Morgunblaðið - 08.10.2008, Blaðsíða 32
32 MIÐVIKUDAGUR 8. OKTÓBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
SÝND Í ÁLFABAKKASÝND Í ÁLFABAKKA OG AKUREYRI
SÝND Í KRINGLUNNI
SÝND Í KRINGLUNNI - S.V. MORGUNBLAÐIÐ
SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI
-BBC
-HJ.,MBL
JÁKVÆÐASTA MYND ÁRSINS
MYND SEM ÞÚ VERÐUR AÐ SJÁ
VIPSALURINNER BARA LÚXUS
ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA
HVERNIG MYNDI
LÆKNANEMI
FRAMKVÆMA HIÐ
FULLKOMNA MORÐ!?
ATH. STRANGLEGA
BÖNNUÐ INNAN 16 ÁRA.
EINHVER HROTTALEGASTA
SPENNUMYND SÍÐARI ÁRA,
Í ANDA HINNA MÖGNUÐU
FLATLINERS
-TOMMI - KVIKMYNDIR.ISS.V. - MORGUNBLAÐIÐ
- S.V., MBL - Ó.H.T., RÁS 2 - 24 STUNDIR - B.S., FBL
PATHOLOGY kl. 8 - 10:20 B.i. 16 ára
HAPPY GO LUCKY kl. 8 - 10:20 B.i. 12 ára
WILD CHILD kl. 6 LEYFÐ
JOURNEY TO THE C... kl. 103D LEYFÐ 3D - DIGITAL
GEIMAPARNIR m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ
SMART PEOPLE kl. 6 B.i. 12 ára
/ KRINGLUNNI
GEIMAPARNIR m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ
TROPIC THUNDER kl. 8 - 10:20 B.i. 16 ára
CHARLIE BARTLETT kl. 8 - 10:20 B.i. 12 ára
DEATH RACE kl. 10:10 B.i. 16 ára
PATHOLOGY kl. 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 16 ára
PATHOLOGY kl. 8 - 10:10 B.i. 16 ára LÚXUS VIP
WILD CHILD kl. 5:50 - 8 - 10:10 LEYFÐ
JOURNEY TO THE C... kl. 5:50 3D LEYFÐ 3D - DIGITAL
SVEITABRÚÐKAUP kl. 5:50 - 8 LEYFÐ
SVEITABRÚÐKAUP kl. 5:50 LEYFÐ LÚXUS VIP
/ ÁLFABAKKA
Sally Hawkins sem fékk Berlínabjörninn
fyrir besta leik skapar hina eftirminnilegu
Poppy sem sér heiminn alltaf jákvætt
Mike Leigh leikstjóri Secrets & Lies og
Veru Drakeer meistari í persónusköpun
Það er ekki langt síðan slúð-urmiðlar heimsins voru full-ir af svörtum spám um af-
drif poppprinsessunnar Britney
Spears. Hver dálksentimetrinn af
öðrum var fylltur af hneyksl-
anlegum fréttum af hegðun henn-
ar sem var með hinu furðulegasta
móti. Myndir náðust af henni raka
af sér hárið, svipta nærbuxnalaus
upp um sig pínupilsum, undir
áhrifum vímuefna, með misgáfu-
lega karlmenn upp á arminn.
Hún hótaði að fremja sjálfsmorð,
stóð í forræðisdeilum við barns-
föður sinn, Kevin Federline, og
missti forræði yfir sonunum tveim-
ur til hans. Ekki sá fyrir endann á
ógæfu hennar og botninum var
náð er hún fékk taugaáfall í upp-
hafi þessa árs og var flutt í skyndi
á sjúkrahús. Aðstandendur Spears
báðu fjölmiðla um vægð eftir
sjúkrahúsinnlögnina og urðu þeir
við þeirri bón. Hin saklausa mey
sem kom eins og bleikur andblær
inn í poppheiminn fyrir nokkrum
árum var útötuð og hlakkaði í
mörgum yfir falli hennar. Flestir
bjuggust við að ekki yrði aftur
snúið fyrir Spears og hún myndi
lifa á fornri frægð til dauðadags
en annað hefur nú komið á daginn,
stjarnan hefur snúið aftur.
Í sumar fór að kræla lítillega áSpears í fjölmiðlum, myndir af
henni sællegri á sólarströnd birt-
ust öðru hverju og voru at-
hugasemdirnar jafnan jákvæðar.
Hún var komin í fantaform, leit vel
út og virtist vera að jafna sig.
Það var svo er líða tók að hausti
sem Spears fór að birtast á op-
inberum samkomum og gefa fjöl-
miðlum færi á sér, en nú á allt
annan hátt en áður.
Í ágúst birtist hún á forsíðu OK!
í sínu fyrsta viðtali í tvö ár að sögn
blaðsins. Stór myndasyrpa fylgdi
viðtalinu og allar sýndu myndirnar
hana hvítklædda, með bros á vör
og börnin sín tvö. Í viðtalinu ræddi
hún mikið um guð og fjölskylduna,
ímyndin var orðin allt önnur, hún
var hvítþvegin.
Endurkoman náði síðan nýjum
hæðum í september er hún fékk
þrenn verðlaun á bandarísku
MTV-tónlistarverðlaunahátíðinni,
sviðsljósið varð aftur hennar.
Söngkonan vinnur nú að nýrri
plötu sem á að koma út á 27 ára
afmælisdegi hennar, 2. desember
næstkomandi. Platan hefur hlotið
nafnið Circus og má ætla að hún
verði einhvers konar uppgjör við
fyrra líf hennar sem minnti oftar
en ekki á fjölleikahús. Miklar
væntingar eru gerðar til þessa
grips sem vonandi munu standast
Spears vegna.
Fréttaflutningur af Spears hef-ur allur færst í annað horf,
fréttirnar í dag snúast um vænt-
anlega plötu, góðgerðarstarf sem
hún virðist einbeita sér að um
þessar mundir og fjölskylduna en
hún hefur fengið aukinn umgengn-
isrétt yfir sonunum.
Þeir sem spáðu falli Britney
Spears verða nú líklega að éta hatt
sinn því meyjan er upprisin, jafn-
vel hreinni en fyrr.
ingveldur@mbl.is
Meyjan er upprisin
AF LISTUM
Ingveldur Geirsdóttir
» Í viðtalinu ræddi húnmikið um guð og
fjölskylduna, ímyndin
var orðin allt önnur,
hún var hvítþvegin.
Reuters
Sælleg Britney Spears tekur sæl og glöð við verðlaunum á MTV-tónlistarverðlaunahátíðinni í haust.
SKIPULEGGJENDUR Glastonbury
stefna nú á að fá rapparann Kanye
West til þess að koma fram á næstu
hátíð, en sú ákvörðun þeirra að
velja Jay-Z sem aðalnúmer í ár var
mjög umdeild. Fastagestir hátíð-
arinnar sögðu að hún hefði í gegn-
um tíðina fyrst og fremst verið
rokkhátíð og voru þeir ekki sáttir
við að rapparar væru farnir að
stela senunni. Til þess að forðast
sömu vandræði mun Kanye West
ekki verða auglýstur sem stærsti
skemmtikrafturinn á hátíðinni.
Michael Eavis, skipuleggjandi
Glastonbury-hátíðarinnar sagði í
samtali við Bang Showbiz frétta-
veituna: „Okkur þætti frábært að fá
Kanye West, við erum mjög hrifin
af honum. En ég myndi þá vilja að
hann kæmi fram á hliðarsviði, ekki
á aðalsviðinu. Á næsta ári ætlum
við að byggja hátíðina meira á hefð-
bundnum atriðum.“
Rappið sett
til hliðar
Á hliðarlínunni Kanye West.
SÖNGKONAN
Beyonce Know-
les hefur nú í
fyrsta sinn tjáð
sig um hjóna-
band sitt og
rapparans Jay-Z,
en þau hjóna-
korn hafa hingað
til ekki einu sinni
viljað staðfesta
að þau væru gift þó að brúðkaup
þeirra í apríl sl. spyrðist út til fjöl-
miðla.
„Það sem við Jay höfum er mjög
raunverulegt. Það snýst ekki um
viðtöl eða það að láta taka af okkur
myndir,“ sagði hún í samtali við
tímaritið Essence. Þá sagði
Beyonce að hún vildi að sín yrði
minnst í framtíðinni sem tónlistar-
manns sem hefði sett sín spor á tón-
listarsöguna. „Ég vil að fólk virði
mig sem konu í mjög hæfi-
leikaríkum sönghópi sem átti góð
lög og frábærar raddir. Við breytt-
um menningu kvenna, ekki bara í
Bandaríkjunum heldur um allan
heim.“
Tjáir sig um
hjónabandið
Beyonce Knowles