Fréttablaðið - 24.04.2009, Blaðsíða 12
12 24. apríl 2009 FÖSTUDAGUR
nær og fjær
„ORÐRÉTT“
Sjö flokkar og hreyfingar
bjóða fram í öllum kjör-
dæmum í alþingiskosning-
unum á morgun. Talsvert
fleiri karlar en konur eru
á listum. Nemar eru fjöl-
mennasta einstaka stéttin í
framboði. Yngsti frambjóð-
andinn er nýorðinn átján en
þeir elstu eru á 86. aldurs-
ári.
Samtals eru 882 á framboðslistun-
um 42 sem boðnir eru fram í kjör-
dæmunum sex. Átján til 24 eru á
hverjum lista en fjöldinn ræðst af
fjölda kjósenda – og þar með þing-
manna – í hverju kjördæmi.
Samantekin kynjaskipting á
framboðslistunum er konum í
óhag. Þær eru 355 á móti 527 körl-
um. Hlutföllin eru rúm 40 pró-
sent á móti tæpum 60 prósentum.
Meira jafnræði var með kynjun-
um hvað þetta áhrærir í kosning-
unum 2007.
Karlar eru í oddvitasætum 30
lista en konur tólf.
Aldurinn
Tæp sjötíu ár skilja að yngsta og
elsta frambjóðandann. Yngst er
Ingibjörg A. Jónsdóttir nemi sem
skipar tíunda sætið á lista Lýð-
ræðishreyfingarinnar í Norð-
austurkjördæmi. Hún varð átján
ára fyrir tuttugu dögum. Elstur er
hins vegar Tómas Árnason, fyrr-
verandi alþingismaður og ráð-
herra, sem er í heiðurssæti hjá
Framsóknarflokknum í Reykja-
vík suður. Tómas er fæddur í júlí
1923 og er því á 86. aldursári.
Þremur vikum yngri en Tómas er
Páll Bergþórsson veðurfræðing-
ur sem er í 21. sæti VG í Reykja-
vík norður.
Jafngömul Ingibjörgu, fædd
1991 en fyrr á árinu en hún, eru
fjórir frambjóðendur. Guðný
Rut Hafsteinsdóttir, Ragnheiður
Svava Þórólfsdóttir og Már Más-
son Maack eru öll á lista Lýðræð-
ishreyfingarinnar en Ottó Marvin
Gunnarsson er í framboði fyrir
Frjálslynda flokkinn.
Stéttirnar
Allir eru yngstu frambjóðendurn-
ir nemar og þar með í hópi fjöl-
mennstu stéttarinnar í framboði.
Alls eru 93 nemar á listum. 76
kennarar og annað skólafólk er í
framboði. Annars leiðir athugun
á starfsheitum frambjóðenda í ljós
að 35 starfa við sjávarútveg, 32
við landbúnað og 21 tilheyrir heil-
brigðisstéttum. 31 framkvæmda-
stjóri er á lista.
Ógrynni starfsheita og titla
bregður fyrir á framboðslistun-
um. Flest er það hefðbundið en
annað síður. Gunnar Þór Björg-
vinsson er til dæmis þjóðfélags-
þegn, Gunnar Sigfússon er for-
seti nemendafélags, Kristín Ósk
Ómarsdóttir er fósturforeldri,
Karl Löve er þúsundþjalasmiður
og Trausti Jósteinsson er götu-
hlaupari með meiru.
Við lauslega skoðun sést að þrír
á framboðslistunum eru búsettir
í útlöndum. Einn í Genf, annar í
Brussel og sá þriðji í Ósló.
Möguleikarnir
Af þeim sextíu og þremur sem nú
sitja á þingi eru 43 í því sem segja
má að séu líkleg þingsæti. Þeir ná
aldrei allir kjöri og því ljóst – eins
og jafnan fyrr – að dágóður hópur
manna þarf að finna sér nýjan
starfsvettvang eftir kosningar.
Tuttugu og tveir nýliðar hlutu
kosningu 2007.
Tuttugu af þeim sem sátu á
kjörtímabilinu sem nú er að ljúka
hættu annaðhvort af sjálfsdáðum
eða féllu í prófkjörum.
882 á framboðslistum
AUÐIR STÓLAR Kosið er til 63 lausra þingsæta í alþingiskosningunum á morgun.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Það hefur lengi verið hefð í stjórn-
málaflokkunum að stilla fyrrverandi
foringjum eða fólki á leið úr pólitík-
inni í heiðurssæti framboðslistanna.
Framsókn og sjálfstæðismenn halda
þá hefð í heiðri.
Í fimm af sex heiðurssætum
Framsóknarflokksins eru fyrrverandi
þingmenn og ráðherrar og eru þrír
þeirra þrír fyrrverandi flokksformenn.
Samtals á heiðurssætafólk Fram-
sóknar að baki 88 ár á þingi og 33
ár í ráðherraembættum. Í heiðurs-
sætunum sitja Magnús Stefánsson,
Valgerður Sverrisdóttir, Guðni
Ágústsson, Steingrímur Hermanns-
son og Tómas Árnason sem öll voru
þingmenn og ráðherrar. Auk þeirra
er Valdimar K. Jónsson prófessor í
heiðurssæti.
Sjálfstæðisflokkurinn býður betur en
Framsókn í þessum efnum því þar
á bæ er þingreynslan samtals 92 ár
og ráðherrareynslan 42 ár. Fjórir láta
af þingmennsku við kosningarnar
nú, þeir Árni M. Mathiesen, Björn
Bjarnason, Geir H. Haarde og Sturla
Böðvarsson. Þar er líka Salome Þor-
kelsdóttir sem var á þingi um árabil
og svo Helgi Ólafsson rafvirkjameist-
ari.
Samfylkingin er talsverður eftirbátur
áðurnefndra tveggja flokka en státar
samt af töluverðri þingreynslu, sam-
tals 43 árum. Ráðherrareynslan er
bara tvö ár. Í heiðurssætunum sitja
Gunnar Svavarsson, Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir og Lúðvík Bergvinsson
sem öll hætta á þingi nú, Karvel
Pálmason, fyrrverandi alþingis-
maður, og Vilhjálmur H. Pálsson,
fyrrverandi íþróttakennari, og Grétar
Þorsteinsson, fyrrverandi forseti ASÍ.
Í heiðurssætum VG eru tveir
fyrrverandi þingmenn, þær Kristín
Halldórsdóttir og Málmfríður Sig-
urðardóttir. Eiga þær saman að baki
fjórtán ár á þingi. Aðrir eru Guð-
brandur Brynjúlfsson bóndi, Karl G.
Sigurbergsson, fyrrverandi skipstjóri,
Einar Laxness sagnfræðingur og
Margrét Guðnadóttir veirufræðingur.
Frjálslyndi flokkurinn hefur einn
varaþingmann og einn fyrrverandi
varaþingmann í heiðurssæti, þau
Þórunni Kolbeins Matthíasdóttur
og Pétur Bjarnason. Að auki eru í
heiðurssætum Egill Guðlaugsson
garðyrkjubóndi, Guðmundur Óskar
Hermannsson veitingamaður,
Kjartan Halldórsson atvinnurekandi
og Sophaporn Sandra Arnórsson
húsmóðir.
Engin þingreynsla er á listum
Borgarahreyfingarinnar, hvorki í
heiðurssætum né öðrum sætum. En
í heiðurssætunum sitja Erna María
Ragnarsdóttir athafnakona, Eva
Ásmundsdóttir námsmaður, Friðjón
Björgvin Gunnarsson, fyrrverandi
framkvæmdastjóri, Hörður Ing-
valdsson verslunarmaður, Sigurður
Stefánsson nemandi og Sveinbjörn
S. Herbertsson járnsmiður.
Lýðræðishreyfingin raðar ónúmerað
á lista og því engin eiginleg heiðurs-
sæti hjá henni.
HOKIN AF REYNSLU Í HEIÐURSSÆTUNUM
„Í augnablikinu er ég að borða normalbrauð með
útrunninni kæfu og það verður spennandi að sjá
hver útkoman úr því verður. Annars á ég heima
á Facebook þessa dagana. Þar uni ég mér við að
uppfæra statusinn minn og njósna um fólk,“ segir
Tinna Kristjánsdóttir, verslunarstjóri Bókabúðar-
innar Bergstaðastræti.
Tinna segist einnig nýta samskiptavefsíðuna
vinsælu til að drekkja sorgum sínum.
„Þannig er mál með vexti að við erum þrjár
vinkonur sem ákváðum að gifta
okkur á Facebook í stað þess að
standa í einhverju kvennastandi
utan netsins. Eiginkonurnar eru
báðar farnar af landi brott, önnur
til London og hin til Los Angeles,
og þess vegna er ég sorgmædd
grasekkja í dag,“ segir Tinna og hlær.
Tinna starfar í Bókabúðinni Bergstaða-
stræti og hverfur gjarnan á vit bókanna í söknuði
sínum. „Í svona ástandi finnst mér gott að sökkva
mér ofan í alfræðiorðabók um riffla og sjálfs-
hjálparbækur. Svo dansa ég eins og ég eigi lífið
að leysa, í vinnunni, á skemmtistöðum og hvar
sem gólfpláss finnst, ásamt því að syngja með
nýstofnaðri hljómsveit. Svo tek ég mér reglulega
ferð úr Kópavoginum í siðmenninguna í Sund-
laug Vesturbæjar.“
Tinna hefur sett stefnuna á að komast í leiklist-
arnám erlendis. „Ég hugleiði mikið hvernig
ég geti aflað mér aura til að komast í námið.
Ef einhver hefur áhuga á að fjármagna
þennan draum minn er viðkomandi
meira en velkomið að leggja inn á
mig. En núna ætla ég drífa mig
að láta laga Pee-wee Herman-
hjólið mitt. Gleðilegt sumar!“
segir Tinna.
HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? TINNA KRISTJÁNSDÓTTIR VERSLUNARSTJÓRI
Grasekkja á Pee-wee Herman-hjóli
VÍGORÐ FRAMBOÐANNA
Borgarahreyfingin - Þjóðin á þing
Framsóknarflokkurinn - Fyrir okkur öll
Frjálsl. fl. - Forysta fyrir íslenska þjóð
Lýðræðishr. - Þitt atkvæði á þing
Samfylkingin - Vinna og velferð
Sjálfst.fl. - Göngum hreint til verks
VG - Vegur til framtíðar
Kynntu þér málið hjá sölumönnum Eirvíkur
Íslenskt stjórnborð - Stórt hurðarop
Íslenskar leiðbeiningar - 20 ára ending
Miele þvottavélar hafa verið framleiddar í yfir hundrað ár.
Miele þvottavélar eru framleiddar til að endast.
Þvottavélar - Verð frá kr. 154.995
Þurrkarar - Verð frá kr. 129.995
TILBOÐ
Sparaðu
með Miele
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is
POL POT
SLAPP UNDAN RÉTTVÍSI
■ Leiðtogi Rauðu khmeranna í
Kambódíu gekk undir nafninu Pol
Pot, en hét réttu
nafni Saloth Sar.
Hann var leiðtogi
khmeranna í stjórn-
artíð þeirra sem
hófst árið 1963.
Talið er að ógnar-
stjórn khmeranna
hafi valdið dauða
um fjórðungs Kambódíumanna,
750 þúsunda til 1,7 milljóna manna.
Víetnamskar hersveitir frelsuðu land-
ið úr höndum khmeranna árið 1979,
en Pol Pot slapp undan réttvísinni.
Honum var steypt af stóli sem leið-
toga Rauðu khmeranna, sem héldu
til í frumskógum Kambódíu, og lést
í haldi fyrrverandi félaga sinna árið
1998.
Í alvöru?
„Frömurum finnst ekki
gaman að láta lemja sig. Við
vitum að það pirrar þá.“
FREYR BRYNJARSSON, LEIKMAÐ-
UR HAUKA, UNDIRBÝR SIG FYRIR
ODDALEIK Í UNDANÚRSLITUM
ÍSLANDSMÓTSINS Í HANDBOLTA.
Vísir, 23. apríl
Ekki veitir af
„Þó staða hans [Sjálfstæðis-
flokksins] í skoðanakönnun-
um sé afleidd má reikna með
að veðrið hjálpi eitthvað.”
SIGURÐUR H. RAGNARSSON SPÁIR Í
ÚRSLIT KOSNINGANNA OG VEÐUR-
FARIÐ Á KJÖRDAG
Vísir, 23. apríl