Fréttablaðið - 24.04.2009, Síða 31
FÖSTUDAGUR 24. apríl 2009
UMRÆÐAN
Grímur Atlason skrifar
um Evrópumál
Við verðum að skipta um gjaldmiðil – það
er staðreynd. Kerfið, sem
kallað var íslenska efna-
hagsundrið, bjó hér til loft-
bóluhagkerfi sem sprakk í
andlitið á okkur með hrikalegum
afleiðingum. Vaxtamunur og ónýt-
ur gjaldmiðill hafa síðan gert það
að verkum að við erum í algjörri
pattstöðu. Nú er svo komið að þessi
fyrirtæki eru flest farin að pakka
niður og ætla sér annað. Við verð-
um að bregðast við.
Verkefni stjórnvalda eftir þessar
kosningar eru eftirfarandi:
1. Setja sér samningsmarkmið
og sækja um aðild að Evrópusam-
bandinu og lýsa yfir eindregnum
vilja okkar til þess að leggja af
krónuna sem gjaldmiðil og taka
upp evru.
2. Þjóðnýta kvótann og tryggja
þannig að auðlindin haldist hjá
þjóðinni og að byggðir landsins
geti blómstrað á ný.
3. Ofangreindar aðgerðir ásamt
samningum við lánardrottna okkar
og jöklabréfaeigendur gerir það að
verkum að hægt verður að lækka
vexti fljótt og örugglega og verð-
bólga lækkar í kjölfarið.
4. Menntun menning og aftur
menntun og menning eru
lykilhugtök uppbygging-
arinnar.
5. Styrkja sveitarstjórn-
arstigið þannig að nær-
samfélagið verði starf-
hæft – en það er lykillinn
að uppbyggingu.
6. Veðja á margt smátt
í stað þess að veðja á
eina patent lausn: Álver
og bankar eru ágæt með en bara
álver og bara bankar er fullreynd-
ur stígur.
7. Fæðuöryggi þjóðarinnar verð-
ur best tryggt með því að hlúa að
og styrkja íslenska matvælafram-
leiðslu – það fer ágætlega saman
við inngöngu í Evrópusambandið.
Það er klárt mál að samnings-
markmið okkar eiga að vera skýr
þegar kemur að samningum við
ESB. Sérstaða íslensks landbún-
aðar og sjávarútvegs liggur fyrir.
Við erum eyþjóð og það er klárt að
óheftur innflutningur t.d. á hráu
kjöti gengur ekki upp. Það er líka
rétt að 90% af pakkanum liggur
ljós fyrir. En það er ekki eins og
það sé slæmt.
Það er ekki stefna ESB að ofveiða
fisk. Reglur ESB stuðla að hlut-
fallslegum stöðugleika og tryggja
að íslenskur sjávarútvegur nýtur
nálægðarinnar við miðin og hefðar-
réttar á stofnum sem ekki eru deili-
stofnar. Innan ESB verðum við ein
af þremur stærstu fiskveiðiþjóðum
sambandsins og í sterkri stöðu til
að hafa mikil áhrif á mótun nýrr-
ar fiskveiðistefnu. Þessu verður að
halda til haga fyrir grátkórnum.
Stöðu sveitarfélaga á Íslandi,
ekki síst þeirra sem eru á lands-
byggðinni, er betur borgið innan
Evrópusambandsins. Mýmargar
áætlanir sem miða að uppbyggingu
á harðbýlum svæðum og köldum
hagkerfum innan einstakra landa
eru í gangi. Þessar áætlanir hafa
skilað umtalsverðum árangri m.a.
í Portúgal, Spáni, Svíþjóð, Finn-
landi, Slóveníu og Póllandi. Hverf-
um frá haftastefnunni, hún er vond
og mun ekki byggja upp blómlega
byggð á Íslandi. Losum bændur,
sjómenn og aðra undan klöfum
ofurvaxta og einhæfni.
Tökum þátt í samfélagi þjóða og
öxlum okkar ábyrgð. Höfum trú
á okkur sjálfum og því sem við
getum gert fyrir Evrópu. Spyrj-
um ekki bara; hvað getur Evrópu-
sambandið gert fyrir okkur? Spyrj-
um líka: Hvað getum við gert fyrir
Evrópu? Okkur mun farnast vel
sem fullgildum þátttakanda í sam-
félagi Evrópuríkja. Þess vegna er
ég sammála því að gengið verði til
aðildarviðræðna við Evrópusam-
bandið strax að loknum kosning-
um. Ef þú ert sammála skráðu þig
þá á www.sammala.is.
Höfundur er í 6. sæti á lista VG í
Norðausturkjördæmi.
Hvað getum við gert fyrir ESB?
UMRÆÐAN
Ástþór Magn-
ússon skrifar
um kosningar
Laugardaginn 25. apríl ertu
frjáls. Lýðræðis-
hreyfingin veitir
þér frelsi:
Þú færð atkvæðisrétt á Alþingi: Þú
getur tekið þátt í öllum meiri háttar
ákvörðunum Alþingis í gegnum raf-
rænt Almannaþing óskir þú þess.
Láttu ekki blekkja þig til að afsala
fullveldi þínu næstu fjögur árin til
flokkseigendafélaga og mútuþægra
stjórnmálamanna.
• Sækjum þýfið sem útrásarvík-
ingarnir stálu af þjóðinni: Við vilj-
um nota öll tiltæk lög m.a. hryðju-
verkalög eins og Bretar gerðu gegn
Landsbankanum, til að gera útrásar-
víkingana óstarfhæfa hvar sem er í
heiminum og fá þá framselda hingað
til lands. Þetta viljum við gera strax
því þá byrja ormagryfjurnar þeirra
að opnast fyrir alvöru. Við viljum
síðan sækja þá fleiri hundruð millj-
arða sem þeir stálu af þjóðinni.
• Markaðssetjum Ísland sem land
tækifæranna: Við viljum setja upp
markaðsskrifstofu með 200 manna
vandlega völdu fólki úr atvinnuleys-
isskránni til að markaðssetja Ísland
um allan heim og laða hingað til
lands víðtæka erlenda starfsemi sem
skapar störf og gjaldeyristekjur.
• Jöklabréfin sem fjárfestingar-
sjóður: Við viljum umbreyta jökla-
bréfunum í innlendan fjárfesting-
arsjóð atvinnulífsins til að minnka
þrýstinginn á krónuna og fá erlendu
fjárfestana með í uppbyggingar-
starfið.
• Hagræðing án skattahækkana:
Við viljum hagræða í stjórnsýslunni
til sparnaðar um leið og atvinna
og tekjur eru auknar með nýrri
atvinnustarfsemi. Við viljum ekki
skattleggja venjuleg heimili sem nú
þegar berjast í bökkum.
• Endurbyggjum bankakerfið
með erlendri þátttöku: Við viljum fá
hingað til lands færustu hagfræð-
inga heims eins og George Soros til
aðstoðar við endurskipulagningu
hagkerfisins og tengja fjármála-
stofnanir okkar við erlenda fjár-
málamakraði. Þannig komum við í
veg fyrir annað bankahrun.
Það er aðeins eitt raunhæft val:
xP
Höfundur er talsmaður Lýðræðis-
hreyfingarinnar.
Úr ánauð
flokkanna
ÁSTÞÓR
MAGNÚSSON
GRÍMUR ATLASON
9. HVER
VINNUR!
VINNINGAR ERU BÍÓMIÐAR, TÖLVULEIKIR,
GOS, DVD MYNDIR OG MARGT FLEIRA!
SENDU SMS ESL C2V
Á NÚMERIÐ 1900
ÞÚ GÆTIR UNNIÐ BÍÓMIÐA!
149 kr/skeytið. Vinningar afhendir í ELKO Lindum.
Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb.
JASON STATHAM ER MÆTTUR AFTUR Í HLUTVERKI
HINS ÓDREPANLEGA CHEV CHELIOS
22.04.09
Í FULLUM GANGI Í PERLUNNI
OPIÐ ALLA DAGA FRÁ 10 - 18
VERIÐ VELKOMIN OG NJÓTIÐ FRÁBÆRS ÚTSÝNIS OG GÓÐRA VEITINGA Í VEITINGASAL PERLUNNAR
Sími: 561-4114
Frá 9. apríl til 3. maí
G Í F U R L E G T Ú R VA L A F Ö L L U M T E G U N D U M T Ó N L I S TA R
R O K K - P O P P - K L A S S Í K - B L Ú S - K Á N T R Ý - S LÖ K U N A R T Ó N L I S T- Þ Ý S K , S K A N D I N AV Í S K O G Í R S K T Ó N L I S T
O G A Ð S J Á L F S Ö G Ð U A L L I R N Ý J U S T U T I T L A R N I R Á B ET R A V E R Ð I E N Þ Ú ÁT T A Ð V E N J A S T