Morgunblaðið - 08.10.2008, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. OKTÓBER 2008 33
SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI
EIN FLOTTASTA ÆVITÝRAMYND ÁRSINS MEÐ
ÍSLENSKU LEIKKONUNNI ANÍTU BRIEM Í EINU
AF AÐALHLUTVERKUNUM.
/ SELFOSSI/ KEFLAVÍK/ AKUREYRI
ÍSLE
NSK
T TA
L
FRÁ MANNÖPUNUM
SEM FÆRÐU OKKUR
SHREK
FRÁBÆR FJÖLSKYLDUMYND
ÞAR SEM ALLIR SKEMMTA
SÉR KONUNGLEGA.
EMMA ROBERTS ER
NÝJA STELPAN, Í
NÝJA SKÓLANUM
ÞAR SEM NÝJU
REGLURNAR ERU
TIL VANDRÆÐA!
SÝND Í ÁLFABAKKA
-DV
-S.V., MBL
SÝND Í ÁLFABAKKA
KRINGLUNNI, AKUREYRI OG SELFOSSISÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI
SÝND Í ÁLFABAKKA, 20% afsláttur af miðaverði sé greittmeð greiðslukorti Vildarklúbbs Glitnis
“AFRAKSTURINN ER MÖGNUÐ
MYND Í ALLT ÖÐRUM GÆÐAFLOKKI
EN NOKKUR ÍSLENSK SPENNUMYND
(EÐA ÞÁTTARÖÐ) HINGAÐTIL.”
-B.S., FRÉTTABLAÐIÐ
“MÖGNUÐ MYND SEM HELDUR
ÁHORFENDUM ALLANTÍMANN”
-S.M.E., MANNLÍF
“REYKJAVÍK ROTTERDAM ER ÁVÍSUN UPP Á
ÚRVALSSKEMMTUN”
-DÓRI DNA, DV
SÝND Í KEFLAVÍK OG SELFOSSI
REYKJAVÍK ROTTERDAM kl. 8 - 10:10 B.i. 14 ára
WILD CHILD kl. 8 LEYFÐ
STEP BROTHERS kl. 10:10 B.i. 12 ára
BABYLON A.D. kl. 8 - 10 B.i. 16 ára
WILD CHILD kl. 8 LEYFÐ
CHARLIE BARTLETT kl. 10 B.i. 12 ára
REYKJAVÍK ROTTERDAM kl. 8 - 10:10 B.i. 14 ára
PINEAPPLE EXPRESS kl. 8 B.i. 16 ára
MIRRORS kl. 10:20 B.i. 16 ára
EIN BESTA MYND ÁRSINS!
SÝND Í KRINGLUNNI SÝND Á SELFOSSI SÝND Í KEFLAVÍK SÝND Í KEFLAVÍK
Glæsilegar gógóflugur
Þær kalla sig ekki gógópíur heldur hunangsflugur, stúlkurnar fjórar sem dansa í þættinum Singing
Bee sem nú er sýndur á Skjá einum við nokkrar vinsældir. Í þáttunum hrista þær upp í mannskapn-
um með danssporum sem Birta Björnsdóttir á heiðurinn af og eru þau stigin við allt að þrjátíu lög í
hverjum þætti. Morgunblaðinu lék forvitni á að vita meira um þessar hunangssætu flugur.
Hunangflugurnar Vigdís, Hildur, Steinunn og Sif kunna sporin, enda hafa þær allað stundað dansnám í fjöldamörg ár.
Skóli/starf: Ný-
útskrifuð úr
Verzló og svo
starfa ég á slysa-
og bráðadeild og í
B&S konur.
Dansað í mörg ár:
Þónokkur, hef
verið inn og út úr
dansnámi síðan ég
var með barnatennur.
Áhugamál: Matur, ferðalög, dans,
vinir og vandamenn.
Hvernig er að vera hunangsfluga?:
Það er hið ljúfasta líf, næst er stefnt
að heimsfrægð.
Vigdís
Sverrisdóttir
skjarinn.is/einn/islenskt/
singing-bee/
Skóli/starf: Ég
er nemandi á
þriðja ári í Verzl-
unarskóla Íslands
og starfa á
prompter niðri á
365 ljósvökum.
Dansað í mörg
ár? Já ég hef eig-
inlega verið að
dansa alveg síðan ég var krakki.
Byrjaði í ballett þegar ég var mjög
ung.
Áhugamál? Dans, dans og aftur
dans. Síðan kannski líka vera í góðra
vina hópi og ferðast.
Hvernig er að vera hunangsfluga?
Það er bara mjög fínt, bjóst ekki við
að þetta myndi vekja svona mikla at-
hygli.
Steinunn Edda
Steingrímsdóttir
Skóli/starf: Ég
er á síðasta ári í
Verzlunarskóla
Íslands.
Dansað í mörg
ár? Ég hef verið í
dansi frá sjö ára
aldri og hef þá
verið að æfa ball-
ett í Ballettskóla
Guðbjargar Björgvins, freestyle í
Dansskóla Birnu Björns og jazz og
modern í JSB.
Áhugamál? Mín aðaláhugamál eru
dans augljóslega, píanó, sálfræði, að
ferðast og tungumál.
Hvernig er að vera hunangsfluga?
Það er náttúrlega rosalega gaman
að fá tækifæri til þess að vinna með
öllu þessu fagfólki.
Sif Elíasdóttir
Bachmann
8. október – Menntaskólinn á
Egilsstöðum: Skátar, Bloodgro-
up, Mini-Skakkamanage.
9. október – Hraunsnef, Borg-
arfirði: Skátar, Bloodgroup, Dlx
Atx.
10. október – Edinborg-
arhúsið, Ísafirði: Skátar, Blo-
odgroup, Dlx Atx.
11. október – Græni hatturinn,
Akureyri: Skátar, Bloodgroup,
Dlx Atx.
14. október – Flensborg,
Hafnarfirði: Skátar, Bloodgro-
up, Sykur, Dlx Atx.
15. október – Paddy’s, Kefla-
vík: Skátar, Bloodgroup, Sykur,
Dlx Atx.
Dagskráin
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
Hljómsveitirnar Bloodgroup og
Skátar leggja í hringferð um landið
í kvöld ásamt fleiri sveitum. Fyrstu
tónleikarnir eru á Egilsstöðum.
Tónleikarnir eru liður í Innrás-
arátaki styrktarsjóðsins Kraums
sem miðar að því að byggja undir
frekara tónleikahald úti á landi og
hafa nokkur áhlaup verið gerð nú
þegar á þessu ári.
Eldar Ástþórsson, fram-
kvæmdastjóri Kraums, segir að
hugmyndafræðin á bakvið innrás-
ina felist í því að hjálpa sveitum að
spila meira úti á landi.
„Það getur verið æði kostn-
aðarsamt og þar kemur Kraumur
til,“ segir Eldar. „Það hefur líka
sýnt sig að það er akkur í þessu fyr-
ir listamennina. Að maður tali ekki
um fyrir viðkomandi sveitarfélög,
en dæmi eru um að heilu hljóm-
sveitirnar hafi verið stofnaðar í
kjölfar heimsókna af þessu tagi. Þá
skiptir líka máli að rækta bakgarð-
inn, það er ekki endilega málið að
fara rakleitt á einhverja klúbba í
London eða Amsterdam. “
Aðrir bakhjarlar þessa tiltekna
ferðalags eru Rás 2 og Ölgerðin.
Kraum-
andi innrás
Bloodgroup Janus og Lilja í sveiflu.
Skóli/starf: Ég
er að vinna á
gjörgæsludeild
Landspítalans, og
er danskennari í
Dansskóla Birnu
Björnsdóttur og
ballettkennari.
Einnig er ég í
fjarnámi.
Dansað í mörg ár? Byrjaði mjög ung
í ballett og fimleikum en fann mig
svo í dansi hjá Birnu þegar ég var 8
ára.
Áhugamál? Dans er mitt helsta
áhugamál og sérstaklega þá að
dansa á sviði.
Hvernig er að vera hunangsfluga?
Mjög skemmtilegt og ég kynntist
hressu fólki.
Hildur Jakobína
Tryggvadóttir