Fréttablaðið


Fréttablaðið - 24.04.2009, Qupperneq 48

Fréttablaðið - 24.04.2009, Qupperneq 48
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans BAKÞANKAR Þórgunnar Oddsdóttur Í dag er föstudagurinn 24. apríl 114. dagur ársins. 5.24 13.26 21.30 4.59 13.11 21.25 Klikkaður í Cocoa Puffs! ÍS L E N S K A S IA .I S / N A T 3 7 7 1 4 0 5 /2 0 0 7 Lífið er eins og menntaskóli. Þetta eru ekki ný sannindi og alls ekki frumlegt líkingamál en kannski gengi okkur eilítið betur að skilja samfélagið ef við hefð- um þetta í huga. ÞAÐ gengur ekki öllum jafn vel í menntaskóla. Sumir dúxa á öllum prófum meðan aðrir þurfa að taka sömu áfangana aftur og aftur. Sumir verða hetj- ur og öðlast frægð í Gettu betur meðan aðrir læðast með veggj- um og skilja ekki eftir sig önnur ummerki í sögu skólans en máða mynd á skólaspjaldi. Líkt og lífið snúast menntaskólaárin ekki síst um að kynnast rétta fólkinu og láta bjóða sér í réttu partíin. Það skilar manni jafnvel lengra en glæsilegar einkunnir. FRÁ því var greint í Fréttablað- inu í gær að skólapiltur í Mennta- skólanum í Reykjavík hefði háls- brotnað í árvissum gangaslag skólans. Slagurinn er rótgróin hefð og af myndum að dæma er þetta mikill karlmennskuhasar. Olíubornir 6. bekkingar brjóta sér leið í gegnum þvögu yngri bekk- inganna berir að ofan og renna eins og álar úr greipum þeirra sem reyna að hindra þá í að ná í bjölluna sem keppst er um. Þetta er víst bráðskemmtilegur við- burður og þeir sem ekki þora að taka þátt fylgjast spenntir með af hliðarlínunni, sumir klappa og hrópa hvatningarorð meðan aðrir hrista höfuðið og spá því að eitthvað fari úrskeiðis, fólk troð- ist undir, fái spark í andlitið eða hálsbrotni eins og raunin varð í þetta sinn. ÞETTA minnir auðvitað á ganga- slaginn sem við erum öll að jafna okkur eftir. Þennan sem fór úr böndunum í haust eftir að stóru strákarnir höfðu vaðið yfir okkur yngri bekkingana sem réðum ekki við neitt og sátum eftir – reynd- ar ekki hálsbrotin en atvinnu- laus, húsnæðislaus, reið og pirr- uð. Skólameistari MR býst við því að gangaslagurinn þar á bæ verði bannaður hér eftir en enn á eftir að koma í ljós til hvaða ráða verður gripið hjá okkur. Líklega verður engu breytt, það er svo erfitt að leggja af gamlar hefðir, þá geta árgangarnir á eftir okkur ekki gert sömu mistök og við. HÁLFT ár er langur tími í menntaskóla og nemendur eru fljótir að jafna sig. Vonandi verða afleiðingar slagsins síðastliðið haust samt ekki gleymdar þegar við kjósum í nýja stjórn nemenda- félagsins á morgun. Gangaslagur

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.