Fréttablaðið - 24.04.2009, Page 13

Fréttablaðið - 24.04.2009, Page 13
FÖSTUDAGUR 24. apríl 2009 13 „Menn voru eitthvað að tala um að þetta gæti komið óorði á Gleði- víkina svo ég ákvað að setja þetta saman,“ segir Björn Hafþór Guð- mundsson, sveitarstjóri Djúpavogs, en fíkniefnum var komið þar á land í dópmálinu um síðustu helgi. Stakan hljóðar svona: Gjálfr- ar alda í Gleði- vík / glampar hlein í fjöru / fól ei verða fíkn á rík / fá að hanga í snöru. „Ég tek það þó sérstaklega fram að ég er ekki hlynntur dauðarefsingum en kemst svona að orði um að réttlæt- inu verði fullnægt.“ Björn Hafþór segir Djúpavogs- búa eiga von á nokkrum skemmti- ferðaskipum í sumar en því miður er of grunnt í Gleðivík til að þau geti lagst þar að bryggju. - jse Sveitarstjóri Djúpavogs: Setur saman stöku um dópmálið „Það gekk býsna vel að komast upp en þetta er náttúrulega mjög bratt og þetta er löng brekka þannig að maður þurfti nú að taka svolít- ið á því,“ segir Björn Böðvarsson Mývetningur sem síðastliðinn þriðjudag fór upp á toppinn á Herðu- breið á vélsleða og er það í fyrsta sinn sem farið er upp á fjallið með þeim hætti. „En þetta var svo sem aldrei neitt hættuspil enda er ég búinn að fara langleið- ina áður þótt ég hafi aldrei farið alla leið upp. Ég er búinn að vera að gefa henni [Herðubreið] auga í svona fimm ár.“ En hvernig tilfinning er svo að vera þarna uppi eftir átökin? „Manni líður náttúrulega alveg eins og kóngi,“ svarar hann. „Það var logn og útsýnið alveg geggjað svo ég tók mér smá tíma til að njóta þess að vera þarna.“ Björn fór við fjórða mann á sleð- um að fjallinu en fór aleinn á tind- inn. Björn lagði af stað frá bernsku- stöðvum sínum í Gautlöndum í Mývatnssveit um klukkan sjö í gær- morgun og var kominn á toppinn um klukkan níu. - jse Á snjósleða á Herðubreið: Leið eins og konungi BJÖRN BÖÐVARSSON HERÐUBREIÐ Þannig leit þetta tignar- lega fjall út í blíðunni í gærmorgun þegar Björn fór upp á sleðanum. BJÖRN HAFÞÓR GUÐMUNDSSON ESB snýst um vinnu og velferð Það þarf að vera algjört forgangsverkefni nýrrar ríkisstjórnar að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið. Okkur ber skylda til að láta reyna á þennan möguleika til að tryggja íslenskum fjölskyldum og fyrirtækjum sömu kjör og best gerast í Evrópu. Viðræður eru mikilvægt skref. Að þeim loknum hefur þjóðin svo síðasta orðið í atkvæðagreiðslu um niðurstöðuna. Evrópusambandið er náið samstarf 27 fullvalda ríkja um eflingu raunverulegra lífsgæða og hugsjóna lýðræðis og jafnréttis. Við teljum að Íslendingar eigi fullt erindi í þetta samstarf því það mun tryggja að endurreisnin á Íslandi verði á traustum grunni. www.xs.is Við erum sammála helstu samtökum launafólks og atvinnurekenda um kosti aðildar að ESB: Hraðari endurreisn Lægri vextir Afnám verðtryggingar Stöðugur gjaldmiðill Meira frelsi til náms erlendis Afnám gjaldeyrishafta Fjölbreyttari atvinnusköpun Fullt forræði þjóðarinnar yfir auðlindum Öflugri velferðarþjónusta Lengi vel lögðu flokkarnir nokkurt kapp á að flagga þjóðþekktum einstaklingum neðarlega á listum sínum. Heldur hefur dregið úr því með árunum en nokkra þekkta má þó finna ef vel er rýnt. Á listum hjá Sjálfstæðisflokknum eru fótboltamennirnir Pétur Hafliði Marteinsson og Þórður Guðjónsson og handboltamennirnir Sigurbergur Sveinsson og Sigfús Sigurðsson. Þar er líka Dísa í World Class, mynd- listar- og tónlistarmaðurinn Pjetur Stefánsson og Elín Ósk Óskars- dóttir óperusöngkona. Samfylkingin er með fótbolta- mennina Arnar Grétarsson og Pétur Georg Markan á sínum listum, Silju Úlfarsdóttur frjáls- íþróttakonu og óperusöngvarann Jóhann Friðgeir Valdimarsson. Dágóður hópur listamanna er í framboði fyrir VG. Má þar nefna rithöfundana Kristínu Helgu Gunnarsdóttur, Einar Má Guð- mundsson, Guðrúnu Evu Mínervu- dóttur og Kristján Hreinsson. Þar er líka tónlistarfólkið Heiða í Unun, Ellen Kristjánsdóttir og Erpur Eyvindarson auk Kolfinnu Bald- vinsdóttur fjölmiðlakonu. Leikararnir Hjálmar Hjálmars- son og Valgeir Skagfjörð eru í framboði fyrir Borgarahreyfing- una og sitja raunar ofarlega á listum en Ásgeir Davíðsson, Geiri á Goldfinger, er á lista Lýðræðishreyf- ingarinnar. Frægir í framboði

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.