa
farin á köflum og bili oftar en hægt
sé að sætta sig við. Framkvæmdir
hafi gengið hægar en menn hafi vilj-
að þar sem fyrirtækið sem á lögnina,
Hitaveita Akraness og Borg-
arfjarðar, sé að hluta til í eigu rík-
isins og ríkið hafi ekki viljað ábyrgj-
ast lán til framkvæmdanna. Nú sé
málið að leysast því stjórn OR hafi á
föstudag samþykkt að kaupa 20%
eignarhlut ríkisins á 150 milljónir.
Eiríkur bendir á að lagnakerfi
vegna hitaveitu á höfuðborgarsvæð-
inu sé um 2.000 kílómetrar. Því þurfi
að halda við og undanfarið hafi verð
á hráefnum til þess, stál, plast og
fleira hækkað mjög. Heimsmark-
aðsverð á þessum vörum hafi nánast
tvöfaldast. „Og þá á eftir að bæta
gengisfallinu við,“ sagði Eiríkur.
Ekki mikil kauphækkun
Um leið og krónufallið hefur
hækkað verð á aðföngum hefur það
valdið því að erlendar skuldir Orku-
veitunnar hafa rokið upp um hvorki
meira né minna en 42 milljarða
fyrstu sex mánuði ársins og eru enn
meiri nú. Tapið er jafnóðum fært í
bækurnar en lagist gengið mun út-
koman batna.
Um leið og Orkuveitan kynnti
gjaldskrárhækkunina var bent á að
verðið hefði ekki breyst frá því það
var lækkað árið 2005. Síðan hefði
byggingarvísitala hækkað um 41%
og vísitala neysluverðs um 29% en
hækkun heita vatnsins er 9,7%.
Í kvöldfréttum Ríkissjónvarpsins
í fyrradag sagði Guðmundur Gunn-
arsson, formaður Rafiðnaðarsam-
bands Íslands, að hækkun á heitu
vatni jafngilti tilboði um launahækk-
un. „Ég er ekki viss um að rafiðn-
aðarmennirnir hér væru sáttir við
það að laun þeirra væru tengd gjald-
skrá heits vatns. Kaupið þeirra hefði
ekki hækkað mjög mikið upp á síð-
kastið,“ sagði Eiríkur um þau orð.
Eftir Unu Sighvatsdóttur
una@mbl.is
PALESTÍNSKU flóttafjölskyld-
urnar á Akranesi fengu á miðviku-
dag kærkomna gjöf frá félaginu Ís-
land-Palestína og Félagi múslima á
Íslandi. Safnað hafði verið fyrir
gervihnattamóttökurum fyrir sjón-
varp auk sex gervihnattadiska og
var hverri fjölskyldu afhentur einn
móttakari til að tengja á nýju heim-
ilunum á Akranesi.
„Við fréttum, að eitt það fyrsta
sem þessar konur hefðu spurt um,
hefði verið hvernig þær gætu náð
gervihnattasambandi til að geta í
gegnum sjónvarp verið í tengslum
við fréttir og menningu í sínum
heimshluta,“ segir Sveinn Rúnar
Hauksson, formaður félagsins Ís-
land-Palestína. „Og þegar fyrsta
peningaumslagið kom til þeirra
spurðu þær einmitt hvar þær gætu
keypt gervihnattadisk en Linda
Björk, verkefnisstjóri Rauða kross-
ins á Akranesi, bað þær þá aðeins að
hinkra því það væri kannski von á
því að þetta kæmi gefins.“ Var gjöf-
unum að vonum tekið fagnandi.
Í tilefni gjafanna og til að fagna
komu hópsins hingað slógu Ísland-
Palestína og Félag múslima til kaffi-
veislu í húsnæði Rauða krossins á
Akranesi. „Við erum glöð og þakklát
fyrir að þessi hópur er kominn til Ís-
lands og við viljum bara gera allt til
að auðvelda þeim dvölina og aðlögun
að umhverfinu hér.“
Íslenskur og palestínskur menn-
ingarheimur blönduðust líka prýði-
lega í veislunni á miðvikudag, þar
sem flóttafólkið gæddi sér á pönnu-
kökum og hnallþórum og dansaði á
eftir þjóðdansinn dabka fyrir veislu-
gesti. „Þau dönsuðu og við sungum
öll í kór og þetta var mjög skemmti-
legt,“ segir Sveinn að lokum.
Flóttafólkið fékk gervihnattadisk til
að geta fylgst með heimahögunum
Vinagjöf Sveinn Rúnar Hauksson og Salmann Tamimi afhentu palestínsku
fjölskyldunum gervihnattadiskana langþráðu við mikinn fögnuð
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
HÆSTIRÉTTUR hefur dæmt fer-
tugan karlmann í fimmtán mánaða
fangelsi fyrir nauðgun, en frestað
fullnustu tólf mánaða refsingarinn-
ar. Maðurinn nýtti sér ölvun og
svefndrunga konu til að hafa við
hana samfarir. Það var í ágúst árið
2003. Maðurinn var einnig dæmdur
til að greiða fórnarlambi sínu 600
þúsund kr. í miskabætur.
Konan fór í samkvæmi hjá mann-
inum um hádegisbil á sunnudegi
ásamt fleira fólki. Hún neytti bæði
áfengis og vímuefna. Síðdegis þann
dag lenti hún í óminnisástandi og
vaknaði ekki af því fyrr en um kvöld-
ið. Þá var hún nær nakin uppi í rúmi
mannsins, og hann að klæða sig í föt.
Hún gerði sér strax grein fyrir að
maðurinn hafði haft við hana sam-
farir, en ræddi það ekki við hann.
Hún spurði um fólkið sem var í sam-
kvæminu og hélt í kjölfarið sína leið.
Sama kvöld fór hún í skoðun á neyð-
armóttöku.
Konunni leið mjög illa eftir at-
burðinn og dvaldist m.a. eina viku á
áfengis- og geðdeild Landspítala. Í
kjölfar dvalarinnar lagði hún fram
kæru.
Féll á lífsýninu
Maðurinn neitaði staðfastlega sök
frá upphafi og samþykkti að tekið
yrði lífsýni úr munnholi hans til að
sanna sýknu. Niðurstaða úr rann-
sókn lífsýna, en lífsýni fannst í leg-
göngum konunnar við skoðun á
neyðarmóttöku, leiddi til þess að
maðurinn var sakfelldur.
Við ákvörðun refsingar var m.a.
litið til þess hversu mikill dráttur
varð á málinu. Maðurinn var ekki
dæmdur í héraði fyrr en í nóvember
á síðasta ári. Ákærði flutti til Dan-
merkur og reyndist um tíma erfitt að
ná í hann. Í dómi Hæstaréttar segir
þó, að viðleitni lögreglu hafi verið
stopul og ómarkviss. „Eftir að nið-
urstaða rannsóknar í Noregi lá fyrir
[í apríl 2004] var fullt tilefni fyrir lög-
reglu til að beita úrræðum, sem hún
hefur tiltæk með alþjóðasamvinnu,
til að finna ákærða og handtaka hann
ef þyrfti til að geta lokið rannsókn
málsins og senda það ákæruvaldinu
til ákvörðunar um ákæru.“
Lögregluskýrsla var tekin af
manninum nokkrum mánuðum eftir
nauðgunina. Eftir að niðurstaða úr
lífsýnarannsókninni lá fyrir tókst
ekki að hafa uppi á manninum fyrr
en í mars 2007.
Seinagangur
lögreglunnar
gagnrýndur
Maður dæmdur fyrir nauðgun sem
hann framdi fyrir rúmum fimm árum
Morgunblaðið/SverrirÝmsar fjárfestingar Orkuveitu Reykjavíkur undanfarin ár, sem ekki tengjast
grunnstarfsemi fyrirtækisins beinlínis, hafa verið töluvert gagnrýndar.
Glæsilegar höfuðstöðvar Orkuveitunnar og tengdar byggingar við Bæjar-
háls kostuðu 5,8 milljarða samkvæmt áætlun um áramótin 2005 og 2006 og fór
kostnaður verulega fram úr áætlunum. Lægstu tölur sýndu 500–600 milljóna
framúrkeyrslu, aðrar áætlanir sýndu að framúrkeyrsla nam 1–1,6 milljarði en
einnig var bent á að kostnaðurinn hefði verið um fjórum milljörðum meiri en
upphaflega var kynnt, tæplega 6 milljarðar í stað 2,1 milljarðs. Það athugist að
þetta er á verðlagi 2005/2006.
Eiríkur Hjálmarsson upplýsingafulltrúi segir að með því að sameina starfs-
menn Orkuveitunnar í eitt hús hafi náðst mikil hagræðing sem hafi valdið því
að þörf fyrir gjaldskrárhækkanir hafi verið minni en ella.
Milljarðafjárfesting í Línu.net og síðan Gagnaveitu Reykjavíkur hefur sömu-
leiðis mjög verið gagnrýnd. Samkvæmt verðmati tveggja banka á Gagnaveit-
unni árið 2007 (sem ekki var gert opinbert) voru verðmæti fyrirtækisins um 10
milljarðar. Samkvæmt upplýsingum frá Gagnaveitunni var 119 milljóna hagn-
aður í fyrra. Skuld fyrirtækisins við Orkuveituna nam þá 3,3 milljörðum. Um
er að ræða erlent myntkörfulán sem hefur hækkað verulega síðan þá.
Þá voru 30 milljónir lagðar í risarækjueldið. Þeir fjármunir skiluðu sér ekki
til baka, skv. upplýsingum frá Orkuveitunni.
Græddur er geymdur eyrir …
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
hefur dæmt 39 ára karlmann í þrjá-
tíu daga fangelsi fyrir nytjastuld,
umferðarlagabrot og fíkniefnalaga-
brot. Brot mannsins voru hegning-
arauki en í júní sl. var hann dæmdur
í sex mánaða fangelsi fyrir fíkniefna-
brot.
Maðurinn var sakfelldur fyrir að
nýta sér þrjár bifreiðar í heimildar-
leysi en þær fékk hann til reynslu-
aksturs á mismunandi bílasölum á
höfuðborgarsvæðinu.
Var undir áhrifum
Í stað þess að skila bílunum ók
hann þeim áfram eða þar til lögregla
stöðvaði aksturinn. Í eitt skipti var
hann undir áhrifum fíkniefna við
aksturinn og í annað skipti með
fíkniefni í vörslu sinni.
Honum var jafnframt gert að
greiða 426 þúsund krónur í sakar-
kostnað . andri@mbl.is
Skilaði ekki
bílunum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Framkvæmdir Heitavatnslögnin frá Hellisheiðarvirkjun verður um 18,5 km. Hún verður neðanjarðar.
OR vantar meira fé
Tekjur Orkuveitunnar aukast um 500 milljónir vegna
hækkunar á gjaldskrá Framkvæma fyrir milljarða
HÆSTIRÉTTUR staðfesti í gær
gæsluvarðhald yfir karlmanni á fer-
tugsaldri og tvítugri konu. Þau eru
grunuð um að hafa brotist inn í hús-
næði á Akureyri og hafst þar við um
tíma. Einnig eru þau grunuð um að
hafa brotist inn í sumarbústaði á
Norðurlandi. Ef varðhaldið hefði
ekki verið framlengt, hefðu þau losn-
að þau út í dag.
Fólkið hefur hafst við á Akureyri í
fjórar til fimm vikur og, samkvæmt
greinargerð lögreglustjóra, án sam-
anstaðar eða atvinnu. Hætta var tal-
in á að þau yfirgæfu landið áður en
rannsókn lyki og því nauðsynlegt að
halda þeim í gæslu. Fólkinu hefur
einnig verið vísað út úr verslunum í
bænum vegna gruns um þjófnaði.
andri@mbl.is
Hústökufólk á Akureyri
áfram í gæsluvarðhaldi