Morgunblaðið - 26.11.2008, Blaðsíða 1
M I Ð V I K U D A G U R 2 6. N Ó V E M B E R 2 0 0 8
STOFNAÐ 1913
324. tölublað
96. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
Leikhúsin
í landinu >> 45
HALLDÓR BALDURSSON TEIKNARI
ENDURSPEGLAR
ÞJÓÐARSÁLINA
DRAUMUR SÁLARINNAR
Tuttugu ár á
þremur hljómdiskum
95
ára mbl.is
Eftir Þórð Snæ Júlíusson
thordur@mbl.is
LÖGREGLAN telur ljóst að frá 5. október 2007 til 12.
september 2008 hafi tæpar 250 milljónir króna verið
greiddar inn á bankareikning einstaklings sem er grun-
aður um að eiga aðild að peningaþvætti og auðgunar-
brotum. Upphæðin var ágóði af gjaldeyrisviðskiptum
sem maðurinn stóð að ásamt forstöðumanni verðbréfa-
miðlunar hjá Virðingu hf. Sá liggur undir grun um að
hafa misnotað sér starfsstöðu sína til að tryggja ágóða af
viðskiptunum.
Héraðsdómur Reykjavíkur hafnaði í gær gæsluvarð-
haldskröfu yfir forstöðumanninum. Dómurinn taldi ekki
250 milljónir milli vina
Héraðsdómur hafnaði kröfu um gæsluvarðhald yfir for-
stöðumanni hjá Virðingu hf. Grunaður um auðgunarbrot
vera slíkan grun um refsivert athæfi hjá hinum kærða að
heimilt væri að hneppa hann í gæsluvarðhald. Maðurinn
var handtekinn á mánudag þegar hann kom frá Dúbaí.
Efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra gerði húsleit
hjá Virðingu sl. föstudag og handtók í kjölfarið tvo
meinta samstarfsmenn forstöðumannsins. Hvorugur
þeirra vinnur hjá Virðingu. Annar var úrskurðaður í
gæsluvarðhald en sleppt í gær. Rannsókn málsins snýr
ekki að Virðingu heldur meintum brotum forstöðu-
mannsins og meintra tveggja samverkamanna hans.
Forstöðumaðurinn neitaði því fyrir dómi að hafa gerst
sekur um peningaþvætti eða önnur auðgunarbrot.
Í HNOTSKURN
»Banki tilkynnti lögregl-unni í júní 2008 um háar
millifærslur inn á bankareikn-
ing einstaklings.
»Efnahagsbrotadeild taldisig hafa rökstuddan grun
um að peningaþvætti og auðg-
unarbrot hefði verið framið.
»Þrír menn sem eiga samaneinkahlutafélag hafa verið
handteknir og yfirheyrðir
vegna málsins. Einn þeirra er
forstöðumaður hjá Virðingu.
Gæsluvarðhaldskröfunni hafnað | 20
STUNDUM er sagt að þeir sem umgangist dýr
séu almennt hamingjusamari en aðrir. Margir
hestamenn, þar á meðal Gunnar Guðbrandsson
smiður, eru á þeirri skoðun að félagsskapur við
hross geti eytt öllum áhyggjum og fengið mann
til að gleyma stund og stað. Í gær var Gunnar í
Víðidalnum, þar sem hann hefur tekið tvö hross
á hús fyrir veturinn. Hann segir allan gang á því
hvenær tekið sé á hús, enda fari það bæði eftir
veðri og holdafari dýra. Fagmennska hefur auk-
ist í hestaíþróttum á síðustu árum, svo nú er æft
og keppt lungann úr árinu. onundur@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn
Hrossin tekin á hús þegar kólna tekur í veðri
Eftir Unu Sighvatsdóttur
una@mbl.is
ÞÚSUNDIR manna hafa í haust mætt vikulega á
mótmæli og opinbera borgarafundi til að reyna að
hafa áhrif á hvernig landinu er stjórnað. Síðan í
sjálfstæðisbaráttunni hefur líklega sjaldan verið
gerð háværari krafa um að lýðurinn fái að ráða.
Þessi öfluga undiralda er óvanaleg, ekki bara á
Íslandi, heldur almennt. Prófessor í stjórnmála-
fræði bendir á að það sem borgarar í flestum lýð-
ræðissamfélögum eigi sameiginlegt sé að þeir séu
almennt ekki mjög virkir. Sú pólitíska sívirkni
sem einkennir Íslendinga þessa dagana, ekki að-
eins á skipulögðum fundum heldur einnig í linnu-
lausum umræðum á neti og stofnun nýrra frétta-
veitna, ber því vitni um óvenjulegar aðstæður.
Umræðurnar eru misróttækar. Sumir vilja
flýta kosningum, aðrir afnema þingræðið til að ná
fram þeirri þrígreiningu ríkisvaldsins sem stjórn-
skipunin boðar. Aðrir vilja hreinlega stofna nýtt
lýðveldi á Íslandi á nýjum grunni.
Sú hugmynd er kannski ekki eins galin og hún
hljómar ef litið er t.d. til þess að í Frakklandi
stendur nú fimmta lýðveldið. Þar hafa reglulega
orðið greinileg skil í stjórnarfari síðan fyrsta lýð-
veldið var stofnað árið 1792 eftir frönsku bylting-
una. Það þarf hins vegar ekki byltingu til að end-
urnýja lýðveldið. Bandarískur stjórnmálafræð-
ingur talar nú um að þar í landi sé að hefjast
fjórða lýðveldið með kjöri Baracks Obamas. Sam-
kvæmt þeirri kenningu hefur hvert lýðveldis-
tímabil í Bandaríkjunum varað í um 70 ár og raun-
ar eru 70 ár einnig lengsta lýðveldistímabil í
Frakklandi.
Íslenska lýðveldið er ungt að árum, aðeins 64
ára gamalt í ár. Þótt Íslendingar hafi margir
hverjir tekið kerfinu sem gefnu er líklegt að æ
fleiri trúi því að lýðræðið sé ekki fullmótað. Þjóðin
geti nú komið að því ferli. Þegar síðar verður litið
um öxl er ekki ólíklegt að atburðarásin nú hafi
markað tímamót í sögu lýðveldisins. | 8
Lýðveldið Ísland ungt og í mótun
Virkni almennings í umræðum er óvenjuleg og gæti haft sögulegar afleiðingar
Morgunblaðið/Kristinn
Íslendingar Fjölmenni við Alþingi.
Myrká eftir
Arnald Indriða-
son er efst á bók-
sölulista Morgun-
blaðsins sem
Félagsvísinda-
stofnun vann dag-
ana 17. til 23. nóv-
ember.
Í öðru sæti
listans er Þú getur eftir Jóhann Inga
Gunnarsson, Sæmund Hafsteinsson
og Martein Jónsson. Þriðja er Auðn-
in eftir Yrsu Sigurðardóttur.
Söluhæsta ljóðabókin er Jólin
koma eftir Jóhannes úr Kötlum en
hún kom fyrst út árið 1932.
Magnea eftir Sigmund Erni Rún-
arsson og Magneu Guðmundsdóttur
er mest selda ævisagan og í öðru
sæti er Saga af forseta eftir Guðjón
Friðriksson.
Bóksölulistinn verður birtur
vikulega í Morgunblaðinu fram að
jólum. »43
Myrká söluhæst
Hátt í 20 þús-
und bíleigendur
hafa síðustu tvo
mánuði nýtt sér
þann möguleika
að frysta erlend
bílalán. Þá er
afborgunum af
höfuðstól al-
mennt frestað í
fjóra mánuði en
áfram greiddir
vextir.
Með afgreiðslu laga um endur-
greiðslu virðisaukaskatts og vöru-
gjalds á bíla opnast fólki leið til að
selja bíla sína úr landi á hagkvæmari
hátt en fyrr. Hvíli lán á bílunum þarf
þó að semja við lánardrottin um
framkvæmd útflutningsins. »4, 24
20 þúsund frysta bílalán
Sjaldgæft er að fólk fái millifærð-
ar á bankareikninga sína háar fjár-
hæðir sem það kannast ekki við,
hvað þá ef það sjálft er skráð sem
greiðandi færslunnar. Í þeim til-
vikum er þó gott ef móttakandinn
er heiðarlegur og tilkynnir um mis-
tökin. Slíkt gerði Jon Olav Fivel-
stad fyrir skömmu þegar 30 þúsund
evrur, 5,4 milljónir króna, voru
lagðar óvænt inn á reikning Kvasis,
fyrirtækis hans. Skráður greiðandi
var Kvasir. Jon Olav hafði samband
við bankann sem bakfærði pen-
ingana en Jon Olav hefur engar út-
skýringar fengið. » 8
Óútskýrð millifærsla