Fréttablaðið - 24.04.2009, Qupperneq 38
26 24. apríl 2009 FÖSTUDAGUR
folk@frettabladid.is
Ný́jan
kaptein
í́ brú́na
Sigurhátíð kapteinsins
á Jacobsen,
föstudaginn 24. apríl
milli 21.00 - 01.00.
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Sími 551 1200 / midasala@leikhusid.is / www.leikhusid.is
Hart í bak
Þrettándakvöld
Sædýrasafnið
Creature - gestasýning
Skoppa og Skrítla í söng-leik
Eterinn
Kardemommubærinn
Þjóðleikur - leiklistarhátíð á Egilstöðum 24.–26. apríl
Skoðaðu
Mín
Vildarborg
ferðablað
Icelandair á
www.icelandair.is
Auglýsingasími
> BROTIST INN HJÁ HAYDEN
Heroes-leikkonan Hayden Panetti-
ere er með böggum hildar eftir að
þjófar stálu rándýrum skartgrip-
um af heimili hennar í Los Angeles.
Hayden, sem er 19 ára, uppgötvaði
þjófnaðinn þegar hún kom heim til
sín eftir frí. Skartgripirnir eru metnir
á tvær milljónir króna. Lögregla
rannsakar málið.
Á morgun verður gengið
til kosninga í einum sögu-
legustu alþingiskosningum
síðari tíma. Mikið álag hef-
ur verið á frambjóðendum
stjórnmálaflokkanna og má
reikna með að taugarnar
verði þandar til hins ýtrasta
þegar úrslit taka að berast.
Þeir geta þó létt undir með
sér með því að borða rétt.
„Það er mjög mikilvægt að skipu-
leggja máltíðir yfir daginn, þær
þurfa að vera á þriggja til fjögurra
tíma fresti. Menn geta jafnvel látið
farsímann hringja til að minna sig
á hvenær maður eigi að borða,“
segir Sölvi Fannar Viðarsson hjá
Heilsuráðgjöf. Hann telur jafn-
framt að menn eigi að setja það
niður fyrir sig hvenær þeir ætli
að hafa kyrrðarstund með sjálf-
um sér yfir daginn þar sem þeir
geti farið yfir það með sjálfum sér
hvort þeir séu á réttri leið. „Af því
tilefni er kannski gott að rifja upp
gamalt máltæki, að ef þú hittir tvo
fýlupúka á sama stað, kynntu þá
fyrir hvor öðrum og taktu til fót-
anna, andlegur undirbúningur er
nefnilega ekkert síður mikilvæg-
ur en sá líkamlegi,“ útskýrir Sölvi
og líkir álagi á frambjóðendur við
það þegar íþróttamenn takast á
við stórviðburði á sínum ferli.
En þá að heppilega mataræðinu.
Fríða Rún Þórðardóttir næringar-
sérfræðingur gefur frambjóðend-
um upp tvenns konar morgunverð,
mjög góða, sem þeir ættu að hafa
í huga þegar þeir vakna á kjör-
dag. „Annars vegar er það hafra-
grautur með einni til tveimur mat-
skeiðum af sólblómafræjum. Hins
vegar gæti það líka verið Cheer-
ios eða hafrakoddar með undan-
rennu eða léttmjólk.“ Sölvi tekur
undir þetta en bendir jafnframt
á að dagurinn fyrir kosningar sé
ekkert síður mikilvægur. „Menn
eiga að borða þá nægjanlega mikið
af kolvetnum og hafa matinn skyn-
samlega samansettan. Menn mega
heldur ekki gleyma góðum svefni
sem er algjör lífsnauðsyn, fá sér
flóaða mjólk og hunang áður en
þeir leggjast á koddann og gefa
sér jafnvel fimm mínútur til að
stilla sig aðeins andlega,“ ráðlegg-
ur Sölvi.
Hann bendir jafnframt á að
frambjóðendur skyldu hafa gullna
reglu í huga; að drekka jafnmik-
ið af vatni og þeir drekka kaffi
og borða grófa fæðu og kornmeti.
„Þetta er gott fyrir hægðirnar því
ég reikna með því að enginn vilji
vera með hægðatregðu á kjördag,“
segir Sölvi. Hann bendir jafnframt
á að rétt fæði geti haft mikil áhrif
á taugarnar, sé fæðan vitlaust
samansett geti menn orðið tauga-
trekktari en þeir þyrftu að vera.
Bæði Sölvi og Fríða ráðleggja
frambjóðendunum að forðast mjög
prótínríkan mat svo sem fisk, kjöt,
egg, mjólk og baunir. „Þetta getur
skipt gríðarlega miklu máli því
svona hlutir hafa áhrif á sýru-
stig líkamans, menn geta orðið
andfúlir og svo framvegis. Ann-
ars er mjög gott að hafa einhverja
ferska mintu í vasanum til að forð-
ast andremmu,“ segir Sölvi. Og
hann bætir við að ef menn freist-
ist til að borða skyndibita á borð
við Sóma-samloku sé gott ráð að
fá sér ávöxt með. „Annars getur
blóðsykur farið á flug og þá fyrst
verða taugarnar vandamál.“
freyrgigja@frettabladid.is
Það vill enginn vera með
hægðatregðu á kjördag
ÁVEXTIR OG VATN Sölvi Fannar og Fríða Rún ráðleggja frambjóðendunum að halla
sér frekar að kolvetnum í stað prótíns, skynsamlegast sé þó að blanda þessu tvennu
saman. Vatn gæti leikið lykilhluverk á kjördag.
Morgunmatur
Eitt glas af vatni, hafragrautur með
1-2 msk. af sólblómafræjum eða
fræblöndu. Gott að skera epli út í
og hita með. Eitt glas af hreinum
ávaxtasafa.
Millibiti klukkan 10
Eitt glas af vatni, banani eða ávext-
ir af ávaxtabakka.
Hádegismatur og kvöldmatur
Tvö glös af vatni, kjöt eða fiskur
og létt sósa. Kartöflur, hrísgrjón,
pasta eða núðlur. Grænmeti, soðið
og ferskt salat með fræjum og
fetaosti.
Millibiti klukkan 15-16
Eitt glas af vatni
Skyrdós/skyrdrykkur
Smoothie-drykkur eða ein ferna
af hreinum ávaxtasafa helst með
aldinkjötinu.
Bland í poka: Döðlur, möndlur,
rúsínur, apríkósur, hnetur, fíkjur.
Snarl á meðan beðið er
úrslitanna
Eitt glas af vatni
Popp, saltstangir, hnetur, möndlur
eða bland í poka: döðlur, möndlur,
rúsínur, apríkósur, hnetur, fíkjur.
Unnið upp úr ráðleggingum
Fríðu Rúnar.
MATSEÐILL FYRIR
FRAMBJÓÐENDUR
Eftir að hafa lifað fremur rólegu og
kyrrlátu lífi með konu sinni til 28 ára,
verið trúrækinn maður með kaþólska
kirkju í garðinum, þá eru ástamál ástr-
alska stórleikarans Mels Gibson farin
að taka á sig heldur skrautlega mynd.
Eins og komið hefur fram í fjölmiðlum
er Gibson nú að skilja við eiginkonu
sína.
Svo virðist að Mel hafi ekki verið við
eina fjölina felldur heldur haft þrjár í
takinu. Breska blaðið The Sun greindi
frá því fyrir skemmstu að rússneska
fegurðardísin Oksana Pochepa hefði
átt náðugar stundir með leikaranum á
Kosta Ríka. Pochepa fór fögrum orðum
um Mel og ást hans á sér en lögfræðing-
um leikarans var ekki skemmt og The
Sun sagði frá því í gær að henni hefði
verið skipað að þegja um sín mál í fjöl-
miðlum. Vefútgáfa Chigaco Sun Times
skellti því á forsíðu sína í gær að Mel
ætti vingott við aðra Oksönu. Hún er
fyrrum heitmey Timothy Dalton, gamla
James Bond-leikarans. „Aðeins“ fjór-
tán ára aldursmunur er á þeim tveim
og samkvæmt Sun Times er leikarinn
yfir sig ástfanginn af þeirri Oksönu en
vill víst lítið kannast við þá fyrri þótt
eflaust hafi leiðir þeirra tveggja ein-
hvern tímann legið saman.
Gibson þarf hins vegar fyrst að seil-
ast ofan í djúpa pyngju sína þegar skiln-
aður hans og Robyn verður tekinn fyrir
því hjónakornin gerðu skilmála áður en
þau giftust og sá ætti að tryggja Robyn
Gibson nógu margar krónur til að geta
átt náðuga daga það sem eftir er.
Gibson með þrjár í takinu
FLÓKIÐ MÁL Það er ekki auðvelt að vera Mel
Gibson þessa dagana því svo virðist sem leikar-
inn hafi haft þrjár í takinu; tvær Oksönur og svo
fyrrverandi eiginkonu sína. FRÉTTABLAÐIÐ/AP