Morgunblaðið - 08.10.2008, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. OKTÓBER 2008 13
HJÁLMAR H.
Ragnarsson,
rektor Listahá-
skóla Íslands,
segist í samtali
við Morg-
unblaðið vonast
til þess að haldið
verði áfram með
áform um nýja
byggingu skól-
ans, þrátt fyrir
hremmingar í efnahagslífinu. Með-
al samstarfsaðila skólans í verkefn-
inu hefur verið Samson Properties,
dótturfélag Novator Properties,
sem er í eigu Björgólfsfeðga.
„Það er mikilvægt fyrir mennta-
og menningarstarf í landinu að
þessum framkvæmdum verði haldið
áfram,“ segir Hjálmar og segir
skólann áfram vilja vinna að því að
byggingin rísi við Laugaveginn.
Spurður hvort til greina komi að
hverfa aftur til áforma um lóð und-
ir skólann í Vatnsmýrinni segir
Hjálmar að skólinn vilji helst horfa
til miðbæjarins.
Ekki náðist í forsvarsmenn Sam-
son Properties í gær. bjb@mbl.is
Haldið verði
áfram með
Listaháskólann
Hjálmar H.
Ragnarsson
TÓMAS Már Sig-
urðsson, forstjóri
Alcoa-Fjarðaáls,
segir að áform
um byggingu ál-
vers á Bakka við
Húsavík standi
óhögguð þrátt
fyrir fjármála-
kreppuna hér á
landi. Verkið
hafi vissulega
tafist en áfram sé ötullega unnið við
undirbúning. „Við höfum mikla trú
á framtíð áls. Tímabundnir erfið-
leikar hafa áhrif á alla markaði en
til lengri tíma erum við bjartsýn,“
segir Tómas en ál hefur verið að
lækka í verði líkt og fleiri hrávörur.
Hann segir útflutningstekjur
Fjarðaáls nema um 900 milljónum
dollara á þessu ári. bjb@mbl.is
Óbreytt áform
um Bakkaálver
Tómas Már
Sigurðsson
Eftir Björn Vigni Sigurpálsson og
Björn Jóhann Björnsson
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
hefur veitt stjórn Samson eign-
arhaldsfélags heimild til greiðslu-
stöðvunar til næstu þriggja vikna,
eða til 28. október nk. Gunnar
Sturluson hrl. hefur verið skipaður
aðstoðarmaður félagsins á greiðslu-
stöðvunartíma. Hefur hópur á veg-
um Samson aðstoðað starfsmenn
Landsbankans og skilanefndar við
úrlausn mála síðustu daga, sam-
kvæmt upplýsingum blaðsins.
Samson eignarhaldsfélag er sem
kunnugt er í eigu feðganna Björgólfs
Guðmundssonar og Björgólfs Thors
Björgólfssonar og var stofnað sér-
staklega utan um kaup félagsins á
hlut ríkisins í Landsbankanum
haustið 2002. Þá var keyptur 45,8%
hlutur í bankanum á rúma 12,3 millj-
arða króna. Við birtingu síðasta hlut-
hafalista var hlutur Samson um 42%
og verðmæti hans um 90 milljarðar
króna fyrir ekki svo mörgum vikum.
Engin áhrif á Novator
Við kaupin á hlut ríkisins á sínum
tíma var Magnús Þorsteinsson einn-
ig meðal eigenda Samson, en hann
seldi sinn hlut í félaginu í ágúst 2005.
Ásgeir Friðgeirsson, talsmaður
Samson, segir að þessi greiðslu-
stöðvun hafi engin áhrif á önnur fé-
lög í eigu Björgólfsfeðga, t.d. Sam-
son Global Holding, sem fer með
36% hlut feðganna í Straumi. Eina
eign Samson eignarhaldsfélags hafi
verið Landsbankahluturinn.
„Novator er sjálfstætt alþjóðlegt
fjárfestingafélag, sem starfar frá
Lundúnum og hefur engar fjárfest-
ingar í íslenskum fjármálafyrir-
tækjum og verður þess vegna ekki
fyrir áhrifum. Jafnframt hefur þetta
heldur engin áhrif á stöðu eða skuld-
bindingar Actavis,“ segir Ásgeir en
Novator á þar stærstan eignarhlut.
Novator rekur einnig farsímafyrir-
tækið Nova hér á landi.
Af öðrum félögum tengdum
Björgólfsfeðgum á Íslandi má nefna
Novator Properties en dótturfélag
þess er Samson Properties, sem á og
rekur fjölda fasteigna hér á landi.
Meðal verkefna sem félagið hefur
unnið að er fyrirhuguð nýbygging
Listaháskólans við Laugaveg. Er-
lend fasteignaverkefni Novator Pro-
perties eru síðan töluverð, m.a. í
Danmörku við þróun á World Trade
Center í Kaupmannahöfn og þriðj-
ungshlutur í Sjælsö Gruppen.
Dótturfélag Samson eignarhalds-
félags er Ópera fjárfestingar sem er
eigandi að fjórðungshlut í fjárfest-
ingafélaginu Gretti. Grettir er aftur
stór eigandi að Eimskip, með 33,15%
hlut samkvæmt hluthafalista í Kaup-
höllinni í lok ágúst sl. og Icelandic
Group.
Saman eiga Björgólfur Guð-
mundsson og Björgólfur Thor
Björgólfsson Forsíðu ehf., sem er
stærsti hluthafi Árvakurs, útgef-
anda Morgunblaðsins, með 25%.
Björgólfur Guðmundsson á Ólafsfell,
sem á 8,02% hlut í Árvakri auk þess
sem Straumur á MGM ehf., sem á
16,7% í Árvakri.
Greiðslustöðvun í þrjár vikur
Aðaleigandi Landsbankans, Samson eignarhaldsfélag, fær greiðslustöðvun Hefur ekki áhrif á
önnur félög tengd eigendum Samson hér á landi, segir Ásgeir Friðgeirsson, talsmaður félagsins
!"
# $%
%& "'
() *
+%
*
,%- '(' . /
0( ! "
# $% & '
$ #123".'
! /
4.
! 523"% '
! 2 '%- '
#% " / %
()0 ()0
* $%
+, #$$ "
-
.
67/
8/
"
! /
010(#
-
.
2
# 1*
#
84 '
9:+(;
#3& .
**
1*<
*
3 $,4$
23"% '%- '
000(= *
50( 7 7
*
Morgunblaðið Kristinn
Samson Kaup Samson eignarhaldsfélags á Landsbankanum undirrituð í
Þjóðmenningarhúsinu árið 2002. Ríkið hefur nú aftur eignast bankann.
Eftir Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
FRAMKVÆMDIR við tónlistar- og
ráðstefnuhúsið við Reykjavíkurhöfn
verða ekki stöðvaðar þrátt fyrir
breytingar á rekstri Landsbankans,
að sögn Helga S. Gunnarssonar,
framkvæmdastjóra Portus, en félag-
ið er að jöfnu í eigu Landsbankans
og Nýsis og var stofnað sérstaklega
um byggingu og rekstur hússins.
Síðasta fjárhagsáætlun verksins
hljóðaði upp á 14 milljarða króna en
sú fjárhæð hefur væntanlega hækk-
að vegna hækkandi gengis og auk-
innar verðbólgu.
Helgi segir að félagið sé að skoða
sína stöðu og hvaða kostir eru uppi.
Einhverja daga eða vikur geti tekið
að greiða úr þeim málum. Rætt verði
við samstarfsaðila verkefnisins,
Austurhöfn, sem er eigu í ríkisins og
Reykjavíkurborgar.
Það verður einmitt eitt verkefna
skilanefndar og nýrrar stjórnar
Landsbankans að ákveða um fram-
hald stórverkefna sem bankinn hef-
ur tekið þátt í að fjármagna.
Framkvæmdir ekki stöðv-
aðar við tónlistarhúsið
Portus ræðir við Austurhöfn og nýja eigendur Landsbankans um framhaldið
Morgunblaðið/Ómar
Tónlistarhúsið Framkvæmdir við nýja ráðstefnu- og tónlistarhúsið eru í fullum gangi og nálægt áætlun.
LANDSBANKINN hefur ásamt
Kaupþingi og fleiri bönkum haft
umsjón með fjármögnun fyrirhug-
aðs álvers Norðuráls í Helguvík.
Eftir því sem næst verður komist er
sú fjármögnun tryggð, þó að ekki
hafi tekist að ná í forsvarsmenn
Landsbankans og Norðuráls í gær
til að fá það staðfest. Um 70-80
milljarða króna framkvæmd er að
ræða.
Yfirlýsing frá Century
Móðurfélag Norðuráls, Century
Aluminum, sendi í fyrrakvöld frá
sér yfirlýsingu þar sem fram kemur
að lánalínur til handa fyrirtækinu
hafi verið tryggðar vegna verkefna
þess á Íslandi, þar á meðal 30 millj-
ónir dollara, jafnvirði um þriggja
milljarða króna samkvæmt viðmið-
unargengi Seðlabankans, sem átti
að útvega í þessari viku. Sú fjárhæð
sé tryggð samkvæmt loforði ís-
lenskra stjórnvalda um tryggingu
innistæðna í íslensku bönkunum.
Í yfirlýsingu Century segir enn-
fremur að framkvæmdir í Helguvík
séu á áætlun. Haft er eftir Logan
Kruger, forstjóra félagsins, að það
hafi enn fulla trú á verkefninu í
Helguvík. Áfram verði fylgst náið
með á Íslandi. bjb@mbl.is
Norðurál telur sig tryggt
Morgunblaðið/Rax
Helguvík Framkvæmdir eru komn-
ar á fullt við nýtt álver Norðuráls.
Í HNOTSKURN
»Íslenskir bankar hafakomið að fjármögnun ál-
versins í Helguvík.
»Óvissa ríkir um aðkomuLandsbankans að því verk-
efni eftir að hann varð rík-
isbanki.