Morgunblaðið - 26.09.2008, Síða 35

Morgunblaðið - 26.09.2008, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. SEPTEMBER 2008 35 - kemur þér við Sérblað um vinnuvélar fylgir blaðinu í dag                          !            "   !#     !   $    $       $ #     %                  &  $ '  !    ( !       )   *  # %      $     ! #    $        #          +  ,   *    ( !     "     ! # -        "     $   "   )) ! ! $   # .  !  !  !  #      !"!#$% & '()) ! *! + ),  - Herbert var háður kannabis og kókaíni Stjórnarmenn SPRON kærðir Landsliðsmaður æfir sig á skíðum innandyra Segja „alkul”ríkja á byggingamarkaði Slæm fjárhagsstaða Landhelgisgæslunnar Hvað ætlar þú að lesa í dag? UMFJÖLLUNAREFNI Birtu Guð- jónsdóttur er víðfeðmt, hvað felst í orð- inu heim? Hugtakið er áleitið nú á tím- um og Birta gerir því margvísleg skil. Kúlur í lófa spegla umhverfið, lófinn gefur til kynna persónulegt en um leið sammannlegt sjónarhorn, kúlurnar eins og smáútgáfa af jarðkúlunni og eins og í anda miðaldaheimsmyndar sameinast hér míkrokosmos og makrókosmos þar sem maðurinn er órjúfanlegur hluti af stærri heild. Kunnugleiki og framandleiki spila saman á ljósmyndum af náttúru. Takt- fast myndband er eins og mynd- skreyting við óskrifað borgarljóð eða tónverk. Götumyndir frá ýmsum borg- um vekja spurningar um hvað það er sem aðgreinir heimkynni okkar frá öðrum stöðum. Ljósmyndir af almenn- ingsrými birta mynd af alþjóðlegu samtímaumhverfi, lausu við staðbund- in einkenni. Og landslagsmyndir eins og teknar út um helli minna aftur á sjónarhorn liðins tíma, hvort sem hellisopið er tölvumynd eða raunveru- legt. Birta hefur mikla þekkingu á sam- tímalistum og er vel að sér í hug- myndafræði líðandi stundar sem og listasögunni. Listamönnum sem vinna á hugmyndafræðilegum nótum liggur oft mikið á hjarta þegar þeir finna hugmyndum sínum myndrænan far- veg og hugmyndafræðin sligar stund- um verkin. En hér hefur Birta slegið einfaldar nótur sem kveikja margvísleg hug- renningatengsl, henni tekst að skapa áhugaverðar myndir og vekja um leið meðvitund áhorfandans fyrir um- hverfi sínu. „Togstreita og misskiln- ingur verða til af því að í leit sinni að því sammannlega leitar maðurinn inn á við, í stað þess að líta til umhverfis sín, birtunnar, landslagsins, upphafs- ins og dauðans.“ (Þýð. RS) Eitthvað á þessa leið skrifaði skáldið Rainer Maria Rilke en orð hans eiga ágæt- lega við sýningu Birtu, sem beinir sjónum sínum út á við. Morgunblaðið/Valdís Thor Sjónarhorn „...landslagsmyndir eins og teknar út um helli minna aftur á sjónarhorn liðins tíma...“ segir meðal annars í dómi. Horft á heiminn MYNDLIST Gallery Turpentine Til 27. september. Opið þri. til fös. 12–18 og lau. 12–17. heim, Birta Guðjónsdóttir bbbmn Ragna Sigurðardóttir SAMKVÆMT döprum vitnisburði viðmælenda í heimildarmyndinni A Ji- had for Love, er það ekki tekið út með sældinni að vera samkynhneigður í múslímaheiminum. Kvikmyndagerð- armaðurinn Sharma fer vítt um þessa veröld sem er í augum Vesturlanda- búa á svo mörgum sviðum mannrétt- indamála á steinöld, miðað við frjáls- ræðið sem við tökum sem sjálfsagðan hlut. Réttindabarátta samkyn- hneigðra nýtur ekki hljómgrunns meðal múslímskra fræðimanna, er homma t.d. einungis getið í Kóranin- um í tengslum við spillinguna í Só- dómu og Gómorru. Fræðimennirnir telja aðeins eitt bjargráð fyrir sam- kynhneigða, sem þekkt er úr einum söfnuði hérlenskum: Afhommist eða stiknið í víti. Kenningarnar boða lítið umburðarlyndi, samkvæmt bók- stafnum er samkynhneigð ófyrirgef- anlegur glæpur og ljótur. Fjand- samlegra getur umhverfið tæpast verið, ekki síst þegar tillit er tekið til þess mikla trúarhita sem ríkir meðal múslíma, sem lifa og hrærast í reglum spámannsins og biðjast fyrir oft á dag af sannfæringarkrafti sem fátíður er í kristindómnum. Sharma ræðir við samkynhneigða í Asíu, Evrópu og Afríku, S-Afríku. Í Austurlöndum fjær virðist ríkja yfrið meira umburð- arlyndi en annars staðar. Fróðleg sýn inn í fjarlægan heim og átakanlegt að horfa upp á nagandi sektarkennd og útskúfun þessa minnihlutahóps sem bíður ekkert annað en óhamingja og fáeinar, stolnar gleðistundir. Homm- ar og lesbíur múslímaheimsins geta greinilega ekki vænst þess að fara í gleðigöngur um ófyrirsjáanlega framtíð. Hollt er að hafa í huga að ekki er hálf öld liðin síðan samkyn- hneigðir urðu að læðast með veggjum á Vesturlöndum, slíkir voru fordóm- arnir í okkar kristna heimi. Óhreinu börnin hans Múhameðs A Jihad for Love/ Heilagt stríð fyrir ást Heimildarmynd. Leikstjóri: Parvez Sharma. 81 mín. England/Bandaríkin/ Frakkland o.fl. 2008. bbbnn Sæbjörn Valdimarsson Sýnd í Norræna húsinu í kvöld og í Iðnó á sunnudaginn, 28.9. Það er við hæfi að byrja þennanpistil á brandara sem égheyrði eitt sinn á góðri stundu í Samtökunum ’78: „Hvað þarf margar lesbíur til að skipta um ljósaperu? – Tólf: eina til að skipta um peruna og ellefu til að gera um það heimildarmynd.“    Þennan brandara má varla hafaeftir á opinberum vettvangi ef maður á að geta kallast pólitískt kórréttur, en grínið lýsir því samt skemmtilega hversu mikill kraftur hefur hlaupið í útgáfu vandaðra heimildarmynda og kvikmynda um samkynhneigð síðustu ár. En þegar að er gáð er kannski ekkert svo ótrúlegt að hópur á jaðri samfélags- ins leiti í list og kraft kvikmyndar- innar til að sýna heiminum hlut- skipti sitt, tilfinningar og væntingar. Næstu 10 dagana verða ferskustu straumarnir í hinsegin-kvikmyndum sýndir á Hinsegin bíódögum 2008 sem nú eru í fyrsta skipti hluti af Al- þjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykja- vík. Á meðal þess sem í boði er má nefna gamanmyndina Breakfast With Scot sem skartar hinum geð- þekka Thomas Cavanagh í aðal- hlutverki (sem margir kannast við t.d. úr Scrubs-sjónvarpsþáttunum). Segir af hommapari sem reynir í lengstu lög að halda samkynhneigð- inni vandlega leyndri, en babb kem- ur í bátinn þegar þeir þurfa að ganga 11 ára gutta í móðurstað. Stráksi fer nefnilega ekkert leynt með að hann er alveg sérstaklega hrifinn af glimmer og glansi og brestur í söng á götum úti. Það má líka fara á hinsegin bíó- daga til að fræðast og vera með á nótunum. Þótt titillinn á kvikmynd- inni A Jihad for Love hljómi klént þurfa allir þeir sem þykjast styðja réttindabaráttu samkynhneigðra að fara á þessa verðlaunuðu heimild- armynd um ömurlegt hlutskipti samkynhneigðra í hinum íslamska heimi.    Það er gott og blessað að veifaregnbogafánum á Hinsegin dögum en það má ekki gleymast að mismunun, ofsóknir og kúgun sam- kynhneigðra eru frekar reglan en undantekningin í löndum heims. Verst er ástandið þar sem íslömsk ofsatrú er ráðandi og dauðarefsing liggur við því að laðast að einstak- lingi af sama kyni. asgeiri@mbl.is Meira en bara regnbogafánar AF LISTUM Ásgeir Ingvarsson Dauðasynd A Jihad for Love fjallar um þær ofsóknir og þjáningar sem samkynhneigðir þurfa að þola í nafni íslam. Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík » Borgarbúar hafatækifæri til þess næstu 10 dagana að kynnast ferskustu straumunum í hinsegin- kvikmyndum www.hinbio.org

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.