Morgunblaðið - 26.09.2008, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 26.09.2008, Qupperneq 32
32 FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Lausn síðustu Sudoki. Sudoku dagbók Í dag er föstudagur 26. september, 270. dagur ársins 2008 Orð dagsins: Kærleikurinn er lang- lyndur, hann er góðviljaður. Kærleik- urinn öfundar ekki. (I. Kor. 12, 4.) Þrátt fyrir margendurteknar yf-irlýsingar stjórnmálamanna um að nú einbeiti menn sér að því að leysa vandann á frístundaheimilum skóla bólar ekkert á lausninni. Vissulega hefur fækkað á biðlistum. En upplýs- ingar um slíkt eru skammgóður verm- ir fyrir alla þá foreldra, sem enn sjá enga lausn á sínum málum. Þeir halda áfram að skutlast eftir börnunum á hádegi, koma þeim til frænku einn daginn og frænda þann næsta, ömmu í dag og vinafólks á morgun. Eða neyð- ast til að treysta á guð og lukkuna og skilja ung börn eftir hjá aðeins stálp- aðri systkinum. Á dögunum heyrði Víkverji haft eft- ir skólastjórnanda að hann sæi ekki að þetta væri verulegt vandamál í hverf- inu þar sem hann stýrir skóla. Hann gæti ekki betur séð en að fólk leysti þetta sjálft og engar kvartanir bærust til hans. x x x Þarna sannast enn og aftur að fólkverður að láta í sér heyra til að teljast marktækt. Foreldrarnir, sem ekki kvarta við skólastjórann, eru lík- lega of önnum kafnir á þeytingi um allt að bjarga sér fyrir horn, því tugir barna eru án vistunar í þessum eina skóla. Þögn þeirra við skólastjórann er alls ekki til marks um að allt sé í himnalagi og ástæðulaust sé að grípa til ráðstafana. Hún þýðir áreiðanlega frekar að allt þetta góða fólk hefur ákveðið að bíta á jaxlinn enn um sinn, í trausti þess að verið sé að leita allra hugsanlegra leiða til að leysa vandann. Hitt getur svo líka vel verið og hefði mátt hvarfla að skólastjórnandanum að fólk ber sig ekkert sérstaklega aumlega við hann af því að strangt til tekið heyra frístundamálin ekkert undir hann. Í Reykjavík eru þau á könnu íþrótta- og tómstundaráðs. Vonandi eru þessi ummæli skóla- stjórans til marks um að hann, sem og kollegar hans, telji að frístundamálin snerti starfsemi skólanna í raun og veru. Kannski finna skólastjórnendur lausnina sem vefst svo óskaplega fyrir öðrum sem vinna og vinna að málinu og skila litlum sem engum árangri. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 ergileg, 8 gengur, 9 lélaga rúmið, 10 sefa, 11 súta, 13 léleg- ar, 15 ísbreiða, 18 jarð- vöðull, 21 málmur, 22 rándýri, 23 þjálfun, 24 skrök. Lóðrétt | 2 fjáðar, 3 braka, 4 lét sér lynda, 5 styrkir, 6 sjávargróður, 7 fyrr, 12 leyfi, 14 fisks, 15 hæðar, 16 Íslands, 17 stíf, 18 borði, 19 sér ekki, 20 smáalda. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 prísa, 4 goggs, 7 efuðu, 8 felga, 9 ról, 11 tuða, 13 kula, 14 flæða, 15 þjál, 17 ljúf, 20 þil, 22 arfar, 23 or- sök, 24 karta, 25 tjara. Lóðrétt: 1 prent, 2 íburð, 3 alur, 4 gafl, 5 guldu, 6 skata, 10 ótæti, 12 afl, 13 kal, 15 þjark, 16 álfur, 18 jaska, 19 fokka, 20 þróa, 21 lost. 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 Rge7 4. Rc3 g6 5. d4 exd4 6. Rd5 Bg7 7. Bg5 h6 8. Bf6 Bxf6 9. Rxf6+ Kf8 10. O–O Rf5 11. Rd5 Rg7 12. Bc4 Re6 13. Dd2 b6 14. c3 Ra5 15. Be2 c6 16. Rf4 dxc3 17. Rxe6+ fxe6 18. Dxc3 Kg8 19. Had1 De8 20. Re5 h5 21. b4 Rb7 22. Hd3 Kh7 23. Hh3 Rd8 Staðan kom upp á heimsmeist- aramóti kvenna sem lauk fyrir skömmu í Nalchik í Rússlandi. Kínverska undrabarnið, hin 14 ára Yifan Hou (2557), hafði hvítt gegn Monu Khaled (2007) frá Egyptalandi. 24. Rxg6! Kxg6 25. Hg3+ og svartur gafst upp enda mát í næsta leik. Hou Yifan tefldi til úrslita um heimsmeistaratitilinn við rússneska stórmeistarann Alexöndru Kosteniuk (2511) en tapaði einvíginu 1 1/2 v. – 2 1/2. Kosteniuk er því heims- meistari kvenna í skák árið 2008. Hvítur á leik. Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Litli fingur. Norður ♠ÁK52 ♥K86 ♦D63 ♣KD6 Vestur Austur ♠G104 ♠9763 ♥92 ♥ÁG73 ♦Á542 ♦G108 ♣9843 ♣74 Suður ♠D8 ♥D1054 ♦K97 ♣ÁG102 Suður spilar 3G. Keppnisformið í Buffett-bikarnum er hvert-spil-leikur – spil vinnst, tapast eða fellur. Eins konar tvímenningur milli tveggja borða, sem þýðir að bar- áttan um yfirslagina getur skipt sköp- um. Alan Sontag spilaði í bandaríska liðinu og hann varð sagnhafi í 3G í spili dagsins. Í andstöðunni voru Norð- mennirnir Jan Petter Svendsen og Tor Helness. Svendsen kom út með lítinn tígul frá ásnum fjórða og Sontag fékk fyrsta slaginn á ♦K heima. Hann spil- aði hjarta á kóng, sem Helness tók og svaraði makker upp í tígli. Svendsen hefði betur hirt á ásinn sinn, en hann ákvað að halda tígulsambandinu opnu og dúkkaði. Maður réttir ekki Alan Sontag litla fingurinn útgjaldalaust. Sontag svínaði galvaskur ♥10, tók síð- an fríslagina á lauf og þvingaði Helness í hálitunum: tólf slagir. (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Húrra fyrir stirðum samskiptum! Þú þarft að útskýra þig fyrir fólki og áttar þig á að þú ert ekki skýr í tali. Það er gott þegar maður veit hvað þarf að laga. (20. apríl - 20. maí)  Naut Þú þarfnast tíma með þínum nánustu jafnmikið og ögrunarinnar frá ókunnug- um. Til að ná félagslegu jafnvægi þarftu að skipta tímanum jafnt milli heimilisins og heimsins. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Þú ert meira en til í að halda þínu til streitu þar til komist verður að end- anlegri niðurstöðu (enda muntu vinna!), en það er betra að ganga í burtu. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Fólk kemur þér á óvart með örlæti eða er jafnvel furðulega vinalegt. Býr eitt- hvað að baki? Líklega er heimurinn að bregðast við segulmögnun þinni. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Það er ofmetið að vita hvert maður stefnir. Þú veist hvar þú ert – það skiptir mestu máli. Þú ert aldrei týndur. Alltaf á réttum stað á réttum tíma. Alveg satt. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Merki um velgengni koma og fara. Góð einkunn í gamla daga er fjarlæg minn- ing. Glingrið sem þú keyptir í gær fer til Góða hirðisins á næsta ári. Hvað finnst þér? (23. sept. - 22. okt.)  Vog Þú velur vini þína vandlega og af sér- stakri ástæðu. Þið eruð betri saman en í sundur. Þú munt heyra frá vini sem þarfn- ast þín, og bara þín, einmitt núna. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Þátttaka þín í vissum hópi hef- ur verið lítil hingað til, en það mun breyt- ast til muna – ef þú vilt. Ein manneskja mun veita þér aðgang. Ertu tilbúinn? (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Tækifærisverkir eru skilaboð frá líkama þínum til hugarins. En hvað þýðir það nákvæmlega? Einhvers staðar innra með þér veistu það. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Þótt þú hafir fyrir löngu kvatt gamalt samband er einhver hluti af þér sem gerði það ekki – hvort sem þér líkar betur eða verr. Heyrðir þú lag sem rifjaði upp minningar? (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Aðstæður hafa misst kraftinn. Eitt sinn varstu með eld í maganum, en nú er það ryðgaður mótor sem vill ekki vinna. Meyja er fín til að peppa þig upp. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Þú þarft ekki að hafa svör við öllu. Það býr viska í vafanum. Flest sem þú hélst að þyrfti lagfæringar við er í fínasta lagi. Stjörnuspá Holiday Mathis 26. september 1915 Minnisvarði af Kristjáni kon- ungi níunda var afhjúpaður við Stjórnarráðshúsið í Reykjavík (á afmælisdegi Kristjáns tíunda). Með hægri hendi réttir konungur fram skjal sem á að tákna stjórn- arskrána 1874. Einar Jónsson myndhöggvari gerði styttuna. 26. september 1930 Kvæðakver Halldórs Laxness kom út. Elsta kvæðið var frá árinu 1922 (Bráðum kemur betri tíð) og eitt það yngsta (Alþingishátíðin) ort sumarið 1930. Kverið hefur verið end- urútgefið nokkrum sinnum, með viðbótum. 26. september 1939 Bresk Catalina-sjóflugvél neyddist til að lenda við Rauf- arhöfn vegna þoku. Daginn eftir var vélinni flogið burt í óþökk Íslendinga. Síðar var flugmaðurinn, Barnes, sendur til Íslands og vistaður á Bessa- stöðum. 26. september 1970 Fokker Friendship-flugvél frá Flugfélagi Íslands hf. fórst á Mykinesi í Færeyjum. Þrjátíu farþegar voru með vélinni og fjögurra manna áhöfn. Átta manns létust, þar af einn Ís- lendingur. 26. september 2006 Tíu til fimmtán þúsund manns tóku þátt í göngu Ómars Ragnarssonar frá Hlemmi nið- ur á Austurvöll til að mótmæla framkvæmdum við Kára- hnjúkavirkjun. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist … Haraldur Sig- urgeirsson, Grundarhvarfi 3, Kópavogi er sjö- tugur í dag, 26. september. Hann er staddur er- lendis á afmæl- isdaginn. 70 ára „Ég er bara venjuleg kona,“ segir Erla Eiríks- dóttir Vídó, sem er 80 ára í dag. Í tilefni dagsins er hún með opið hús klukkan 15 til 18 í Akóges í Vestmannaeyjum og síðan ætlar stórfjölskyldan að borða saman kvöldverð. „Ég hef aldrei verið af- mælisbarn og hefði helst ekki viljað halda upp á það en börnin tóku völdin,“ segir hún. Erla hefur nóg fyrir stafni. „Ég fer alltaf inn á búðir aldraðra og er þar í handavinnu á daginn,“ segir hún. „Svo hef ég starfað mikið fyrir flokkinn og sé ekkert annað en blátt.“ Erla er ánægð með bæjarstjórnina í Eyjum og verk hennar sem og árangur ÍBV í fótboltanum. Hún segist hafa verið dugleg að mæta á stjórnmálafundi og hafi sótt Landsþing Sjálfstæð- isflokksins reglulega, en bakveiki komi í veg fyrir að hún fari á völl- inn. „Ég þakka fyrir að komast á fundina hjá Flokknum,“ segir hún. Allir í Vestmannaeyjum og víðar þekkja Erlu Vídó, en færri vita hvernig stendur á nafnbótinni. Eiginmaður hennar, Sigurgeir Ólafs- son, sem andaðist fyrir um átta árum, var útgerðarmaður og fótbolta- maður. Erla segir að margir hafi haldið að nafnið Vídó hafi tengst fót- boltanum, en sannleikurinn sé sá að hann hafi í æsku átt heima á Víðivöllum og krakkarnir hafi því kallað hann Sigga á Vídó. „Það kannaðist enginn við mig nema ég hefði nafnið líka og þannig er það nú tilkomið,“ segir hún. steinthor@mbl.is Erla Eiríksdóttir Vídó er 80 ára í dag Sér ekkert annað en blátt Nýirborgarar Reykjavík Þórður Hugo fæddist 6. febrúar kl. 11.30. Hann vó 3.285 g og var 52 scm langur. For- eldrar hans eru Rósalind Guðmundsdóttir og Þórð- ur Björnsson. Akureyri Björn Hólm fæddist 8. júní kl. 23.37. Hann vó 2.745 g og var 50 sm langur. Foreldrar hans eru Halldór Þorsteinn Gestsson og Rósa Dóra Viðarsdóttir. Reykjavík Árni Þór fæddist 9. júlí kl. 3.36. Hann vó 3.950 g og var 53 sm langur. Foreldrar hans eru Unnur Árna- dóttir og Lárentsínus Gunnleifsson. Frumstig 2 9 1 5 3 7 2 6 5 6 9 8 3 5 1 7 6 2 1 9 7 6 1 9 3 4 5 3 8 7 8 4 5 2 Miðstig 9 4 3 8 7 1 6 3 8 1 3 2 9 5 1 7 5 3 7 3 2 9 7 4 1 9 5 4 3 5 7 9 Efstastig 7 1 2 6 6 1 4 5 9 3 8 6 2 9 5 1 1 3 9 2 7 9 3 1 6 8 4 1 6 1 8 4 7 6 5 9 3 2 6 3 5 8 9 2 7 1 4 9 2 7 4 3 1 8 6 5 3 7 6 5 2 8 1 4 9 5 1 8 9 4 3 2 7 6 4 9 2 6 1 7 5 8 3 2 5 1 3 7 6 4 9 8 7 4 3 2 8 9 6 5 1 8 6 9 1 5 4 3 2 7 Lausn síðustu Sudoku. 8 3 6 9 4 5 2 1 7 1 5 7 8 3 2 9 6 4 2 4 9 7 1 6 3 5 8 7 2 4 6 9 8 1 3 5 3 6 5 1 7 4 8 9 2 9 8 1 5 2 3 4 7 6 6 9 2 4 5 1 7 8 3 4 1 8 3 6 7 5 2 9 5 7 3 2 8 9 6 4 1 2 5 1 6 3 4 9 8 7 6 3 4 8 7 9 2 5 1 9 8 7 5 1 2 6 4 3 5 6 3 7 8 1 4 9 2 8 7 9 2 4 5 3 1 6 1 4 2 9 6 3 8 7 5 4 9 6 3 5 7 1 2 8 7 1 8 4 2 6 5 3 9 3 2 5 1 9 8 7 6 4

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.