Morgunblaðið - 26.11.2008, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 26.11.2008, Blaðsíða 2
ÞRÁTT fyrir óáran í efnahagslífinu er unnið áfram við ýmsar framkvæmdir. Nýja tónlistar- og ráðstefnuhúsið sem ÍAV smíðar við Reykja- víkurhöfn er farið að skyggja á hús Seðlabank- ans. Uppi á Skólavörðuholti er búið að klæða turn Hallgrímskirkju í grænan stakk. Ístak er að laga kirkjuturninn en yfirborð hans var orðið mjög morkið. Þurfti víða að brjóta inn að járna- grind og steypa nýja hlífðarkápu. gudni@mbl.is Áfram unnið við stórframkvæmdir Morgunblaðið/Ómar 2 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 2008 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþrótt- ir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Dugguvogi 2 / s: 557 9510 / www.patti.is Opnunartími : Mánudaga - Föstudaga frá 9 til 18 og Laugardaga frá 11 til 16 50% AFSLÁTTUR 90 x 200 cm 120 x 200 cm 150 x 200 cm 180 x 200 cm Verð frá kr. 44.450,- Verð frá Kr. 55.950,- Verð frá Kr. 67.450,- Verð frá Kr. 80.950,- Verðdæmi með afslætti: af öllum rúmum út nóvember VERÐHRUNPatti lagersala Eftir Sigtrygg Sigtryggsson sisi@mbl.is ATVINNULEYSI hefur aukist hröð- um skrefum undanfarna daga. Í gær var 6.441 skráður atvinnu- laus hjá Vinnumálastofnun, 3.754 karlar og 2.687 konur. Í október voru 3.106 skráðir atvinnulausir hjá Vinnu- málastofnun og hefur atvinnuleysið meira en tvöfaldast síðan þá. Atvinnuleysi er langmest á höfuð- borgarsvæðinu. Þar eru 3.984 skráðir atvinnulausir. Á Suðurnesjum voru 958 skráðir atvinnulausir og 660 á Norðurlandi eystra. Minnst var at- vinnuleysið á Vestfjörðum, en þar voru 43 skráðir atvinnulausir í gær. Atvinnuleysi mælist nú um 3,7% á landsvísu, en áætlað er að um 175 þúsund manns séu á vinnumarkaði. Er það svipað atvinnuleysi og mæld- ist árið 2003. Árið 1993 fór atvinnu- leysi yfir 7% af vinnufærum mönnum. Atvinnuleysi eykst hröðum skrefum Í gær voru á sjöunda þúsund manns skráðir atvinnulausir hjá Vinnumálastofnun Í HNOTSKURN »Langtímaatvinnuleysiþekkist vart á Íslandi miðað við sum nágrannalönd okkar. »Borgarráð samþykkti ádögunum að skipa starfs- hóp til að fylgjast með þróun og meta áhrif atvinnuleysis í Reykjavík. »Alþýðusamband Íslandshvetur atvinnulausa til að halda áfram að greiða í stétt- arfélög því þannig halda þeir ýmsum réttindum. Aðeins ein hópuppsögn hefur bor- ist Vinnumálastofnun undanfarna daga. Hins vegar má búast við ein- hverjum hópuppsögnum í lok vikunn- ar, en þær eru venjulega tilkynntar í lok mánaðar. Fjöldi Um fjögur þúsund manns eru án atvinnu á höfuðborgarsvæðinu. EFNAHAGS- og framfarastofn- unin, OECD varar við því í nýrri skýrslu að djúp efnahagskreppa muni herja í Bretlandi á næsta ári. Auk Bretlands muni Ungverja- land, Ísland, Írland, Spánn og Tyrkland koma hvað verst út úr kreppunni af aðildarríkjunum sem eru alls 30 og úr röðum hinna efn- uðu í heiminum. „Þessi hagkerfi verða fyrir mestum áhrifum af efnahagslægð- inni sem í sumum tilfellum kom upp um veika hlekki en í öðrum má rekja til áhrifa af hruni fast- eignaverðs,“ segir í skýrslunni. At- vinnulausum fjölgi um átta millj- ónir í aðildarríkjunum, verði alls 42 milljónir 2010. Bretar í betri stöðu en margir Bretar séu í betri aðstöðu til að takast á við vandann en margar aðrar þjóðir, þó geti aðgerðir til að bjarga bönkum orðið þeim þungar í skauti. Gert er ráð fyrir að 0,9% samdráttur verði í Bandaríkjunum á næsta ári og 0,8% í Þýskalandi en 1,1% Bretlandi. En hagvöxtur verði að meðaltali 1,5% í OECD árið 2010, efnahagurinn hjarni við á seinni hluta ársins. kjon@mbl.is Kreppan skæðust hér Reuters EKKERT er hæft í þeim fréttum að fé- lags- og trygg- ingamálaráðu- neytið ætli sér að hunsa tilmæli fjármálaráðu- neytisins um að gera eigi tillögur að niðurskurði í ríkisrekstri. Þetta segir Gunnar Svavarsson, formaður fjárlaganefndar Alþingis, sem kveðst ekki hafa skilið frétt RÚV þess efnis í gær. Hann hafi rætt við Jóhönnu Sigurðardóttur um málið og fyrir liggi að fulltrúar félags- og tryggingamálaráðuneyt- isins mæti á fund fjárlaganefndar í dag. Sjö hafa mætt fyrir nefndina Gunnar segir fjármálaráðuneytið hafa sent frá sér tilmæli, fyrir um tíu dögum, þar sem rætt var um að miðað yrði við ákveðinn niðurskurð hjá hverju ráðuneyti. Síðan þá hafi ráðuneytis- og skrifstofustjórar sjö ráðuneyta komið fyrir nefndina og gert grein fyrir stöðu hvers og eins. Í dag ætli fulltrúar forsætis- og viðskiptaráðuneyta að mæta auk ráðuneytis Jóhönnu Sigurðardóttur sem fyrr segir. Á fimmtudaginn mæti svo embættismenn frá um- hverfisráðuneyti og heilbrigðis- ráðuneyti. Þá bætir Gunnar því við að fyrir fjárlaganefnd liggi meira en eitt þúsund beiðnir frá félagasamtökum og hópum um fjárframlög vegna ýmissa verkefna. Samanlagt nemi upphæðin sem beðið er um í slíka styrki og framlög 515 milljörðum króna. onundur@mbl.is Ætla ekki að hunsa tilmælin Gunnar Svavarsson Félagsmálaráðuneyti talar við þingnefnd MAÐUR var stunginn með hnífi við Hlemm um sjöleytið í gærkvöldi. Hann var stunginn í brjósthol og særðist töluvert. Maðurinn, sem er á miðjum aldri, kom sér sjálfur inn á lögreglustöð- ina við Hverfisgötu og leitaði þar aðstoðar. Hlúðu lögreglumenn að honum í anddyri lögreglustöðv- arinnar á meðan beðið var eftir sjúkrabíl. Árásarmaðurinn er um tvítugt. Hann flúði en fannst skömmu síðar. Að sögn lögreglu var fjöldi vitna að árásinni og var rætt við þau. Hinn særði var á gjörgæslu í nótt. Að sögn læknis var líðan hans í gærkvöldi góð eftir atvikum. gudni@mbl.is Hnífstunga við Hlemm

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.