Morgunblaðið - 08.10.2008, Síða 12

Morgunblaðið - 08.10.2008, Síða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 8. OKTÓBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ Engin kæti Andrúmsloftið hefur verið sérstakt á Alþingi undanfarna daga. Fjöldi fjöl- miðlafólks, jafnt frá innlendum sem erlendum miðlum, hefur sett mark sitt á þinghúsið og allir vilja vera fyrstir með fréttirnar. Óvenju margir þingmenn voru við- staddir umræður um neyðarfrum- varp varðandi fjármálamarkaðinn í fyrradag, eða 62 þingmenn af 63. Óhætt er að segja að ekki hafi ríkt mikil kæti í húsinu. Þingmenn voru almennt á einu máli um að það væru alvarleg tíðindi hversu illa var komið fyrir bönkum landsins og eng- inn fagnaði því að setja þyrfti neyð- arlög. Daprastir voru sjálfstæð- ismenn en það tók þá marga sárt að þurfa að samþykkja frumvarp sem felur í sér svo miklar valdheimildir fyrir ríkið. Beðið og beðið Þingmennirnir þurftu að bíða milli fyrstu og annarrar umræðu um frum- varpið eða á meðan viðskiptanefnd Alþingis fjallaði um málið. Starfsfólk var á þönum og álagið á vefsíðu Al- þingis svo mikið að hún lá reglulega niðri. Mötuneytið þurfti að reiða fram mat með skömmum fyrirvara og bílstjórar ráðherranna máttu bíða eftir næstu ferð, sem þeir hafa varla vitað hvert var heitið. Agndofa og andlaus Stemningin í þinghúsinu í gær var allt öðruvísi. Það var eins og ákveð- in deyfð væri yfir öllum. Ráðamenn þreyttir og allur vindur úr stjórnar- andstöðunni. Lýstu margir líðan sinni með orðum á borð við agndofa og andlaus og hefur það eflaust haft áhrif á að færri óundirbúnar fyrir- spurnir voru á dagskrá en hefðu get- að rúmast innan þess hálftíma sem til þeirra er ætlaður. Þingfundur hélt síðan áfram með umræðum um þingmannamál en var slitið snemma á fimmta tímanum. Og þá datt allt í dúnalogn. Dagskrá þingsins Þingfundur hefst kl. 13.30 með um- ræðum um störf þingsins og í fram- haldi af því eru þingmannamál á dagskrá. Á morgun verða jafnframt nefndarfundir opnir fjölmiðlum í fyrsta sinn og þeim verður sjón- varpað. Sjávarútvegs- og landbún- aðarnefnd fundar kl. 8.30 og heil- brigðisnefnd kl. 12. halla@mbl.is ÞETTA HELST … Eftir Höllu Gunnarsdóttur halla@mbl.is ÞAÐ VÆRI mjög óskynsamlegt ef forsætisráðherra lýsti því yfir úr ræðustóli Alþingis að þorskveiði- heimildir verði auknar núna. Þetta sagði Geir H. Haarde forsætisráð- herra á Alþingi í gær en Samúel Örn Erlingsson, sem nú situr á þingi fyr- ir Framsóknarflokkinn, spurði hvort ekki ætti að auka þorskkvótann verulega enda væri verðmætasköp- un mjög mikilvæg á þessum tímum. „Í fyrra var tekin djörf ákvörðun um niðurskurð þorskkvótans. Sú ákvörðun var tekin í góðæri. Nú hriktir í stoðum og þá verða menn að ganga svo langt sem skynsemi leyf- ir,“ sagði Samúel. Geir tók undir mikilvægi verð- mætasköpunar til að bæta kjörin í landinu en sagði ekki hægt að hrapa að breytingum enda væri ákvörðun- in byggð á vísindalegum grunni. „En sjávarútvegsráðherra er að sjálf- sögðu með þetta til skoðunar og þessi mál öll stöðugt,“ sagði Geir og áréttaði að ef grundvöllur væri fyrir að auka kvótann kæmi það út úr at- hugunum „sjávarútvegsráðherra og hans manna“. Ekki á dagskrá Einar K. Guðfinnson, sjávarút- vegsráðherra, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að auknar þorskveiðiheimildir væru einfald- lega ekki á dagskrá. Menn væru að fást við önnur mál núna. Aukin þorskveiði er ekki á dagskrá í bili Þorskkvótinn verður aðeins aukinn ef forsendur eru til þess Morgunblaðið/Brynjar Gauti Meiri þorsk Frjálslyndi flokkurinn og Framsókn þrýsta nú mjög á um að þorskveiðiheimildir verði auknar. HALDA þarf atvinnulífinu gang- andi við þær aðstæður sem nú hafa skapast, sagði Höskuldur Þór- hallsson, þingmaður Framsókn- arflokksins, á Alþingi í gær og vildi að haldið yrði áfram með álvers- uppbyggingu af fullum þunga. Nefndi hann Helguvík og Bakka og óskaði eftir svörum frá forsætis- ráðherra um hvenær tilraunabor- anir á Bakka gætu haldið áfram. Geir H. Haarde forsætisráðherra sagði framkvæmdir í Helguvík þegar vera í fullum gangi og árétt- aði að afstaða sín til álvers á Bakka hefði ekki breyst. „Ég styð þetta verkefni. Sjálfstæðisflokkurinn gerir það og ég efast ekkert um eindreginn vilja Samfylking- arinnar til að koma því máli í heila höfn,“ sagði Geir og bætti við að hann gæti ekki svarað því nákvæm- lega hvar leyfi til tilraunaborana væri á vegi statt. halla@mbl.is Áfram með álverin ÞÓ AÐ Alþingi hafi verið und- irlagt af aðgerðum vegna ástands- ins á fjármálamörkuðum und- anfarna daga hefur venjubundin starfsemi haldið áfram. Fjöldi þingmannamála hefur verið lagð- ur fram. Mörg þeirra hafa verið lögð fram áður en ekki hlotið fullnaðarafgreiðslu og þingmenn nota tækifærið í upphafi þings til að koma málum sínum á framfæri. Reykherbergi og samkeppni Jón Magnússon og fleiri þingmenn hafa lagt fram frumvarp þess efn- is að skemmtistaðir megi koma sér upp sérstökum reykher- bergjum. Siv Friðleifsdóttir hefur ásamt þingmönnum allra flokka lagt fram þingsályktunartillögu um að Jafnréttisstofa hrindi af stað verkefni í því skyni að efla hlut kvenna í sveitarstjórnum. Þá hafa Ásta Möller og fleiri flokks- systkini hennar úr Sjálfstæð- isflokknum lagt til að við- skiptaráðherra geri athugun á því á hvaða sviðum ríkisstofnanir og -fyrirtæki séu í samkeppni við einkaaðila. halla@mbl.is Sumt gengur sinn vanagang Jóhann Sigurjónsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunar, bendir á að stofnunin veiti sína ráðgjöf að vori fyrir fiskveiðiár sem hefst 1. september. Forsendur hafi ekki breyst síðan í vor. „Vitaskuld gerir maður sér grein fyrir alvarleika krepp- unnar en mat okkar á ástandi þorskstofnsins hefur ekki breyst,“ segir Jóhann og bætir við að þótt talsvert sé af þorski á miðum núna hafi nýliðun verið í sögulegu lágmarki síðustu ár og við því þurft að bregðast. Breytir ekki þorski Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur elva@mbl.is „AUÐVITAÐ hefur skapast ákveðið óöryggi hjá fólki, bæði starfsmönnum í bönkunum og kannski sérstaklega Landsbankanum við þessar að- stæður, og líka hjá viðskiptavinum og almenningi. Það er mjög mikilvægt að allir standi saman,“ sagði Geir H. Haarde forsætisráðherra á fundi sem hann og Björgvin G. Sigurðsson við- skiptaráðherra héldu með blaða- mönnum í gær. Til fundarins var boð- að eftir að tilkynnt var í gærmorgun að Fjármálaeftirlitið hefði skipað skilanefnd sem tæki við stjórn bank- ans á grundvelli neyðarlaga sem Al- þingi setti í fyrrakvöld. Í tilkynningu frá FME vegna málsins sagði að þetta væri gert til þess að tryggja fullnægjandi innanlandsstarfsemi bankans og stöðugleika íslensks fjár- málakerfis. Tekið var fram að banka- innlán á Íslandi væru að fullu tryggð. Viðskiptaráðherra sagði á fund- inum að það sem væri gott í stöðunni væri að Landsbankinn færi ekki í þrot heldur yrði ríkisbanki stofnaður um innlenda starfsemi bankans. „Það gefur auga leið hvert hlutskipti hlut- hafanna verður. Þeir tapa sínum hlut,“ sagði Björgvin. Um stöðu Glitnis sagði Björgvin að að Fjármálaeftirlitið væri að fara yfir stöðu bankans. Hann hefði ekki upp- lýsingar um hvernig sú staða væri, en kæmi í ljós að bankinn væri kominn í sömu stöðu og Landsbankinn yrði gripið til sömu aðgerða og gagnvart þeim banka. Seint í gærkvöldi leysti skilanefnd FME stjórn bankans af hólmi. Geir H. Haarde ræddi viðbrögð ríkisstjórnar og Alþingis við banka- kreppunni og kvaðst sannfærður um að þau yrðu til þess að tryggja stöð- ugleika og koma í veg fyrir upplausn- arástand sem skapast hefði ef ein- hver bankanna hefði farið í þrot. Seðlabankinn hefði fest gengi krónunnar tímabundið við geng- isvísitöluna 175, en Geir sagði ekki hægt að segja til um hversu lengi þessi ráðstöfun stæði. „Við teljum líklegt að þegar mark- aðsviðskipti hefjast á nýjan leik með krónuna muni hún verða umtalsvert sterkari en hún var í [fyrradag] eða um helgina.“ Geir sagði að staða bankanna hefði myndast mjög hratt og óvænt og nauðsynlegt hefði verið að grípa í taumana. „Ýmsir verða fyrir óþæg- indum af þeim sökum,“ sagði Geir. Fólki yrði hjálpað í gegnum erfiðleika sem kynnu að skapast. Geir ræddi um 4 milljarða evra gjaldeyrislán frá Rússum, sem ís- lensk stjórnvöld vinna að því að út- vega. Hann sagði að þetta mál hefði verið í vinnslu frá því í sumar, en í gærmorgun hefði það verið staðfest að Rússar væru reiðubúnir að ræða þetta á jákvæðum nótum. Íslensk sendinefnd heldur senn til Rússlands til viðræðna um lánið. „Þetta eru mikil og góð tíðindi og þakkarverð af hálfu rússneskra yf- irvalda,“ sagði Geir. Þurfum að finna nýja vini Ráðherra sagði jafnframt á fund- inum að allt þetta ár hefðu Íslend- ingar kannað hjá vinaþjóðum mögu- leika á gjaldeyrisskiptasamningum. „Við höfum ekki fengið þann stuðning sem við óskuðum frá vinum okkar,“ sagði Geir. „Í slíkri stöðu þurfum við að leita nýrra vina.“ Hann tók fram að Norðurlöndin hefðu gert gjaldeyrisskiptasamninga við Íslendinga og hefðu því reynst vinir í raun. Ráðherrann vildi ekki upplýsa hvaða lönd hefðu hafnað um- leitunum Íslendinga. Reynt að tryggja fjármálastöðugleika  Fjármálaeftirlitið stýrir Landsbanka og Glitni í samræmi við neyðarlög Alþingis frá í fyrrakvöld  „Við höfum ekki fengið þann stuðning sem við óskuðum frá vinum okkar,“ segir forsætisráðherra Morgunblaðið/Brynjar Gauti Mikilvægt að allir standi saman Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra og Geir H. Haarde forsætisráðherra héldu blaðamannafund í Iðnó í gær. Bankakreppan

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.