Morgunblaðið - 26.09.2008, Page 23

Morgunblaðið - 26.09.2008, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 2008 23 MINNINGAR NÆSTA sunnudag, hinn 28. september, verður alþjóðlegi hjartadagurinn haldinn hátíðlegur. Þema hjartadagsins þetta árið er spurning um það hvort þú þekkir þína áhættu þegar kemur að hjarta- eða æða- sjúkdómum. Staðan er þannig að ég heyri fréttir, nánast í hverri viku, af fólki á besta aldri sem deyr í kjölfar hjartaáfalls. Ár- lega látast um 700 Ís- lendingar af völdum hjarta- eða æða- sjúkdóma eða 40% þeirra sem látast á hverju ári. Þessi staða minnir okkur á að það skiptir máli, og getur reyndar bjargað lífi okkar, að panta okkur tíma hjá sérfræðingi og láta kanna blóðsykur, kólesteról, finna út þyngdarstuðul og mæla blóðþrýsting. Það er nefnilega nauðsynlegt að þekkja gildin okkar þótt við kennum okkur einskis meins. Það skal hins vegar tekið fram að það að fara í skoðun er ekki endilega trygging fyr- ir því að hjartað geti ekki bilað en gera má ráð fyrir að slíkar ráðstafanir auki verulega líkur á að fyrr komist upp um hjarta- eða æðasjúkdóm. Fleira kemur þó til en að þekkja líkama sinn. Þegar ég fékk hjarta- áfall fyrir fimm og hálfu ári var ég 37 ára gam- all. Afi minn hafði feng- ið hjartaáfall sjötíu og fjögurra ára og dáið. Amma mín hafði farið í hjartaskurðaðgerð 64 ára en samt leit ég aldr- ei svo á að það væri veruleg saga um hjarta- eða krans- æðasjúkdóma í ættinni. Fólk var bara að eldast og eitthvað hlaut þá að koma upp. Það merkilega gerð- ist þó að um einu og hálfu ári eftir mitt hjartaáfall fékk pabbi minn vægt hjartaáfall en vegna þess að þá var farin að myndast fjölskyldusaga var ekki tek- in nein áhætta varðandi hann, brugð- ist var skjótt við og slapp hann því nokkuð vel eða með hjartaþræðingu og sett var stoðnet í kransæð. Móð- urbróðir minn fór um svipað leyti í opna hjartaskurðaðgerð. Í lok árs 2006 fór bróðir minn, þá 32 ára, í hjartarannsókn, án þess að kenna sér nokkurs meins, en fjölskyldan var orðin ansi uggandi vegna þessarar sögu sem virtist koma meira og meira í ljós, og viti menn; 15 til 20% þreng- ingar voru í sömu æð og stíflaðist hjá mér. Hann fór tímanlega í rannsókn, fékk lyf og því varð enginn skaði. Skyndilega var fjölskyldusaga okkar farin að taka á sig allverulega breytta mynd frá því ég veiktist árið 2003. En sögunni var ekki lokið því pabbi minn fékk annað hjartaáfall og alvar- legra um páskahelgina 2007. Að hans sögn var aðdragandinn stuttur og hann hafði ekki fundið fyrir óþæg- indum fyrr en síðustu dagana fyrir áfallið. Hann hafði þá notað sprengi- töflur og gaf verkurinn eftir og því taldi hann ekki að um hættu væri að ræða. Aðfaranótt páskadags eftir um klukkustundar svefn kom verkurinn í brjóstið og leiddi út í handlegg, ógleði og slappleiki. Fyrsta sprengitaflan virkaði ekki og það var ekkert annað að gera en að hringja í 112. Hann var reyndar staddur uppi í sumarbústað svo það var ekki annað hægt fyrir konuna hans en að rjúka með hann út í bíl og keyra á móti sjúkrabílnum. Við hjartaþræðingu kom í ljós að 90% lokun var á slæmum stað í kransæð. Ef hún hefði lokast hefði hann dáið. Svona er þetta nú knappt stundum og það er örstutt lína sem liggur milli lífs og dauða. En af honum pabba mínum er allt gott að frétta, hann fór í hjáveituað- gerð (bypass) í kjölfarið sem gekk vel. Þökk sé skjótum viðbrögðum. Manni bregður illilega við svona uppákomur og þrátt fyrir fjöl- skyldusögu og fyrri sögu einstaklings verður maður hræddur þegar lífi ná- komins ættingja er ógnað með jafn- skýrum hætti. Þetta minnir okkur líka öll á að brjóstverkir eða hjartaverkir eru dauðans alvara og þá ber að taka grafalvarlega og það strax, líf þitt eða þinna nánustu getur oltið á við- brögðum þínum. Taktu ábyrga afstöðu, þekktu þína áhættu og eigðu gott hjartalíf alla ævi. Hver er þín áhætta? Björn Ófeigsson brýnir fyrir fólki að taka brjóstverki al- varlega Björn Ófeigsson » Árlega látast um 700 Ís- lendingar af völdum hjarta- eða æðasjúk- dóma eða 40% þeirra sem lát- ast á hverju ári. Höfundur er hjartasjúklingur og heldur úti heimasíðunni hjartalíf.is ✝ Guðrún Aðal-heiður Arn- finnsdóttir fæddist á Vestra-Miðfelli á Hvalfjarðarströnd 3. mars 1921. Hún lést á Dvalarheim- ilinu Höfða á Akra- nesi sunnudaginn 21. september síð- astliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Arnfinnur Scheving Björnsson, bóndi á Vestra-Miðfelli og skipasmiður á Akranesi, f. 1893, d. 1970, og Ragnheiður Jónasdóttir, hús- móðir á Vestra-Miðfelli og Vest- urgötu 96 á Akranesi, f. 1891, d. 1984. Systkini Aðalheiðar eru: a) Björn Scheving, f. 13. ágúst 1918, d. 1990, b) Guðrún Lára, f. 28. des. 1919, c) Sigríður, f. 20. júní 1922, d. 2006, d) Ásdís, f. 20. mars 1924, d. 2004, e) Jónas Scheving, f. 16. nóv. 1925, f) Grétar Scheving, f. 18. maí 1927, d. 1927, g) Arnfinn- ur Scheving, f. 12. maí 1929, h) Margrét, f. 27. nóv. 1930, og i) Ragnar Scheving, f. 9. júní 1932, d. 1992. Hinn 21. desember 1940 giftist Aðalheiður Hallvarði Einvarðs- syni, vélstjóra og sjómanni, f. á Akranesi 7. nóv. 1916, d. 16. des. 1962. Börn þeirra eru: a) Ragnar, f. 4. okt. 1940. b) Guðrún, f. 31. ágúst 1942, maki (skilin) Sigurjón Þór Hannesson, börn þeirra eru Hannes, Aðalheiður Halla og Ing- valdur Þór. c) Jón Sævar, f. 4. júlí 1946, maki Jóhanna Arnbergs- dóttir, börn þeirra eru Berglind Halla, Hallvarður og Aðal- heiður. d) Arnheið- ur, f. 15. des. 1948, d. 31. des. 1953. e) Halla Guðrún, f. 23. jan. 1953, maki 1 (skilin) Níels Óskar Jónsson, börn þeirra eru Sigrún, Hallvarður og Heiða Rós. Maki 2 Ásgeir Samúelsson. f) Arnfinnur, f. 7. nóv. 1955, maki Guðrún Berta Guðsteinsdóttir, synir þeirra eru Guðsteinn Viðar, Heiðar og Arnar. g) Einvarður, f. 27. apríl 1962, maki (skilin) Ragn- heiður D. Dagbjartsdóttir, dætur þeirra eru Aðalheiður Rut og Eva Marín. Aðalheiður ólst upp á Vestra- Miðfelli á Hvalfjarðarströnd og ung að árum flutti hún út á Akra- nes. Hún fór til Reykjavíkur að læra saumaskap og var alla tíð mikil sauma- og hannyrðakona. Árið 1940 byggðu Aðalheiður og Hallvarður sér hús á Vesturgötu 87 og bjó hún þar allt til ársins 1983. Þá minnkaði hún við sig og flutti í blokkaríbúð á Einigrund og síðar á Skarðsbraut. Frá árinu 2005 bjó hún á Dvalarheimilinu Höfða. Eftir lát Hallvarðar vann Aðalheiður við verslunarstörf, fiskvinnslu og síðustu starfsárin í þvottahúsi Sjúkrahúss Akraness. Útför Aðalheiðar fer fram frá Akraneskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 14. Nú hefur Alla amma kvatt og eftir sitja minningar um góða og skemmtilega konu, sem lét fátt setja sig út af laginu. Amma kynntist afa ung að árum og eignuðust þau sjö börn. Öll nema eitt lifa móður sína, en það var stúlka sem lést aðeins fimm ára gömul. Afi lést langt um aldur fram, þá 46 ára gamall, og varð amma því ekkja með sex börn og unglinga einungis 41 árs gömul. Með ótrúlegum dugnaði og eljusemi hélt hún hlutunum gangandi. Lífið var henni ekki alltaf auðvelt, en henni fannst gaman að lifa og henni fannst gaman að eldast. Við systkinin munum nú best eftir ömmu eftir að við komumst á ung- lingsár. Við munum eftir jólunum á Vesturgötunni þar sem alltaf var spiluð vist og drukkið heitt súkku- laði. Við vildum kalla þetta kakó en það mátti ekki. Þetta var heitt súkkulaði og við skiljum núna að það er stór munur þar á. Við munum eft- ir því þegar hún var í bílatímum og tók bílprófið 62 ára gömul. Við vor- um ótrúlega stolt af henni. Hún þeysti um Akranes og nágranna- sveitir, frjáls eins og fuglinn. Þegar hún hætti að keyra var hún montin yfir því að hafa verið tjónlaus allan tímann. Við munum eftir henni hlæj- andi ásamt systrum sínum við eld- húsborðið hjá foreldrum okkar. Þær töluðu allar hátt og mikið og slógu svo kröftuglega í borðið til að leggja áherslu á mál sitt, að kaffibollarnir hoppuðu. Við munum eftir því þegar amma fór til Spánar og Júgóslavíu. Við fengum send falleg kort og fínar gjafir þegar hún kom heim. Við munum eftir ömmu saumandi og prjónandi og gerði hún voða fallega hluti sem hún bæði seldi og gaf. Við munum líka eftir sögunni um hvern- ig amma byrjaði að reykja. Þær systur höfðu laumað sér út í hænsnakofa til að reykja í laumi. Þegar þær komu inn aftur spurði mamma þeirra hvar þær hefðu verið og sögðust þær hafa verið í kofan- um. Langamma varð fljót til og spurði hvort hænurnar væru byrj- aðar að reykja. Amma var með ólæknandi veiði- dellu. Þær voru ófáar ferðirnar sem hún fór á Súkkunni með vinkonur sínar upp í Borgarfjörð til að veiða, eða til að heimsækja ættingja. Það var fyrir þremur árum að við fórum með ömmu í síðustu veiðiferðina. Heilsunni var þá farið að hraka. Þegar við komum á Seleyrina var spennan svo mikil hjá henni að við sáum undir iljarnar á henni. Pabbi var með okkur í þessari ferð og heyrðist í honum „hvert er konan að æða“. Þegar við fundum svo rétta staðinn var kastað og kastað, en lítið var að gerast. Amma sló þó öllum við og veiddi vænan fisk, en hún var ekkert að kalla eftir hjálp. Hún dró hann sjálf upp í fjöru, en snerpan var ekki alveg sú sama og áður. Hún missti fiskinn aftur út í og varð hún voðalega svekkt. Amma var ánægð með að vera komin inn á Dvalarheimilið Höfða og sagði að það væri sko ekki hægt ann- að. En því miður fór fljótlega að halla undan fæti hjá henni eftir að þangað var komið og hafa síðastliðin tvö ár verið henni erfið. Þegar kallið kom var hún alveg tilbúin. Hún var södd lífdaga. Við erum ákaflega stolt af því að hafa átt hana fyrir ömmu. Takk fyrir allt, Berglind Halla, Hallvarður og Aðalheiður. Guðrún Aðalheiður Arnfinnsdóttir FYRIR nokkrum ár- um gengu mörg sveit- arfélög í gegnum mikla fjárhagserfiðleika sem síst voru til þess fallnir að vekja íbúum þeirra trú á framtíð þeirra og möguleika. Oft var um að ræða sveitarfélög sem höfðu leitast við að sinna vel lögbund- inni þjónustu við íbúana. Fækkun íbúa, m.a. vegna breyttra atvinnu- hátta og of lág framlög Jöfn- unarsjóðs sveitarfélaga orsökuðu fjárhagslegt ójafnvægi sem gróf undan samfélagsstoðum. Listi sveit- arfélaganna sem eftirlitsnefnd um fjármál sveitarfélaga birti var því bæði langur og ljótur. Sú ákvörðun ríkisstjórnar að leggja Jöfnunarsjóði til sérstakt aukaframlag, 1400 millj. kr., var því afar mikilvægt skref til að rétta við hag þeirra sveitarfélaga sem verst höfðu orðið úti og gera þeim kleift að takast á við fortíðarvanda sinn. Við úthlutun þessa fjár hefur líka skipt máli að tekið hefur verið tillit til þess hvort um sameinuð sveit- arfélög er að ræða. Sameining sveitarfélaga er fjárhagslega íþyngjandi á meðan verið er að end- urskipuleggja stjórn- kerfið og jafna þá þjónustu sem íbúum er boðin. Minni kvóti, minni þjónusta Allt framansagt á við um Dalvíkurbyggð. Sameinað sveitarfélag með metnað til að byggja upp trausta grunngerð og góða þjónustu. Sveitarfélag sem hefur þurft að takast á við sveiflur í sjávarútvegi og landbún- aði vegna breyttra atvinnuhátta. Tekjur Dalvíkurbyggðar af sér- stöku aukaframlagi í Jöfnunarsjóð eru því afar mikilvægar. Það sem vekur sérstakar áhyggj- ur nú er að á sama tíma og þetta sérstaka framlag kann að hverfa út úr tekjugrunni sveitarfélagsins þarf það að glíma bótalítið við þorsk- niðurskurð. Ekki þarf að fjölyrða hve illa sá niðurskurður bitnar á tekjum sveitarfélags sem byggist að svo stórum hluta á fiskvinnslu, þar sem þorskur hefur verið uppi- staðan. Á meðan glímt er við afleið- ingar kvótaniðurskurðar er mik- ilvægt að ríkisvaldið dragi ekki til baka stuðning sem felst í auka- framlagi í Jöfnunarsjóð. Sveitarfélögin eru besti farveg- urinn fyrir jákvæða byggðastefnu. Fjárhagserfiðleikar þeirra draga úr grunnþjónusta við íbúana og fjölga þeim brestum sem eru í búsetu á landsbyggðinni. Þegar kjaraskerð- ing fjölskyldna vegna ójafnvægis í efnahagslífinu er fyrirséð er besta leiðin til að mæta þeim sem síst mega við slíku að treysta fjárhag sveitarfélaganna. Þau sjá um alla grunnþjónustu við íbúana og eru því mikilvægasti farvegur jöfnunar- aðgerða. Við þessar aðstæður hlýt- ur ríkisvaldið að framlengja auka- framlagið og leggja sveitarfélögunum þannig lið í glím- unni við afleiðingar þorskn- iðurskurðar og kjaraskerðingar fjölskyldanna. Annað væri slæmt afturhvarf til fortíðar. Lærum af reynslunni. Afturhvarf til fortíðar að afnema aukaframlag í Jöfnunarsjóð Svanfríður I. Jón- asdóttir skrifar um jöfnunarsjóð sveit- arfélaga Svanfríður I. Jónasdóttir » Á meðan glímt er við afleiðingar kvótanið- urskurðar er mikilvægt að ríkisvaldið dragi ekki til baka stuðning sem felst í aukaframlagi í Jöfnunarsjóð. Höfundur er bæjarstjóri í Dalvíkurbyggð. Morgunblaðið birtir minningargreinar alla útgáfudagana. Skilafrestur | Ef birta á minningargrein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins til- tekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skila- frestur rennur út. Myndir | Ef mynd hefur birst í tilkynningu er hún sjálfkrafa notuð með minningargrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja mynd er ráðlegt að senda hana á myndamóttöku: pix@mbl.is og láta umsjónarmenn minningar- greina vita. MinningargreinarMORGUNBLAÐIÐ birtir alla útgáfudaga aðsendar umræðugreinar frá lesendum. Blaðið áskilur sér rétt til að hafna greinum, stytta texta í samráði við höfunda og ákveða hvort grein birtist í umræðunni, í bréfum til blaðsins eða á vefnum mbl.is. Blaðið birtir ekki greinar, sem eru skrif- aðar fyrst og fremst til að kynna starfsemi einstakra stofnana, fyrirtækja eða samtaka eða til að kynna viðburði, svo sem fundi og ráðstefnur. Innsendikerfið Þeir sem þurfa að senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Formið er undir liðnum „Senda inn efni“ ofarlega á forsíðu mbl.is. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Ekki er lengur tekið við greinum sem sendar eru í tölvupósti. Móttaka aðsendra greina

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.