Morgunblaðið - 26.09.2008, Síða 21

Morgunblaðið - 26.09.2008, Síða 21
„Ég veit fyrir víst að rjómaísinn í bókinni var aðalið hennar,“ segir Sólveig og leysir blaðamann út með þremur klassískum eftirréttum frá hússtjórnardeild Kvennaskólans í Reykjavík frá þriðja áratug síðustu aldar, m.a. ísnum fræga. Rjómaís fyrir 16 manns 1½ lítri rjómi 1½ vanillustöng 18 eggjarauður 375 g sykur Eða sama uppskrift fyrir fjóra: 7-8 dl rjómi 1 vanillustöng 4 eggjarauður 220 g sykur Eggjarauðurnar, sykurinn og kornin úr vanillustönginni eru þeytt- ar vel saman og síðan hrært varlega saman við stífþeyttan rjóma. Sett í ísmót og fryst. Lýsingin á frystingunni í mat- reiðslubókinni er eftirfarandi: Ísinn er mulinn og látið eitt lag af ísnum í bala eða annað ílát sem á að frysta í. Þá er látið annað lag af salti og gott er að láta svolítið af saltpétri saman við því þá frýs fyr. Mótið með ískreminu er látið þarna ofan á og utan með því og ofan á það er látið sitt lagið af hverju ís og salti. Fryst í 2-3 klst. Appelsínufromage 2,5 dl rjómi 3 appelsínur safi úr einni sítrónu 100 g sykur 3 egg 2 msk. hvítt vín 6 blöð af matarlími Rjóminn þeyttur, eggjahvítur þeyttar. Matarlímið lagt í bleyti og brætt yfir gufu. Sykur og eggjarauð- ur er þeytt vel saman þangað til blandan verður létt og ljós. Safanum af appelsínum og sítrónu er blandað saman við auk vínsins í. Matarlím- inu, fingurvolgu, er hellt varlega saman við. Síðast er rjómanum og stífþeyttum eggjahvítunum blandað varlega saman við. Hellt í glerskál og skreytt með appelsínusneiðum og þeyttum rjóma. Flauelsgrautur 1 lítri mjólk 100 g smjör 1 dl hveiti 1 tsk salt kanilsykur mjólk eða saft Mjólkin er hituð að suðu. Smjörið er brætt í potti og hveitinu hrært út í. Mjólkinni er helt varlega yfir smjörblönduna og hrært vel í. Grauturinn þarf að sjóða litla stund og saltaður eftir þörfum. Hann er borinn fram með kan- ilsykri og mjólk og saftblöndu. Sýningin Reykvíska eldhúsið – matur og mannlíf í hundrað ár er haldin í Aðalstræti 10 og verður Sólveig með leiðsögn um hana á fimmtudagskvöldum. Ráðstefnan Af hlaðborði aldar- innar: Áfangar og áræði í íslenskri matarmenningu er haldin í Iðnó laugardaginn 27. september frá kl. 14-17. Þá varð fólk að fá uppá- skrifaðan sérstakan ávaxtalyfseðil hjá lækni, sem síðan var farið með í Grænmetisverslun ríkisins og hann leystur út. ferðalög MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 2008 21 VINNUVÉLAR Glæsilegt sérblað um vinnuvélar, jeppa, atvinnubíla, fjölskyldubíla o.fl. fylgir Morgunblaðinu föstudaginn 3. október. Meðal efnis er: • Vinnuvélar, það nýjasta á markaðnum. • Atvinnubílar. • Fjölskyldubílar. • Pallbílar. • Jeppar. • Fjórhjól. • Verkstæði fyrir vinnuvélar. • Varahlutir. • Græjur í bílana. • Vinnulyftur og fleira. • Dekk. • Vinnufatnaður fyrir veturinn. • Hreyfing og slökun gegn daglegu álagi og áreiti. Allar nánari upplýsingar veitir Katrín Theódórsdóttir í síma 569 1105 eða kata@mbl.is. Ásamt fullt af öðru spennandi efni og fróðleiksmolum. Auglýsendur! Pantið fyrir klukkan 16, mánudaginn 27. september. Pétur Beinteinsson var eitt afGrafardalssystkinum, sem öll voru skáldmælt. Hann dó úr berklum aðeins 36 ára gamall. Ekki fór hjá því, að veikindi hans mörkuðu skáldskap hans síðustu misserin: Hvar sem visnar vegleg grein verður grátinn skaðinn en þó að falli ein og ein önnur vex í staðinn. Þessi staka ber yfirskriftina Í kirkjugarðinum: Ég er hér að moka mold; munar nokkru að sinni að það sé mitt eigið hold sem er á skóflu minni. Pétur orti á Vífilsstaðahæli vorið 1941 rösku ári fyrir andlát sitt: Hér er allt í ljósbleikt lín lagt í dauðans álfu; en brokið heima blöðin sín ber nú græn að hálfu. Ólafur Vigfússon, verkamaður í Reykjavík, orti: Ýmsum hindrun utan töf auðnuleysið sendi lífið þó sé lukkugjöf lausnarans frá hendi. Sólveig frá Niku orti á fyrsta degi Írlandsferðar sinnar: Þessi dagur á þrefalt hól og þar með góða signing. Fyrst kom rigning, svo kom sól og svo kom aftur rigning. VÍSNAHORNIÐ pebl@mbl.is Vísur um veður og veikindi Helsinkibúar hristagjarnan hausinn ogverða eitt spurning- armerki á svip þegar þeir eru spurðir hvar Alvar Aalto-húsið sé að finna. „Ha, er það til sýn- is?“ virðist vera viðkvæðið. Í rólegri og gróinni íbúagötu í Munkkiniemi-hverfinu í Hels- inki leynist engu að síður ein- býlishús Alvars Aaltos og er opið almenningi. Engin skilti vísa veginn og einungis lítið veggspjald á múrveggnum við framgarð hússins gefur gest- inum til kynna að hann sé kom- inn á réttan stað. Ekki mega heldur nema 20 dvelja í húsinu í einu. Hér er greinilega allt á lágstemmdum nótum, en það var ekki fyrr en 2002 sem húsið var gert að safni. Árið 1934 fengu hjónin Aino og Alvar Aalto úthlutaða lóð í Munkkiniemi, sem þá var skógi vaxið og lítt byggt svæði. Þar reistu þau hús, sem ætlað var að gegna hlutverki vinnustofu og heimilis, með skýrri skiptingu þar á milli. Bygg- ingu var lokið 1936 og í húsinu bjó arkitektinn til dauðadags, 1976, þótt vinnu- stofan væri færð annað tuttugu árum fyrr. Gluggar hússins bera með sér skýrar vísanir í fúnkisstefnuna, en klæðning íbúðarhlutans er úr dökklitum viðarfjölum og suðursvalir yfir græn og gróin svæði eru friðsælt útsýnisrými. Merki um rómantískari nálgun við fúnkis- stefnuna eru líka sjáanleg, t.d. mikil viðarnotkun, og það er einkar gaman að sjá hversu vel húsið, innréttingar og húsgögnin hafa varðveist þrátt fyrir ára- tuga notkun. Húsgögnin og munirnir eru velflestir hannaðir af Alvar Alto, Aino og svo seinni eiginkonu hans Elissu Alto – sumir munirnir hafa fyrir margt löngu öðlast fastan sess í hönnunarsögunni, aðrir eru frumgerðir sem ekki fóru í frekari framleiðslu. Aalto-húsið er um margt eins konar forveri Villa Mairea, glæsilegrar bygg- ingar sem arkitektinn hannaði fyrir vini sína Marie og Harry Gullichsen. Aalto- húsið þykir hins vegar öllu hlýlegra og persónulegra, enda hannað af arkitekta- hjónunum fyrir sig sjálf úr einföldum, íburðarlitlum efnivið. annaei@mbl.is Morgunblaðið/Anna Sigríður Úr stofunni Húsgögn eru flest hönnuð af Alvar, Aino og Elissu Aalto. Á heimili Aaltos Aalto-húsið Riihitie 20 sími: 00358 (0)9 481 350 riihitie@alvaraalto.fi | www.alvaraalto.fi Gróðursælt Húsið var byggt á fjórða ára- tugnum á skógivöxnu svæði.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.