Fréttablaðið - 24.04.2009, Side 2
2 24. apríl 2009 FÖSTUDAGUR
Norrænt velferðarsamfélag
Tryggjum jafnan aðgang að góðri heilbrigðisþjónustu, grunnheilsu-
gæslu og menntun. Föllum frá frekari einkavæðingu og aukinni
gjaldtöku í velferðarkerfinu og eflum lýðheilsu, heimaþjónustu
og heimahjúkrun.
SAMGÖNGUR Borgarstjórinn í
Reykjavík og vegamálastjóri undir-
rituðu fyrr í mánuðinum samkomu-
lag um vegbætur í Reykjavík. Sam-
kvæmt því á að fara í fjölda aðgerða
sem munu auka umferðarflæði og
bæta umferðaröryggi. Hanna Birna
Kristjánsdóttir borgarstjóri segir
samkomulagið dæmi um það hve
hægt er að áorka miklu án þess að
fara í stórar framkvæmdir.
„Þetta eru lagfæringar sem virð-
ast ekki stórar en þegar saman er
komið skipta þær miklu máli. Við
höfum átt mjög ánægjulegt sam-
starf við samgönguráðuneytið og
Vegagerðina og þetta felur í sér
mörg framfaraskref í samgöngu-
málum fyrir Reykvíkinga.“
Reiknað er með að öll verkin
verði unnin á árinu 2009. Eink-
um er um að ræða úrbætur á fjöl-
förnum gatnamótum ásamt sér-
stökum aðgerðum til að greiða
fyrir almenningssamgöngum og
umferð gangandi og hjólandi veg-
farenda. Þá eiga aðgerðirnar að
auka umferðaröryggi. Heildar-
kostnaður við framkvæmdirnar
er um 460 milljónir króna. Þar af
er hlutur Reykjavíkur 140 milljón-
ir en Vegagerðarinnar 320 milljón-
ir króna. kolbeinn@frettabladid.is
Greitt fyrir umferð
með fjölda aðgerða
Undirritað hefur verið samkomulag um viðamiklar bætur á umferðarmann-
virkjum á ýmsum stöðum í Reykjavík. Með þeim á að auka umferðarflæði og
bæta öryggi með tiltölulega ódýrum aðgerðum. Verkin verða öll unnin í ár.
Kringlumýrarbraut – Borgartún
Umferðarljósastýringu breytt úr 3 í 4
fasa þannig að allar vinstri beygjur séu
varðar. Sérstök akrein fyrir strætisvagna
á Kringlumýrarbraut til norðurs inn á
Borgartún.
Hringbraut – Sæmundargata
Gatnamót lagfærð og vinstri-
beygjuvasi lengdur. Vinstri beygja af
Sæmundargötu til vesturs bönnuð.
2
3
4
5
10
11
9
8
7
6
4
3
2 1
11
5
6
7
8
9
10
1 Bústaðavegur – Reykjanesbraut
Gatnamót lagfærð og vinstribeygja af
Bústaðavegi inn á Reykjanesbraut til
norðurs lokuð á álagstímum. Upplýs-
ingaskilti sett upp um lokunina.
Höfðabakki – Vesturlandsvegur
Afköst gatnamótanna á Höfðabakka
aukin. Tilfærsla akreina til að greiða fyrir
umferð til norðurs.
Hringbraut – Njarðargata
Umferðarljósastýringu breytt úr 3 í 4
fasa þannig að allar vinstri beygjur séu
varðar.
Bústaðavegur – Flugvallarvegur
Vinstri beygja til suðurs inn á Flug-
vallarveg tvöfölduð og Flugvallarvegur
tvöfaldaður.
Kringlumýrarbraut – Listabraut
Strætóbiðstöð lengd og gönguleiðir yfir
Kringlumýrarbraut lagaðar.
Bústaðavegur- Kringlumýrarbraut
Rampar til suðurs í átt að Kringlumýr-
arbraut tvöfaldaðir. Undirgöng gerð
fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur.
Kringlumýrarbraut – Laugavegur
– Suðurlandsbraut
Umferðarljósastýringu breytt úr 3 í 4
fasa þannig að allar vinstri beygjur séu
varðar. Sérstök akrein fyrir strætisvagna
á Suðurlandsbraut gegnum gatnamót-
in til vesturs.
Miklabraut – Kringlumýrarbraut
Forgangsakrein strætó lengd.
Breiðholtsbraut – Jaðarsel
Stýringu á umferðarljósum breytt til
að auka afköst. Gerð framhjáhlaups til
austurs fram hjá umferðarljósunum.
FRAMKVÆMDIR Í REYKJAVÍK ÁRIÐ 2009
HEIMILD: FRAMKVÆMDAFRÉTTIR
UMHVERFISMÁL Megna skólp-
lykt leggur af holræsi Seyðfirð-
inga sem opnast beint út í sjó þar
til framkvæmdum við nýja frá-
rennslislögn lýkur.
„Þetta er kannski ekki geðslegt
en það hefur verið vegna þess að
það eru komnir garðar hvor sínum
megin við lögnina til að halda
vatninu frá vinnusvæðinu. Þegar
flæðir er þetta hálf ógeðslegt,“
segir Ólafur Hr. Sigurðsson bæjar-
stjóri sem kveður skólp hafa runn-
ið í sjóinn á þessum stað í fimm ár,
eða frá því höfnin var gerð.
Að sögn Ólafs þurfa menn að
sæta lagi og vinna verkið á fjöru.
„Nú á bara eftir að tengja saman
tvö rör, þvert í gegnum lónið, og
þetta klárast í síðasta lagi í næstu
viku,“ lofar Ólafur sem kveð-
ur nýja frárennslið verða mikla
bragar bót. Verkið kosti um 150
milljónir króna.
„Þegar framkvæmdum lýkur
verðum við komin með allt skólpið
í eina útrás sem er nánast hvergi
búið að gera á landinu. Skólpið fer
þá 150 metra frá landi og opnast á
24 metra dýpi,“ segir bæjarstjór-
inn. - gar
Slæmt ástand þar til endurbótum á frárennsli á Seyðisfirði lýkur:
Skólplykt í fjörunni senn úr sögunni
LÓNIÐ Á SEYÐISFIRÐI Skólplyktin er
hvimleið en bæjarstjórinn segir að fram-
kvæmdum ljúki á næstu dögum.
LÖGREGLUMÁL Það var fyrir árvekni borgara og lög-
reglunnar á Eskifirði að ekki tókst að smygla 109 kíló-
um af fíkniefnum með skútunni SIRTAKI til landsins
um síðustu helgi, samkvæmt upplýsingum sem Frétta-
blaðið hefur aflað sér.
Menn um borð í fiskibát komu auga á skútuna úti á
reginhafi. Sigling þessa litla báts svo langt úti á hafi á
þessum árstíma vakti athygli mannanna og létu þeir
lögreglumann í Reykjavík vita af ferðum hans. Sá
hafði þá samband við lögregluna á Eskifirði sem setti
samstundis aðgerðir í gang. Lögreglan á Eskifirði ósk-
aði þá jafnframt eftir aðstoð lögreglunnar á höfuð-
borgarsvæðinu, sérsveitarinnar og Landhelgisgæsl-
unnar.
Eins og fram kom í Fréttablaðinu í gær handtóku
tveir sérsveitarmenn ásamt lögreglunni á Eskifirði
tvo menn á jeppa í nágrenni Djúpavogs. Mennirnir
sitja nú í gæsluvarðhaldi. Lögreglan á Höfn handtók
síðar annan mann, einnig á jeppa, sem í voru 109 kíló
af fíkniefnum.
Það voru svo sérsveitarmenn og gæslumenn sem
staðsettu skútuna, fóru um borð og handtóku þar þrjá
menn. Þeir sitja einnig í gæsluvarðhaldi.
Samkvæmt Friðriki Smára Björgvinssyni, yfir-
manni rannsóknardeildar lögreglunnar á höfuðborg-
arsvæðinu, höfðu engir fleiri verið handteknir vegna
málsins í gærkvöldi. Spurður hvers vegna fíkniefnda-
deild lögreglunnar hafi ekki verið á staðnum úr því að
rannsókn á málinu stóð yfir segir Friðrik að aðgerð-
irnar hafi borið brátt að, þó svo að rannsóknin hafi
staðið yfir lengi. Hann vildi ekki tjá sig nánar um
málið. - kg
Árvekni borgara og lögreglunnar á Eskifirði skipti sköpum:
Tilviljun að fíkniefnin náðust
Á LEIÐ Í AÐGERÐ Hluti sérsveitarmanna og áhöfn á TF-LÍF,
þyrlu Landhelgisgæslunnar, sem komu að aðgerðum í þessu
umfangsmikla smyglmáli.
SKIPULAGSMÁL Endurskoða á
nýsamþykkt deiliskipulag sem
gerði ráð fyrir nýrri hest-
húsabyggð nærri Elliðaánum.
Skipulagsráð
Reykjavíkur
samþykkti
þetta á þriðju-
dag í fram-
haldi af fund-
um formanns
skipulagsráðs,
Júlíusar Vífils
Ingvarssonar
og embættis-
manna með
formanni
Hestamannafélagsins Fáks,
framkvæmdastjóra og formanni
Stangaveiðifélags Reykjavíkur og
veiðimálastjóra ásamt sérfræð-
ingum Veiðimálastofnunar. „Voru
það opinskáir og hreinskiptir
fundir. Frumkvæði Hestamanna-
félagsins Fáks í framhaldi af
þessu er þakkarvert“ segir í til-
lögu Júlíusar um að reyna eigi að
ná sátt um nýtingu svæðisins. - gar
Skipulagsdeila í Elliðaárdal:
Hesthúsabyggð
endurskoðuð
ORKUMÁL Vatnsstaðan í Blöndu-
lóni er nú í sögulegu lágmarki.
Að sögn Guðmundar Ólafsson-
ar hjá Blönduvirkjun stafar
þessi óvenjulega staða af bilun
sem varð í Sultartangavirkj-
un í fyrra og olli því að keyra
þurfti Blöndustöðina meira en
vanalega. „En þetta er í sjálfu
sér ekkert óeðlilegt og á eftir
að jafna sig,“ segir Guðmundur.
Ómögulegt sé að svara því hvort
þetta muni seinka því að Blanda
fari á yfirfall í sumar. „Veiði-
menn spyrja mikið um þetta en
það eru svo margir þættir sem
geta haft áhrif og vatnsstaðan
breyst fljótt.“ - gar
Blöndulón í lágmarki:
Ekki til að hafa
áhyggjur af
JÚLÍUS VÍFILL
INGVARSSON
Helgi, tókstu ekki full stóran
cjéns með þessu?
„Nei, það vekur mikla athygli að
vera með svona jákvæða ögrun.“
Auglýsingar fyrir söngleikinn The Produc-
ers í uppfærslu Admirals Palast-leikhúss-
ins í Berlín, sem Helgi Björnsson rekur,
voru teknar niður vegna fjölda kvartana,
en þær prýddu myndir af Adolf Hitler.
Fyrsta breiðskífa Grafíkur, hljómsveitar-
innar sem Helgi söng með hér á árum
áður, heitir Get ég tekið cjéns?
LÖGREGLUMÁL Karlmaður var
handtekinn í gær eftir að hann
stakk annan mann með hnífi
í lærið og handlegg fyrir utan
verslun Krónunnar í Jafnaseli
í Seljahverfi. Árásarmaðurinn
flúði af vettvangi en var hand-
samaður skömmu síðar í bifreið
sinni í Holtaseli. Fórnarlambið
var flutt á slysadeild en er,
að sögn lögreglu, ekki mikið
slasað.
Árásarmaðurinn og fórnar-
lambið þekktust og hafa áður
komið við sögu lögreglu. Árás-
armaðurinn var fluttur í fanga-
geymslur og bíður þess að verða
yfirheyrður.
Lögreglumál í Breiðholti:
Stakk mann
með hníf í læri
SAMGÖNGUMÁL Siglingastofnun
Íslands er að ljúka rannsókn-
um og líkantilraunum á mögu-
legum stórskipakanti við Húsa-
víkurhöfn. Verkefnið var kynnt
samgönguráðherra og fulltrú-
um sveitarfélagsins Norðurþings
fyrir skömmu.
Stækkun Húsavíkurhafnar
hefur það markmið að geta þjón-
að stórflutningum vegna hugs-
anlegrar stóriðju á Bakka fyrir
norðan bæinn. Engar ákvarðan-
ir hafa verið teknar um fjárveit-
ingar eða framkvæmdatíma.
Lengd garðsins yrði um 700
metrar og í hann færi um ein
milljón rúmmetrar af efni. Dýpi
við ysta hluta garðsins yrði allt
að tuttugu metrum og á garðinn
kæmi 300 metra löng bryggja
með um fjórtán metra dýpi. - shá
Stórskipahöfn á Húsavík:
Undirbúningur
fyrir flutninga
vegna álvers
BÓKMENNTIR Hjörleifur Svein-
björnsson hlaut íslensku þýðinga-
verðlaunin árið 2009 við athöfn
á Gljúfrasteini í gær. Þetta var í
fimmta sinn sem verðlaunin eru
afhent.
Verðlaunin hlaut Hjörleifur
fyrir þýðingu sína á sýnisbók
kínverskrar frásagnarlistar frá
fyrri öldum, Apakóngur á Silki-
veginum, sem JPV gefur út. Í
dómnefndaráliti segir að Hjör-
leifur þýði hinn forna texta jafnt
sem yngri sögurnar á afar vand-
aða og aðgengilega íslensku.
Texti Hjörleifs sé aðdáanlega til-
gerðarlaus og víða bregði fyrir
skemmtilegum íslenskum nýyrð-
um sem styðji vel við þann anda
og boðskap sem sögurnar leitast
við að miðla. - kg
Íslensku þýðingaverðlaunin:
Hjörleifur hlaut
verðlaunin
SPURNING DAGSINS