Fréttablaðið - 24.04.2009, Blaðsíða 42
30 24. apríl 2009 FÖSTUDAGUR
sport@frettabladid.is
9. HVER
VINNUR!
149 kr/skeytið. Vinningar afhendir í ELKO Lindum.
Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb.
FRUMSÝND 22.4.2009
VINNINGAR ERU BÍÓMIÐAR, TÖLVULEIKIR,
GOS, DVD MYNDIR OG MARGT FLEIRA!
SENDU SMS ESL UBV
Á NÚMERIÐ 1900
ÞÚ GÆTIR
UNNIÐ BÍÓMIÐA!
N1-deild karla:
Haukar-Fram 30-21 (16-9)
Mörk Hauka (skot): Sigurbergur Sveinsson 7/4
(8/4), Elías Már Halldórsson 5 (6), Einar Örn
Jónsson 5/1 (6/2), Freyr Brynjarsson 4 (5),
Andri Stefan 3 (4), Arnar Pétursson 2 (4), Kári
Kristján Kristjánsson 2 (4), Tjörvi Þorgeirsson 1
(1), Gunnar Berg Viktorsson 1 (2), Stefán Rafn
Sigurmannsson (1/1), Arnar Jón Agnarsson (2).
Varin skot: Birkir Ívar Guðmundsson 21 (38/1,
55%), Gísli Guðmundsson 1 (5/1, 20%).
Hraðaupphlaup: 6 (Freyr 3, Elías Már 2, Tjörvi 1).
Fiskuð víti: 7 (Kári Kristján 4, Elías Már 1, Arnar
Jón 1, Einar Örn 1).
Mörk Fram (skot): Jóhann G. Einarsson 5/2
(8/2), Róbert Aron Hostert 4 (5), Andri Berg Har-
aldsson 3 (9), Guðjón Drengsson 2 (3), Haraldur
Þorvarðarson 2 (3), Guðmundur Hermannsson 1
(2), Brjánn Bjarnason 1 (3), Magnús Stefánsson
1 (3), Einar Rafn Eiðsson 1 (4), Rúnar Kárason 1
(6), Stefán B. Stefánsson (1).
Varin skot: Davíð Svansson 8/1 (20/3, 40%),
Magnús Erlendsson 2 (20/3, 10%).
Hraðaupphlaup: 3 (Brjánn 1, Guðjón 1, Andri 1).
Fiskuð víti: 2 (Stefán B. 1, Haraldur 1).
Valur-HK 29-25 (17-11)
Mörk Vals (skot): Fannar Þór Friðgeirsson 9/4
(13/4), Sigurður Eggertsson 6 (9), Arnór Gunn-
arsson 4/1 (9/1), Heimir Örn Árnason 3 (5),
Hjalti Pálmason 2 (4), Ingvar Árnason 2 (2), Elvar
Friðriksson 2 (5), Sigfús Páll Sigfússon 1 (3).
Varin skot: Ólafur Haukur Gíslason 20 (45/4) 44%.
Hraðaupphlaup: 7 (Fannar 2, Arnór 2, Hjalti,
Heimir, Sigurður).
Fiskuð víti: 7 (Sigurður 3, Ingvar 2, Fannar, Elvar).
Mörk HK (skot): Ragnar Snær Njálsson 5 (8),
Ragnar Hjaltested 5/1 (9/2), Gunnar Steinn Jóns-
son 4 (5), Einar Ingi Hrafnsson 4 (4), Valdimar
Fannar Þórsson 4/2 (9/2), Már Þórarinsson 2 (7),
Ólafur Bjarki Ragnarsson 1 (6).
Varin skot: Sveinbjörn Pétursson 19 (36/3) 53%,
Björn Ingi Friðþjófsson 1 (13/4) 0,7%.
Hraðaupphlaup: 5 (Már 2, Ragnar Snær, Ragnar
Hj., Einar Ingi).
Fiskuð víti: 4 (Valdimr 2, Einar, Már).
Dómarar: Gísli Hlynur Jóhannsson og Hafsteinn
Ingibergsson, arfaslakir svo ekki sé nú meira sagt.
Sem betur fer hafði dómgæslan ekki afgerandi
áhrif á niðurstöðu leiksins.
Stjarnan og Valur mætast í Mýrinni í kvöld í oddaleik liðanna í
undanúrslitum úrslitakeppni N1-deildar kvenna. Sigurvegari leiksins
mætir Fram í úrslitum um Íslandsmeistaratitilinn.
„Nú er að duga eða drepast fyrir okkur,“ sagði Kristín Jóhanna
Clausen, fyrirliði Stjörnunnar, í samtali við Fréttablaðið en bæði lið
hafa unnið á heimavelli í rimmunni til þessa. Kristín telur að það
gæti reynst dýrmætt að eiga oddaleikinn á heimavelli.
„Það er alltaf erfitt að fara í Vodafone-höllina en við vorum
reyndar mjög ósáttar við okkar frammistöðu á þriðjudaginn. En það
er aldrei hægt að stóla á neitt í úrslitakeppninni,“ sagði hún en Fram
gerði sér lítið fyrir og vann deildarmeistara Hauka í tveimur leikjum.
„Ég verð að segja að ég bjóst við Haukasigri. En árangur í deildinni
telur lítið þegar í úrslitakeppnina er komið. Þar gildir það eitt að
mæta tilbúnar til leiks.“
Hrafnhildur Ósk Skúladóttir, leikmaður Vals, var óhrædd við að
oddaleikurinn skuli fara fram á heimavelli Stjörnunnar.
„Við höfum ekki verið að spila verr á útivelli en heimavelli í vetur.
Við erum því lítið að spá í það hvar leikurinn fer fram,“ sagði Hrafn-
hildur. „Við þurfum að einbeita okkur að því að spila jafn góða vörn
og í síðasta leik og ef það tekst þá vinnum við.“
Stjarnan varð í öðru sæti deildarinnar en Valur í því þriðja. Kristín
telur þó að Valur eigi meira inni en
liðið hefur sýnt í vetur.
„Valur er með frábæran leikmanna-
hóp og ég held að liðið hafi verið
að spila undir getu í vetur. Við erum
kannski með hefðina með okkur en
Valur er með breiðari leikmannahóp. Við
erum þó ekki með síðra lið og ég tel að
það lið sigri í kvöld sem sýnir meiri vilja og
hungur á vellinum,“ sagði Kristín.
ÚRSLITAKEPPNI N1-DEILDAR KVENNA: STJARNAN OG VALUR MÆTAST Í KVÖLD
Aldrei hægt að stóla á neitt í úrslitakeppninni
> Stjarnan vann ÍR í tvíframlengdum leik
Stjarnan vann ÍR í tvíframlengdum leik, 28-27, í oddaleik
liðanna í undanúrslitum umspilskeppninnar um eitt laust
sæti í N1-deild karla á næstu leiktíð. ÍR átti boltann í síð-
ustu sókn leiksins og í henni missti Stjarnan tvo menn af
velli vegna tveggja mínútna brottvísunnar. ÍR átti síðasta
skot leiksins en það hafnaði í vörn Stjörnunnar. Þar við
sat. Staðan í hálfleik var 11-10, ÍR í vil, en
22-22 að loknum venjulegum leiktíma.
Staðan var svo enn jöfn, 26-26, eftir fyrri
framlenginguna. Ragnar Helgason skoraði
sjö mörk fyrir Stjörnuna og Vilhjálmur
Halldórsson sex. Hjá ÍR var Andri
Friðriksson markahæstur með átta
mörk en næstur kom Sigurjón
Björnsson með fimm.
HANDBOLTI Haukar unnu níu marka
sigur á Fram, 30-21, á Ásvöllum í
gær og tryggðu sér þar með sæti í
úrslitarimmunni um Íslandsmeist-
aratitil karla. Þar mun liðið etja
kappi við bikarmeistara Vals en
Haukar hafa titil að verja.
Haukar unnu þar með undanúr-
slitarimmuna við Fram, 2-1, eftir
að þeir síðarnefndu unnu óvæntan
sigur í fyrsta leik liðanna sem
fór líka fram á Ásvöllum. Þeir
áttu hins vegar aldrei möguleika
í gær.
Aðeins var jafnræði með liðun-
um fyrsta stundarfjórðunginn en
þá tóku heimamenn völdin í leikn-
um. Staðan var 16-10 í hálfleik og
eftir aðeins tólf mínútna leik í síð-
ari hálfleik var munurinn orðinn
ellefu mörk, 24-13. Eftir það var
aldrei spurning hvorum megin sig-
urinn myndi lenda.
„Við urðum okkur til skammar
með því að mæta svona til leiks í
svo mikilvægri viðureign,“ sagði
Andri Berg Haraldsson, leikmað-
ur Fram, eftir leik. „Við vorum svo
sem að spila ágætlega í byrjun en
Birkir Ívar varði mikið í markinu
og þá fórum við að missa taktinn.
Þeir gengu bara á lagið.“
Andri Berg á ekki í erfiðleikum
með að benda á hvað fór úrskeið-
is. „Við vorum að spila hörmulega,
bæði í vörn og sókn. Það er ótrú-
lega dapurt að þurfa að hafa þetta
á bakinu í sumarfríinu. Þetta er
leikurinn sem mun sitja í manni í
allt sumar.“
Aron Kristjánsson, þjálfari
Hauka, var vissulega kampakátur
í leikslok.
„Svona er bara úrslitakeppn-
in og þetta er sjarminn við hana.
Það er dagsformið sem ræður og
við höfðum betur í þetta skiptið,“
sagði Aron.
„Það hefur verið mikill hasar
á milli þessara liða og mikill hiti
í mönnum. Leikmenn beggja liða
vildu alls ekki tapa í kvöld.“
Hann sagði að eftir tap sinna
manna í fyrsta leik rimmunnar
hafi þeir verið komnir upp við
vegg. „Það var mikill vilji til að
klára leik númer tvö og fá odda-
leikinn heima. Við vissum svo
eftir síðasta leik að það var ekkert
aftur snúið hjá okkur. Við mætt-
um gríðarlega einbeittir til leiks
og það skilaði sér. Varnarleikur-
inn og markvarslan var frábær,
hraðaupphlaupin voru virkilega
góð og mikill kraftur í seinni
bylgjunni. Sigurbergur (Sveins-
son) var engan veginn að finna sig
í fyrstu tveimur leikjunum en var
mjög öflugur í kvöld. Það munaði
miklu um það.“
Haukar mæta Val í úrslitarimm-
unni og á Aron von á hörkuviður-
eign. „Við erum Íslandsmeistarar
og þeir bikarmeistarar og þarna
eru einfaldlega tvö bestu lið lands-
ins að mætast. Leikir þessara liða
hafa verið gríðarlega skemmtileg-
ir undanfarin ár og á ég því von á
skemmtilegri rimmu.“
Hann vonast til þess að sínir
menn verði duglegir að nýta sér
heimavöllinn.
„Við unnum að því í allan vetur
að fá heimavallarréttinn og gerð-
um það ekki að gamni okkar. Von-
andi verður það okkur í hag í
lokin.“
eirikur@frettabladid.is
Meistararnir léku sér að Frömurum
Haukar unnu í gær auðveldan níu marka sigur, 30-21, á Fram og tryggðu sér þar með sæti í úrslitum N1-
deildar karla. Um algeran viðsnúning var að ræða frá fyrsta leik liðanna en Fram sá aldrei til sólar í gær.
„BAD BOYS“ Haukarnir ganga undir nafninu „Bad Boys“ þessa dagana þar sem þeir
þykja álíka harðir í horn að taka og Detroit Pistons hér áður fyrr. Hér fær Guðjón
Finnur Drengsson að kenna á hörku Haukanna. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
HANDBOLTI Valur tryggði sig inn
í úrslit N1-deildar karla með til-
tölulega þægilegum sigri, 29-25, á
HK í oddaleik liðanna í gær. Vals-
menn spila sem fyrr eins og þeir
sem valdið hafa á heimavelli og
hafa enn ekki tapað leik í Voda-
fone-virkinu sínu.
Það var ljóst í hvað stefndi strax
frá byrjun. Valsmenn voru miklu
ákveðnari og grimmari. Spiluðu
fantavörn með Sigfús fyrir miðju
og Ólafur Haukur í banastuði þar
fyrir aftan. Þeir keyrðu upp hrað-
ann og röðuðu inn mörkum úr
hraðaupphlaupum sem og snögg-
um sóknum. 5-1 eftir stuttan tíma
og svo 12-5. HK var ekki með.
Varnarleikur HK var í molum og
þeir réðu ekkert við Sigurð Egg-
ertsson og Fannar Friðgeirsson
sem voru í miklu stuði. Síðari hálf-
leikur var vonlítill eltingarleikur
hjá HK sem náði aldrei að ógna
að ráði. Varnarleikurinn felldi þá
í gær sem og döpur frammistaða
lykilmanna í sókninni. Valdimar
Þórsson ekki svipur hjá sjón og
Ólafur Bjarki algjörlega úti að aka.
Gunnar Magnússon, þjálfari HK,
hefði að ósekja mátt tefla Ragnari
Snæ Njálssyni meira fram en hann
var sprækur.
„Það sýnir núna hvað deildin er
mikilvæg og heimavöllurinn skipt-
ir máli. Okkar styrkleiki er vörn-
in og hún brást. Við vorum samt
að mæta frábæru liði Vals og það
verður að viðurkennast að betra
liðið vann hér í dag,“ sagði Gunnar
Magnússon, þjálfari HK.
Óskar Bjarni Óskarsson, þjálf-
ari Vals, var talsvert hressari
en kollegi sinn hjá HK. „Ég hélt
að við ætluðum að klára þennan
leik á fyrstu tíu mínútunum. Þeir
komu samt til baka og náðu að
stríða okkur,“ sagði Óskar Bjarni
en hann hrósaði HK-liðinu einnig
í hástert.
„Sigurður Eggertsson var frá-
bær. Ég hef verið að hvíla hann
aðeins, spila honum í horninu og
svona þannig að hann var orðinn
verulega hungraður. Vörnin var
aðeins þéttari og við breyttum lið-
inu frá síðasta leik. Það skilaði sér.
Óli byrjaði svo að verja og taktíkin
gekk upp,“ sagði Óskar Bjarni en
það er ljóst að liðið þarf að vinna
útileik til þess að verða meistari.
„Það eiga ekki að vera svona
miklar sveiflur milli valla. Við
verðum að stela og vorum meistar-
ar þarna fyrir tveim árum þannig
að við eigum góðar minningar úr
Hafnarfirði.“ - hbg
Valsmenn í úrslit eftir enn einn sigurinn á heimavelli sínum að Hlíðarenda:
Vodafone-virki Valsmanna
ILLVIÐRÁÐANLEGUR HK réði ekkert við gleðigjafann Sigurð Eggertsson í gær sem fór
algjörlega á kostum og skoraði frábær mörk. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL