Morgunblaðið - 26.09.2008, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 26.09.2008, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 2008 25 ✝ Sigurður Gísla-son fæddist í Reykjavík 8. ágúst 1943. Hann lést á Landspítalanum við Hringbraut 19. september síðastlið- inn. Hann var sonur hjónanna Gísla Friðriks Jóhanns- sonar, f. 22. janúar 1906, d. 4. nóvem- ber 1980, og Jónu Margrétar Krist- jánsdóttur, f. 13. janúar 1915, d. 2. janúar 1971. Systkini Sigurðar eru Ellý, f. 24. ágúst 1945, og Jóhanna, f. 14. júní 1951. Hálfsystkini Sig- urðar samfeðra eru Haukur, f. 20. gift Einari Mathiesen. Þeirra börn eru Lára, f. 27. desember 1985, og Tryggvi, f. 14. október 1988. Sigurður ólst upp í Hlíðunum og Bústaðahverfi í Reykjavík. Hann lauk hefðbundnu barnaskóla- og gagnfræðanámi og verslunarrétt- indi fékk hann frá Verzlunarskóla Íslands. Hann starfaði alla tíð sem verslunarmaður, fyrst hjá A. Jóhannsson og Smith, síðan hjá Þýsk-íslenska, þá Metró og nú síð- ast hjá Byko. Á sínum yngri árum var hann virkur félagi í skáta- hreyfingunni, íþróttafélaginu Vík- ingi bæði sem leikmaður í yngri flokkum og síðar þjálfari og dóm- ari. Hann hafði alla tíð mikinn áhuga á félags- og stjórnmálum og var um tíma virkur félagi í Sjálf- stæðisflokknum. Sigurður verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13. mars 1932, og Soffía Moore, f. 25. mars 1936. Sigurður kvæntist Friðleifi Valtýsdótt- ur, f. 3. febrúar 1943, d. 11. nóvember 1967. Foreldrar hennar voru Svava Tryggvadóttir, f. 20. janúar 1915, d. 14. júlí 1996, og Valtýr Friðriksson, f. 1. júní 1916, d. 6. ágúst 1974. Börn Friðleifar og Sigurðar eru Frið- jón Valtýr, f. 10. desember 1976, og Gísli Friðrik, f. 16. janúar 1981. Fyrir átti Friðleif Svanhildi Jó- hannesdóttur, f. 15. mars 1962, Í dag fer fram frá Bústaðakirkju útför Sigurðar Gíslasonar, verslunar- manns, en hann lést hinn 19. sept- ember. Sigurður var fæddur í Reykjavík 8. ágúst 1943 og var hann eitt þriggja barna þeirra hjóna Gísla Friðriks Jó- hannssonar múrara og Jónu Mar- grétar Kristjánsdóttur húsmóður. Fyrir átti faðir hans tvö börn. Sig- urður fæddist í Reykjavík og átti heima þar alla ævi. Hann fékk hefð- bundið uppeldi eins og það gerðist best hjá íslenskri alþýðufjölskyldu á tímum umbrota og mikilla framfara eftirstríðsáranna. Hann kynntist Friðleifi Valtýsdóttur og giftist henni árið 1967 og gekk þá fimm ára dóttur hennar í föðurstað. Sigurður var hlýr, látlaus og yfir- vegaður maður en jafnframt glaðvær og leitaði ætíð þess að sjá jákvæðu hliðarnar á mönnum og málefnum og jafnframt lagði hann sitt góða til. Hann var sannur og góður Reykvík- ingur sem unni borg sinni mikið og vildi ætíð sóma hennar og veg sem mestan. Sigurður fylgdist jafnan vel með þjóðmálum og hafði sínar fastmótuðu grundvallarskoðanir en var jafn- framt opinn fyrir öllu sem mátti vera til bóta. Hann var einstakur reglu- maður á áfengi og tóbak og ástundaði heilbrigt líferni. Sá sem þessar línur skrifar varð þeirrar gæfu aðnjótandi að koma inn í fjölskyldu Sigurðar og Friðleifar ungur að árum þegar við Svanhildur dóttir þeirra kynntumst. Þá eignað- ist ég vináttu Sigurðar og á þá vin- áttu bar aldrei skugga. Sigurður var sá maður sem með reisn sinni, lagni og ástúð kom mörgum góðum hlutum til leiðar. Það var síðan á vormánuðum síð- asta árs að í ljós kom að hann gekk með ólæknandi krabbamein sem leiddi hann að lokum til dauða. Hann neitaði að gefast upp og barðist áfram af mikilli bjartsýni. Hann vann meðal annars hálfan vinnudag í heilt ár ásamt því að undirgangast erfiða læknismeðferð. En allt kom fyrir ekki og að lokum hafði maðurinn með ljáinn betur. Nú að leiðarlokum er margs að minnast sem ekki er rúm til að skrifa hér en þær minningar geymum við í hjörtum okkar með þakklæti til hans sem veitti okkur hinum svo mikið. Við biðjum honum blessunar Guðs í landi lifenda með þökkum fyrir allt og allt. Einar Mathiesen. Með sorg í hjarta við kveðjum þig elsku afi. Leiðir okkar skilur nú en við vitum að þér verður vel tekið í nýjum heimkynnum. Margs er að minnast sem erfitt er að koma í orð. Við viljum þakka þér fyrir sam- fylgdina og það veganesti sem þú gafst okkur í gegnum samskipti okk- ar. Hin langa þraut er liðin, nú loksins hlauztu friðinn, og allt er orðið rótt, nú sæll er sigur unninn, og sólin björt upp runnin á bak við dimma dauðans nótt. (V. Briem) Minningin um afa og ótal gleði- stundir mun lifa. Lára og Tryggvi. Mig langar að minnast Sigga í nokkrum orðum. Sigga kynntist ég í kringum fimm ára aldur, þegar hann kom inn í líf Leileyar frænku, og eru nú komin rúm 40 ár sem þau hafa átt saman í lífinu. Leiley átti Svönu fyrir þegar hún kynnist Sigga og tók hann henni ávallt sem sinni dóttur, en seinna í líf- inu eignuðust þau síðan tvo drengi. Siggi var mikill áhugamaður um íþróttir og í gegnum hann fékk ég mikinn áhuga á íþróttum og þá að- allega handbolta og kom þá ekkert annað félag til greina en Víkingur og hef ég ávallt haldið með þeim síðan. Í dag er dóttir mín líka komin á fullt í boltann. Þú varst líka á fullu í skátunum á yngri árum og fékk maður að njóta þess að vera með ykkur fjölskyldunni í því líka. Siggi, þú sýndir mikinn styrk í veikindum þínum allt fram á síðasta dag og neitaðir að gefast upp. Nú hefur þú fengið hvíldina. Elsku, Leiley, Svana, Friðjón, Gísli og fjölskyldur. Guð veri með ykkur á þessum erfiðu tímum. Englar hæstir, andar stærstir, allir lofi Drottins nafn. Allt, sem andar, allt, sem lifir, uppi, niðri, himnum yfir, dýrki, lofi Drottins nafn. (Matthías Jochumsson) Kveðja, María og fjölskylda. Í dag verður lagður til hinstu hvílu vinur minn Sigurður Gíslason. Þrátt fyrir þrautseigju og röskleika til allra verka varð hann að lokum, eftir hetjulega baráttu, yfirbugaður af erf- iðum sjúkdómi. Í samtölum okkar undanfarna mánuði var hann eilíf- lega bjartsýnn, glaðvær og vongóður um að hann myndi vinna sigur á þeirri áþján sem á hann hafði verið lögð. Sigurður var alinn upp í Bú- staðahverfinu og var virkur þátttak- andi í keppnisliðum Víkings um ára- bil. Fyrst man ég eftir Sigurði í markinu í handboltaleik hjá Víkingi í gamla Hálogalandsbragganum. Með því félagi háði hann marga hildina innanlands og utan. Á þeim tíma var hann af mörgum talinn einn besti handboltamarkmaðurinn í meistara- flokki. Síðar lágu leiðir okkar saman hjá Þýsk-íslenska, en þar starfaði Sigurður í tvo áratugi, lengst af sem deildarstjóri hreinlætistækjadeildar. Hann hafði m.a. það hlutverk að selja og þjónusta Grohe. Færni hans og vitneskja á þeim vöruflokki varð til þess að hann fékk viðurnefnið herra Grohe. Hann sóttist ekki eftir athygli eða upphefð, en vann sín verk af sam- viskusemi og réttvísi. Hann var vammlaust sanngjarn maður sem ekki miklaðist af afrekum sínum. Það var ekki tilviljun, en segir sína sögu um þennan góða dreng að það varð margoft hans hlutskipti að vinna til viðurkenninga fyrir árangur í starfi. Þeir sem kynntust Sigurði urðu þess fljótt áskynja að hann hafði ákaflega þægilega nærveru og átti gott með að umgangast viðskiptavini og samstarfsfólk. Hann var vandaður maður sem kom fram við fólk af sér- stakri hógværð og prúðmennsku. Hann var heiðarlegur í öllum sam- skiptum. Í mannlegum samskiptum var hann nærgætinn og umhyggju- samur maður. Mesta hnoss, sem mér hefur hlotnast um ævina er konan mín Friðleif og börnin, sagði hann mér á góðri stundu. Það þurfti ekki að ræða við hann lengi til að skynja að einkonan og börnin áttu ást hans, umhyggju og athygli. Stoltur starfaði Sigurður síðustu starfsárin í BYKO við sölu- og þjónustustörf. Þar undi hann afskaplega glaður og sæll við sitt hlutskipti með afbragðsgóðu samstarfsfólki í fyrirtæki sem honum þótti afar vænt um. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Með söknuði og þakklæti kveð ég kæran vin og legg eiginkonu hans, börn og fjölskyldu alla í Guðs hendur. Ómar Kristjánsson. Sigurður Gíslason ✝ Elskuleg móðir okkar, stjúpmóðir, tengdamóðir, amma og langamma, BERGÞÓRA ÞORBERGSDÓTTIR, Garðvangi, Garði, áður Nónvörðu 11, Keflavík, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja mánudaginn 22. september. Útför hennar verður gerð frá Útskálakirkju laugar- daginn 27. september kl. 14.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hennar er bent á Félag aðstandenda Alzheimerssjúklinga á Suðurnesjum, reikn. 1109-05-412298 kt. 580690-2389. Guðmundur Jóelsson, Anna Margrét Gunnarsdóttir, Axel Jónsson, Þórunn Halldórsdóttir, Vignir Jónsson, Marteinn Tryggvason, Þorsteinn Jónsson, Katrín Hafsteinsdóttir, Íris Jónsdóttir, Gylfi Kristinsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar móður minnar, tengdamóður, ömmu og systur, DÓRÓTHEU DANÍELSDÓTTUR Hjallaseli 55, Reykjavík. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Seljahlíðar fyrir einstaka umönnun og alúð, séra Sigurði Grétari Helgasyni og séra Hans Markúsi Hafsteinssyni. Guð blessi ykkur öll. Daníel R. Ingólfsson, Olga E. Ágústsdóttir, Ágúst Sverrir Daníelsson, Davíð Ingi Daníelsson, Ívar Þórir Daníelsson, Guðjón H. Daníelsson, Anna Lillý Daníelsdóttir og fjölskyldur. ✝ Kær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, JÓSEF HALLDÓR ÞORGEIRSSON, Espigrund 4, Akranesi, andaðist þriðjudaginn 23. september. Útförin fer fram frá Akraneskirkju fimmtudaginn 2. október kl. 14.00. Blóm og kransar afþakkaðir. Þóra Björk Kristinsdóttir, Þorgeir Jósefsson, Pálína Ásgeirsdóttir, Benjamín Jósefsson, Ellert Kristinn Jósefsson og afabörn. ✝ Eiginkona mín, móðir, dóttir og systir, SALBJÖRG ÓSKARSDÓTTIR, Hagamel 30, Reykjavík, lést á heimili sínu miðvikudaginn 24. september. Sverrir Harðarson, Arnheiður Gróa Björnsdóttir, Kristrún Sverrisdóttir, Jóhanna Björnsdóttir, Guðrún Hanna Óskarsdóttir, Hörður Óskarsson, Bryndís Óskarsdóttir. ✝ Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐLAUG GÍSLADÓTTIR, frá Hvalsnesi, Borgarholtsbraut 73, Kópavogi, lést þriðjudaginn 23. september. Tómas Grétar Ólason, Margrét Tómasdóttir, Matthías Guðm. Pétursson Anna Guðrún Tómasdóttir, Matthías Kjartansson, Guðlaug Þóra Tómasdóttir, Daníel Ólason, Magnea Tómasdóttir, Pétur Gauti Valgeirsson, ömmubörn og langömmubarn. ✝ Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÚN GUÐMUNDSDÓTTIR kennari, Efstalandi 20, Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli fimmtudaginn 25. september. Útförin verður auglýst síðar. Sigurbjörg Jónsdóttir, Rafn Haraldsson Guðmundur Jónsson, Sæunn Kjartansdóttir Jónína Margrét Jónsdóttir, Bjarni Jónsson, Kolbrún Björnsdóttir Snjáfríður Jónsdóttir, Sólrún Björg Kristinsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.