Morgunblaðið - 26.11.2008, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 26.11.2008, Blaðsíða 34
34 Minningar MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 2008 ✝ Matthildur Ingi-björg Ein- arsdóttir fæddist á Fáskrúðsfirði 7. september 1946. Hún lést á gjör- gæsludeild Land- spítalans við Hring- braut 18. nóvember síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Einar Kr. Ei- ríksson, f. 1905, d. 2003, og Unnur Pétursdóttir, f. 1915, d. 1980. Systkini Matthildur eru Jóhanna, f. 1938, d. 1997, Kristbergur, f. 1942, Pétur, f. 1945, Erlingur, f. Arason, f. 2.2. 1970, dætur þeirra eru a) Svanhildur, f. 8.12. 1995, og b) Matthildur, f. 2.10. 2002. 3) María Ben, f. 3.6. 1974, maki Ósk- ar Einarsson, f. 2.10. 1970. 4) Ein- ar, f. 1.10. 1976. 5) Guðný, f. 26.4. 1979, maki Gunnar Jökull Guð- mundsson, f. 23.4. 1981, þeirra börn eru a) Ólafur Ben, f. 7.3. 2002, og b) Elínborg Ben, f. 23.11. 2008. Matthildur ólst upp á Fáskrúðs- firði og vann meðal annars á yngri árum við sveitastörf í Vopn- arfirði, sem ráðskona á prests- setrinu Kolfreyjustað, á vertíðum í Grindavík og Seyðisfirði og vann á Sólvangi í Hafnarfirði. Ár- ið 1966 fluttist Matthildur á Sel- fossi og var búsett þar síðan. Mesta hlutan starfsævinnar helg- aði Matthildur sig fjölskyldunni og heimilinu sem hún ræktaði bæði af mikilli alúð og umhyggju. Matthildur verður jarðsungin frá Selfosskirkju í dag kl. 14. 1948, og Stefán, f. 1951. Matthildur giftist 1. júní 1968 Ólafi Ben Snorra- syni, f. 6.9. 1948. Börn Matthildar og Ólafs eru 1) Unnur Ben, f. 9.5. 1966, maki Viðar Bergs- son, f. 28.11. 1965, dætur þeirra eru a) Hildur, f. 17.8.1984, í sambúð með Guðríði Ingvarsdóttur, f. 19.7.1967, og eiga þær eina dóttur Unni Ben, f. 7.8. 2008, og b) Sandra Ósk Ben, f. 18.8. 2008. 2) Ólöf Þóra, f. 14.3. 1971, maki Sverrir Elsku mamma. Það er ekki hægt að trúa því að þú sért farin frá okk- ur, svo erfitt að hugsa sér lífið án þín. Þú varst okkar besti vinur og til þín gátum við alltaf leitað. Þú varst fyrirmynd okkar í öllu sem þú gerð- ir og kenndir okkur að takast á við mótlæti með æðruleysi og gefast aldrei upp. Þú gafst okkur enda- lausa ást og hlýju. Það var svo gam- an að koma til þín í heimsókn á Reynivellina og aldrei vantaði veislukræsingarnar. Þú varst svo skemmtilegur ferðafélagi og erum við sérstaklega þakklát fyrir sein- ustu ferðina okkar allra saman til Kaupmannahafnar í vor þegar við héldum upp á 40 ára brúðkaups- afmælið ykkar pabba. Þú hugsaðir alltaf um okkur öll og passaðir alltaf að enginn yrði útundan þegar átti að gera eitthvað saman. Við eigum yndislegar minningar af þér sem erfitt er að koma frá sér á svona stundu en við getum yljað okkur við þær um ókomna tíð. Takk fyrir allt sem þú gafst okkur, þú varst besta mamma í heimi og þú munt alltaf eiga stóran hlut í hjarta okkar. Unnur Ben, Ólöf Þóra, María Ben, Einar og Guðný. Elsku besta amma mín, mikið sakna ég þín. Ekki hélt að ég þyrfti að skrifa minningagreinina þína nærri því strax. Þú sagðir líka við mig daginn áður en þú fórst að þú ætlaðir að lifa til sjötugs. Ég veit ekki hvar ég á að byrja að minnast þín, því þegar ég hugsa um þig, elsku amma, streyma endalausar minningar fram í huga minn. Þú varst uppáhaldsmanneskjan mín og til þín gat ég alltaf leitað, þú varst alltaf svo blíð og góð og hugsaðir svo vel um mann. Það var alltaf svo gott að koma til þín. Hjá þér fann ég til svo mikils öryggis. Þú gerðir allt fyrir mann. Gaman var að ferðast með þér til útlanda eða fara í bæjarferð til Reykjavíkur og kíkja í búðir og á kaffihús. Þú hafðir svo gaman af því. Við ferðuðumst margt saman og mikið fannst mér gaman að dröslast með ykkur afa hingað og þangað. Það var alltaf svo mikið fjör í kringum þig. Þegar við fórum sam- an til Köben á tónleikana með Cher og svo í Tívolíið og þú sast svo lengi í sólinni og beiðst eftir okkur meðan við vorum í tækjunum og fékkst far á hendurnar, eftir bolinn, sem aldrei fór. Ég veit ekki hvað ég á eiginlega að gera án þín, þú varst svo góð vin- kona mín. Þú varst líka svo mikill húmoristi og oft gátum við hlegið saman að hinu og þessu og þegar þú heyrðir vitlaust var það oft svo fyndið. Ég er mjög þakklát fyrir það að hún Unnur mín fékk að finna þína yndislegu nærveru. Ég mun sko segja henni endalausar sögur af þér. Þú áttir svo fallegt heimili og garð, þér fannst svo gaman að hafa fallegt í kringum þig, þú varst algjör fag- urkeri. Fannst svo gaman að búa til góðan mat, þú gerðir þetta allt frá hjartanu og varst stundum allan daginn að elda kvöldmatinn, dúllaðir þér í þessu, pældir í uppskriftinni, sendir svo afa út í búð og eldaðir síðan eitthvað gott. Þú leist líka allt- af svo rosalega vel út og hugsaðir vel um útlitið enda varstu líka fal- legust. Það höfðu margir orð á því hvað þú værir einstaklega glæsileg kona og ungleg, þó að þú hefðir gengið í gegnum öll þín veikindi. Þú tókst öllum veikindunum með hetju- skap. Þegar þú fórst upp á spítala fimm dögum áður en þú fórst áttir þú bara að vera þar til þess að ná vatninu úr lungunum og koma svo heim en það var alvarlegra ástandið, hjartað var að gefa sig. Ég er þakklát fyrir daginn áður en þú fórst að ég gat talað svolítið við þig og kvatt en þegar ég kvaddi þig og sagðist elska þig ætlaði ég bara að sjá þig daginn eftir en síðan um nóttina þegar mamma hringdi og sagði að læknarnir gætu ekkert gert meira fyrir þig brunuðum við í bæinn og vorum hjá þér seinasta spölin, það var mjög erfitt en ég hefði hvergi annars staðar viljað vera en hjá þér. Seinustu dagar eru búnir að vera ansi skrítnir og ég trúi því varla að þú sért farin frá okkur, mér finnst þú bara vera á ferðalagi og ég hitti þig í næstu viku. Ég hef aldrei fundið fyrir svona djúpri sorg. Ég veit að þú ert á góð- um stað núna og finnur hvergi til, ég elska þig óendanlega mikið og þú munt alltaf búa innra með mér þangað til ég kem svo til þín og við hittumst á ný. Hildur Ben Guðmundsdóttir. Meira: www.mbl.is/minningar Elsku amma mín, ég vildi að þú hefðir aldrei farið. Ekki svona snemma. Ég er ekki tilbúin að missa þig og verð það ábyggilega aldrei. Ég sakna þess alls sem við gerð- um saman, fórum í búðir, í göngu- túra, spjölluðum um allt milli himins og jarðar og hlógum svo að öllu saman. Þú gerðir lífið alveg einstakt fyrir mig. Hvað sem gerist í lífinu, mun ég alltaf muna eftir þér. Þú sagðir mér sögur af mömmu og hennar óhöpp- um. Þú hafðir alltaf frá svo mörgu að segja, skemmtilegar frásagnir frá því sem þú hefur lent í. Ég trúi því að við munum þó hitt- ast á ný, gera allt það sama og við gerðum saman, get einfaldlega ekki beðið eftir því. Við munum sitja saman á litlu skýi, ræða um okkar líf á jörðinni og tala saman um allt mögulegt. Æ, ég bara sakna þín, amma, ég trúi því ekki ennþá að þú sért farin. Innst inni held ég ennþá að þú sért bara í ferðalagi og komir bráðlega heim með bros á vör og fullt af gjöf- um eins og þetta var alltaf. Núna þegar ég er að semja þetta þá fellur tár, það fellur tár því ég sakna þín svo, þú varst hetja, amma, hetjan mín, þú munt alltaf vera í hjarta mér. Ég elska þig, amma. Þín barnabörn, Sandra Ósk, Svanhildur, Ólafur Ben, Matthildur og Elínborg Ben. Elsku Metta mín Ég trúi því varla að þú sért búin að yfirgefa þetta jarðneska líf og ég eigi ekki eftir að kíkja aðeins við í kaffi og smá-spjall. Það var fyrir 28 árum að við urðum nágrannar og upp byggðust traust og góð vináttu- bönd. Á undanförnum dögum hafa minningarnar hrannast upp í huga minn. Allar utanlandsferðirnar okk- ar og gamlárskvöldin þar sem keppst var um hver næði að skjóta upp fleiri flugeldum, Már eða Óli, og á eftir var svo kíkt aðeins á Reyni- vellina eða Skólavellina og nýju ári fagnað. Svo var það ekki ósjaldan að ég fór yfir á pallinn til þín á góðum sumardegi, sem endaði svo oft á góðri grillveislu þegar kvölda tók. Þú helgaðir fjölskyldunni, heim- ilinu og vinunum krafta þína og allt bar það vitni um hversu einstök kona þú varst. Þú hafðir yndir af því að ferðast og hafa fallegt í kringum þig og varst mikill fagurkeri í eðli þínu. Já, minningarnar eru svo ótal margar og þær geymi ég vel. Elsku Metta, það er ómetanlegt að hafa átt þig sem vinkonu. Stuðn- ingur ykkar Óla var mér og fjöl- skyldu minni ómetanlegur í veik- indum Más. Það var lærdómsríkt að sjá hvað þú tókst veikindum þínum af miklu æðruleysi, þú kvartaðir aldrei heldur reyndir ávallt að sjá björtu hliðarnar og njóta lífsins. Mikið á ég eftir að sakna þín, Metta mín, en minningin um hávaxna, glæsilega og fallega konu lifir í hjörtum okkar um ókomna tíð. Blessuð sé minning þín. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir.) Elsku Óli, Unnur, Ólöf Þóra, María, Einar, Guðný og fjölskyldur, við sendum ykkur innilegustu sam- úðarkveðjur og biðjum góðan Guð að gefa ykkur styrk á þessum erfiðu tímum. Bryndís Tryggvadóttir og fjölskylda. Hún Metta er fallin frá og það kom okkur öllum ákaflega á óvart. Við vorum vön því að hún hristi öll veikindi af sér á undraverðan hátt og þess vegna tókum við þessum síðustu veikindum ekki eins alvar- lega og við sjálfsagt hefðum átt að gera. En hérna verður ekki fjallað um veikindi hennar því hún gerði það aldrei sjálf og það var enginn sem heyrði hana nokkurn tíma kvarta. Við sem þekktum Mettu komum til með að minnast hennar sem ákaflega stoltrar konu sem bar mikla virðingu fyrir því góða sem lífið hafði upp á að bjóða. Metta hafði mikinn metnað fyrir heimilinu sínu og fjölskyldu og lagði mikið upp úr að hafa sína nánustu hjá sér. Það voru ótal ferðalög, veislur og fagnaðir sem Metta átti með okkur sem hún og við öll höfð- um mikla ánægju af. Hún var alltaf manna fjörugust og leitaði stöðugt að nýjum stöðum til að uppgötva eða nýjum mat og skemmtun til að upplifa með fjölskyldunni sinni. Við erum öll ákaflega heppin að hafa upplifað staði og stund með henni Mettu því hún sýndi okkur alltaf sitt einstæða og jákvæða sjónarhorn á öllu. Maðurinn í lífi Mettu vék aldrei frá henni og okkur fannst alltaf gaman að sjá hvað Metta og Óli voru skotin hvort í öðru. Við tökum öðru hvoru fram myndirnar sem við tókum af þeim í Danmörku þar sem Óli var alltaf að reyna að stela kossi og Metta þóttist ekki vilja sjá þetta kossaflens. Metta og Óli voru alla tíð frekar eins og kærustupar að hefja tilhugalífið heldur en hjón sem nýbúin eru að halda upp á fjörutíu ára brúðkaupsafmælið sitt. Metta skilur eftir sig stóra sam- heldna fjölskyldu og ótalmarga trygga vini og við sem vorum svo heppin að fá að kynnast Mettu mun- um alltaf minnast hennar með því stolti og virðingu sem hún sýndi sjálfri sér og öllum sem hún hitti. Við söknum þín ákaft en vitum að þú ert á góðum stað og að núna líð- ur þér vel. Sverrir Arason. Matthildur Ingibjörg Einarsdóttir ✝ Okkar ástkæri VALDIMAR JÖRGENSSON, Laugarnesvegi 87, Reykjavík, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi mánudaginn 17. nóvember. Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju fimmtudaginn 27. nóvember kl. 15.00. Þeim sem vildu minnast hans er bent á Ljósið, endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir fólk sem hefur fengið krabbamein. Arndís Jónsdóttir, Jörgen H. Valdimarsson, Björg Valsdóttir, Jórunn Valdimarsdóttir, Sigurður Freysson, Gunnar Valdimarsson, Lára Á. Kristjánsdóttir og barnabörn. ✝ Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi, langafi, bróðir og mágur, INGIMUNDUR GUÐMUNDSSON bifreiðastjóri, Fannborg 7, áður Kársnesbraut 72, Kópavogi, andaðist á hjúkrunarheimilinu Sóltúni miðvikudaginn 19. nóvember. Útförin fer fram frá Kópavogskirkju föstudaginn 28. nóvember kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hins látna er bent á Styrktarfélag krabba- meinssjúkra barna s. 588-7555 eða hjúkrunarheimilið Sóltún s. 590-6000. Kristrún Daníelsdóttir, Ragnheiður Ingimundardóttir, Sigurður Gunnar Sveinsson, Guðmunda Ingimundardóttir, Þórarinn Björn Guðmundsson, Daníel Gunnar Ingimundarson, María Antonía Jónasdóttir, barnabörn og barnabarnabörn, Elsa Drageide, Halldór Örn Svansson. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, ÁSTA KATRÍN JÓNSDÓTTIR, Háteigi, Borgarfirði eystra, lést á Landspítalanum við Hringbraut mánudaginn 24. nóvember. Útförin fer fram frá Bakkagerðiskirkju mánudaginn 1. desember kl. 14.00. Þorsteinn Kristjánsson, Katrín Guðmundsdóttir, Sigrún Kristjánsdóttir, Björgvin Ólafsson, Guðjón Björn Kristjánsson, Jakobína Birna Kristjánsdóttir, Kristján Karl Kristjánsson og barnabörn. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, lang- amma og langalangamma, HULD ÞORVALDSDÓTTIR frá Svalvogum í Dýrafirði, andaðist á Hrafnistu í Reykjavík laugardaginn 22. nóvember. Útförin verður gerð frá Digraneskirkju í Kópavogi fimmtudaginn 4. desember kl. 15.00. Elís R. Helgason, Inga G. Guðmannsdóttir, Unnur R. Helgadóttir, Sigurborg Þóra Helgadóttir, Sigtryggur Ingi Jóhannsson, Marta B. Helgadóttir, Jón Magnússon og ömmubörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.