Morgunblaðið - 26.11.2008, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 26.11.2008, Blaðsíða 16
16 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 2008 Jón Kr. Ólafsson á Bíldudal er merkisberi alþýðunnar á listasviðinu. Hann fékk tónlistargáfu og listhneigð í vöggugjöf. Þessar gáfur hefur hann varðveitt og þroskað af stakri trúmennsku. Jón Kr. hefur verið trúr heimahögunum alla tíð og lagt drjúga hönd á margt sem komið hefur samfélaginu til góða. Söngurinn hefur ætíð átt hug hans og verið í senn dægrastytting og hrein ástríða. Mér segir svo hugur að þegar nafn Bíldudals ber á góma í framtíðinni eigi margir eftir að tengja staðinn við nafn Jóns Kr. Ólafssonar og félaga hans í hljómsveitinni Facon, sem stimpluðu nafn Bíldudals rækilega inn á tónlistarkortið á síðari hluta 20. aldar. Jónatan Garðarsson. Melódíur minninganna Hafliði Magnússon alþýðulistamaður við ritvélina heima á Bíldudal á árum áður. * Töffari á Akureyri * Skítafýlubombur í Borgarbíói * Mætti með saltfiskinn á ballið * Rakvélablöðin borðuð með bestu lyst * Lás opnaður með augnaráðinu * Náði úrum, veskjum og brjósthaldara * Uppskurður með berum höndum * Morðhótun * Löggubíl ekið undir áhrifum * Hjartastopp í sjónvarpsviðtali holar@simnet.is – www.holabok.is Einlæg, áhugaverð, fyndin, átakanleg! eyristekjur sem vonast væri eftir með frumvarpinu. Hann lagði einnig til að tímabilið sem endurgreiðslan verður heimiluð á yrði stytt fremur en að setja takmörk fyrir heildarfjárhæð úr ríkissjóði, en Helgi varaði við því að lögin yrðu eins og opinn tékki. „Range Rover málið“ Álfheiður Ingadóttir, VG, gaf lítið fyrir frumvarpið, sem hún vísaði til sem „Range Rover málsins“. Þótti henni skjóta skökku við að nota 1,5-2 milljarða króna í þetta þar sem að mestu væri um mjög dýra bíla að ræða. „Ef ríkisstjórnin ætlar að fara að fella niður skatta á fólkið og gjöld þá er hér byrjað á öfugum enda,“ sagði Álfheiður og taldi enga trygg- ingu fyrir að umræddar gjaldeyris- tekjur skiluðu sér til landsins. Eftir Höllu Gunnarsdóttur halla@mbl.is „ÞAÐ er mjög vafasamt í prinsippinu að taka þá ákvörðun eftir á að end- urgreiða fólki skatta úr ríkissjóði,“ sagði Helgi Hjörvar, þingmaður Sam- fylkingar, í umræðum um frumvarp sem á að ýta undir útflutning notaðra bíla með endurgreiðslu vörugjalda og virðisaukaskatts. Velti Helgi því upp hvort ekki þyrfti að setja þak á þá greiðslu sem gæti verið með hverjum bíl til að koma í veg fyrir að um „óhóf- legar styrkveitingar til efnafólks“ verði að ræða, þ.e. þeirra sem selja úr landi mjög dýra bíla. Árni M. Mathiesen fjármálaráð- herra sagði að þá gæti skapast hætta á að dýrir bílar yrðu ekki fluttir úr landi og þá fengjust ekki þær gjald- Má ekki verða styrkur til ríkra ER EKKI hægt að ganga til kosninga hér á landi út af samningnum við Al- þjóðagjaldeyrissjóðinn? Að þessu spurði Steingrímur J. Sigfússon á Al- þingi í gær og vildi skýr svör frá forsætissráðherra. Geir H. Haarde sagði að hefði vantrauststillaga stjórnarandstöðunnar náð fram að ganga hefði ekki verið þingmeirihluti til að fylgja eftir áætlun Alþjóðagjaldeyrissjóðs- ins. „Það hefði ekki verið mikið upplit á okkur ef sú staða hefði komið upp,“ sagði Geir og bætti síðar við að ríkisstjórnin yrði að hafa nauðsyn- legan trúverðugleika til að fylgja áætluninni eftir. halla@mbl.is Morgunblaðið/Ómar Áætlun fylgt eftir Sjái um Icesave Lögð hefur verið fram þingsályktun- artillaga um að ríkisstjórninni verði falið að leiða til lykta samninga við er- lend stjórnvöld vegna Icesave- deilunnar. Í greinargerð kemur fram að hagsmunum Íslands til lengri tíma litið sé best borgið með því að hægt sé að ábyrgjast þá lágmarkstryggingu sem EES-reglur mæla fyrir um. Viðskiptasaga geymd Helgi Hjörvar, Sam- fylkingu, beindi þeirri fyrirspurn til dómsmálaráðherra á Alþingi í gær hvort ekki væri mikilvægt að viðskiptasaga útibúa íslensku bankanna erlendis verði varðveitt, ekki síst vegna rannsókna á refsiverðum brotum í aðdraganda bankahrunsins. Dómsmálaráðherra sagðist ganga frá því sem vísu að Fjármálaeftirlitið tryggði þetta. Synjað um hæli Tveir íranskir menn sem hefur verið synjað um hæli hér á landi eiga ekki afturkvæmt til heimalands síns, sagði Kolbrún Halldórsdóttir, VG, á þingi í gær og vildi svör frá dómsmálaráð- herra um hvernig væri hægt að taka á málum þeirra og annarra í svipaðri stöðu. Björn Bjarnason sagði þetta vera vandamál í öllum Schengen- ríkjunum. Óráðið gengi Kristinn H. Gunnarsson sagðist á þingi í gær vita dæmi þess að fjár- málafyrirtæki fari fram á að geta ákveðið við hvaða gengi íslensku krónunnar skuli miðað þegar gengið gerðar eru skilmálabreytingar á lán- um. Forsætisráðherra sagðist ekki þekkja framkvæmdina í einstökum bönkum en að sjálfsagt væri að skoða það. Dagskrá þingsins Þingfundur hefst kl. 13.30 og kl. 14 eru utandagskrárumræður um efl- ingu gjaldeyrisvaraforðans. Helgi Hjörvar ÞETTA HELST … TÓBAKSNEYTENDUR mega eiga von á því að hinar hefðbundnu var- úðarmerkingar á umbúðum víki fyrir ljósmyndum eða annars konar skýr- ingarmyndum um skaðsemi tóbaksneyslu. Heilbrigðisráðherra mælti fyrir frumvarpi þess efnis á Alþingi í gær en það er í samræmi við tilskipun Evr- ópusambandsins. Tilgangurinn er að hvetja fólk enn frekar til að láta af reykingum. Belgía hefur þegar tekið litmyndir í notkun og önnur ríki hyggja á hið sama. halla@mbl.is Litmyndir skýri skaðann SKAPAST munu störf fyrir fjöl- marga verkfræðinga og í kringum 300 iðnaðarmenn þegar samningar nást um endurnýjun á ýmsum búnaði í ál- verinu í Straumsvík, að því er fram kom í svari Össurar Skarphéðins- sonar iðnaðarráðherra við fyrirspurn Eyglóar Harðardóttur, þingmanns Framsóknar, á Alþingi í gær. Eygló þótti atvinnuuppbygging- arhugmyndir sem komið hefðu frá Össuri, m.a. um olíuleit á Drekasvæði, lykta af „testósteróni og stórkarlaleg- um hugsunarhætti“ og vildi fá skýr svör um hvað ráðuneytið hygðist gera núna. Fagnaði hún yfirlýsingu Öss- urar um störfin í Straumsvík sem og því að á bilinu 1.500-2.000 manns fái atvinnu þegar mest lætur við fram- kvæmdir við álver í Helguvík sem hæfust vonandi fljótt. Virkjað á Norðurlandi Í máli Össurar kom einnig fram að von væri um að nýta orkuna á Norð- urlandi til hátæknivæddrar og meng- unarlítillar stóriðju og að brautin hefði verið rudd þannig að til verði fjölmörg störf hjá sprotafyr- irtækjum. halla@mbl.is 300 störf verða til Olíuleitarhugmyndir lykta af testósteróni, segir Eygló Harðardóttir þingmaður

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.