Morgunblaðið - 08.10.2008, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 08.10.2008, Qupperneq 36
MIÐVIKUDAGUR 8. OKTÓBER 282. DAGUR ÁRSINS 2008 FME tekur stjórnina á Glitni í sínar hendur  Fjármálaeftirlitið tilkynnti í gær- kvöldi að það hefði skipað skilanefnd fyrir bankann, og hún tæki yfir stjórn hans á grundvelli neyðarlaga, sem Alþingi setti í fyrrakvöld. Lárus Welding verður forstjóri enn um sinn. » Forsíða Samið við Rússa um lán  Hafnar verða viðræður við Rússa innan fárra daga um allt að fjögurra milljarða evra lán til íslenska rík- isins. Það jafngildir um 620 millj- örðum króna. Tilkynning um að lán- ið væri í höfn snemma dags í gær var of snemma á ferðinni. » 2 Nýr kafli í peningamálum  Fastgengisstefna var tekin aftur upp á Íslandi í gær. Gengið verður látið taka mið af gengisvísitölu 175, sem samsvarar 131 krónu gagnvart einni evru. Sjö ár eru liðin síðan gengi krónunnar var látið fljóta. » 9 Borgin tekur líka skell  Reykjavíkurborg fer ekki var- hluta af umskiptunum í efnahag landsins. Í gær var lögð fram að- gerðaáætlun vegna þess. Gera á áætlun um sölu eigna sem nemur að lágmarki einum milljarði króna og fjárheimildir ekki auknar í takt við verðbólgu. » 6 $$3 $3 3$$ 3 3$  $3 3 4 " #5%. +  # 6   ! (.$$ $$3  3$ $3 3 3 3$  $3 - 7)1 % $$3  3$ 3 3 3$ $3 89::;<= %>?<:=@6%AB@8 7;@;8;89::;<= 8C@%77<D@; @9<%77<D@; %E@%77<D@; %2=%%@F<;@7= G;A;@%7>G?@ %8< ?2<; 6?@6=%2+%=>;:; Gosi Borgarleikhúsinu »MEST LESIÐ Á mbl.is »VEÐUR mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 250 ÁSKRIFT 2950 HELGARÁSKRIFT 1800 PDF Á MBL.IS 1700 ÞETTA HELST» SKOÐANIR» Staksteinar: Farið í manngreinarálit Forystugreinar: Nýju vinir okkar? | Óþörf viðbótarbyrði Ljósvaki: Lögleg eiturlyf á sunnudegi UMRÆÐAN» Brýnt að lækka útgjöld heimilanna … Geðveikt Kjörnir fulltrúar Mannréttindabrot í íslenskum skólum Heitast 10°C | Kaldast 4°C  Vestan- og suðvestanátt, yfirleitt á bilinu 3-10 metrar á sekúndu. Stöku skúrir sunnan og vestan til. » 10 Þeir kalla sig hun- angsflugur, gógó- dansararnir í þátt- unum Singing Bee sem nú eru sýndir á Skjá 1. » 33 SJÓNVARP» Dansandi flugur TÓNLIST» Tónleikar Ólafar vöktu athygli í New York. » 29 Þegar nýjasta bókin í vampírusagna- flokki Stephenie Meyer lak á netið hætti hún við að gefa hana út. » 31 BÓKMENNTIR» Vampírur á netinu FÓLK» Beyonce Knowles tjáir sig um hjónabandið. » 32 TÓNLIST» Bloodgroup og Skátar ráðast út á land. » 33 Menning VEÐUR» 1. Reiðir viðskiptavinir Landsbankans 2. Mörg hundruð milljarðar vegna … 3. Baksvið: Hvaða „vinir“ brugðust? 4. Evran dýr hjá kortafyrirtækjum VERIÐ er að leggja lokahönd á undirbúning fyrir fyrstu frumsýningu vetrarins á stóra sviði Borgarleikhússins. Leikararnir í söngleiknum Fólkinu í blokkinni fínpússuðu persónur sínar á æfingu í gær, en verkið verður sýnt í fyrsta sinn á föstudagskvöldið. Fólkið í blokkinni er eftir Ólaf Hauk Sím- onarson og fjallar um íbúa fjölbýlishúss sem setja upp söngleik um sjálfa sig. Söngleikur Ólafs Hauks Símonarsonar frumsýndur á föstudagskvöld Söngelskir blokkarbúar Morgunblaðið/Kristinn BÓK Andra Snæs Magnasonar Draumalandið verður gefin út er- lendis á næstunni, þar á meðal í Bretlandi, Danmörku og Japan. Hann er nú í upplestrarferð um Bretland þar sem hann sótti meðal annars Bath lávarð heim og líkti hann heimsókninni við það að líta inn til Frank-N-Furters úr kvik- myndinni Rocky Horror Picture Show. Bath lávarður lifir um margt sér- stöku lífi og hefur til að mynda átt yfir 70 ástkonur, oft á milli 10 og 20 í einu, auk þess að eiga eiginkonu og börn. „Við fengum til dæmis að sjá kama sutra herbergið hans sem hann er búinn að láta skreyta sjálf- ur. Þar eru til dæmis sex nashyrn- ingshorn á rúmstokknum, þau eru talin örva kynhvötina,“ sagði Andri Snær. | 29 Draumalandið á leið til Japans Mátar Andri Snær og Bath. Eftir Einar Fal Ingólfsson og Gunnhildi Finnsdóttur „ÞETTA er áfall fyrir lítið safn eins og okkur, og kippir grundvellinum að ákveðnu leyti undan rekstrinum,“ sagði Halldór Björn Runólfsson, safnstjóri Listasafns Íslands í gær, þegar ljóst var að aðalstyrktaraðili safnsins hafði óskað eftir greiðslu- stöðvun. Margar aðrar menningarstofnanir og íþróttafélög hafa á síðustu árum treyst í auknum mæli á stuðning fyr- irtækja. „Aðalstyrktaraðili okkar var FL Group og þegar það hvarf af yfirborði jarðar þá tóku Stoðir við. Þær eru nú komnar í greiðsluþrot,“ segir Þröstur Ólafsson fram- kvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Landsbankinn hefur einnig stutt starf hljómsveitarinnar og óvíst um að framhald verði á því. Tinna Gunnlaugsdóttir þjóðleik- hússtjóri segir leikhúsið ekki vera upp á styrktaraðila komið. Hún segir að aðeins hafi verið samið um tiltekin einstök verkefni við slíka aðila og nefnir í því sambandi nýstofnaðan leikritunarsjóð sem Bjarni Ár- mannsson og Helga Sverrisdóttir lögðu fé til. Sagðist hún ekki eiga von á öðru en staðið yrði við gerða samn- inga. „En við erum í slæmri stöðu eins og aðrir í samfélaginu og erum að leita leiða til þess að draga saman seglin,“ segir Tinna. „Staðan hjá okkur er mjög góð, við erum með mjög öfluga sam- starfsaðila sem hafa af rausnar- skap komið til liðs við leikhúsið og það hefur ekki orðið nein breyting varðandi eitt eða neitt,“ segir Magnús Geir Þórðarson leikhús- stjóri í Borgarleikhúsinu. Svipaða sögu segja forsvars- menn íþróttafélaga sem Morgun- blaðið ræddi við. Annaðhvort eru samningar við fyrirtæki í uppnámi eða þeir hafa verið skornir niður. Mörg félög hafa gripið til þess ráðs að segja upp erlendum leikmönn- um og þjálfurum. | 28 og Íþróttir Styrktaraðilar hverfa  Stuðningur við íþrótta- og menningarstarf fer þverrandi  Hremmingar Samson áfall fyrir Listasafn Íslands Morgunblaðið/Brynjar Gauti Óvissa Samningar við mörg íþróttafélög eru í uppnámi. Í HNOTSKURN »Sinfóníuhljómsveitinmissir 20 til 30 milljóna tekjur á ári ef nýir stuðn- ingsaðilar fást ekki. Heild- arvelta hennar er 700 millj- ónir og er hún að langstærstu leyti rekin af ríki og borg.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.