Morgunblaðið - 26.11.2008, Blaðsíða 29
Umræðan 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 2008
mbl.is/moggaklubburinn
Klúbbtilboð
fyrir áskrifendur Morgunblaðsins
Heilsukoddi fylgir
Fullkominn og þægilegur
stuðningur þegar þú sefur. Með
hverju King Koil heilsurúmi, sem
áskrifendur Morgunblaðsins
kaupa, fylgir heilsukoddi.
Verð 7.900 kr.
Moggaklúbburinn
Greiðandi áskrifendur í Mogga-
klúbbnum eru um leið félagar í
Moggaklúbbnum.
Áskrifendur Morgunblaðsins fá King Koil heilsurúm frá Rekkjunni
á 30% afslætti og heilsukodda í kaupbæti. King Koil heilsurúm
eru þau einu á markaðnum sem eru bæði með vottun frá stærstu
neytendasamtökum í Bandaríkjunum (Good Housekeeping) og
alþjóðasambandi kírópraktora (FCER). King Koil þarf aldrei að snúa
því þau hafa aðeins eina svefnhlið. Tveir heilsukoddar fylgja með
tvíbreiðum rúmum, einn með einbreiðu.
Tilboðið sem getur sparað þér frá 62.300 kr.
Frábær afsláttarkjör af King
Koil heilsurúmum
afsláttur
fyrir áskrifendur
Rekkjan, Bláu húsunum Faxafeni
NÚ HEFUR sól sortnað og fold sig-
ið í mar. Garpur hefur geyjað fyrir
Gnipahelli, festar hafa slitnað og
freki runnið með fjármálakerfi þjóð-
arinnar í kjaftinum. Heiðar stjörnur
af himni horfnar og efnahagur heim-
ilanna í uppnámi. Það geysar eimi við
aldurnara. En völvan í Völuspá sá
fyrir sér, að upp kæmi öðru sinni jörð
úr ægi iðjagræn, þar sem fossar féllu
og örn flygi yfir. Þar myndu og á eftir undursamlegar
gullnar töflur í grasi finnast.
Það verður að vona, að fulltrúum þjóðarinnar, sem
við höfum kjörið til að bera ábyrgð á fjármálum henn-
ar, hafi ekki endanlega tekist að eyðileggja framtíð
hennar líka með athöfnum sínum og þá öllu fremur at-
hafnaleysi. Þjóð án vonar á enga framtíð.
En hvernig skyldi þá þetta Ísland framtíðarinnar
þurfa að líta út, þegar það rís úr ægi iðjagrænt á nýjan
leik?
Ég vil sjá röskan helming Alþingis skipaðan nýjum
fulltrúum hófsemdar, heiðarleika og virðingar fyrir
landinu. Ég vil sjá Sjálfstæðisflokkinn kominn í fram-
sóknarfylgi og Framsóknarflokkinn í helftina af því
sem eftir er, þótt lítið sé. Þessi öfl bera öðrum fremur
ábyrgð á uppnáminu.
Ég vil sjá forseta lýðveldisins starfa fyrir þjóðina, í
sátt við þjóðina og löglega kjörin stjórnvöld. Hann á að
tala skýrt og njóta virðingar og trausts. Hann á að
greiða götu allra réttlætismála og sýna ráðdeild og
ábyrgð í athöfnum og embættisrekstri. Hann starfi að
hámarki í átta ár.
Ég vil sjá vammlausa ríkisstjórn, sem veitir trausta
verkstjórn, forsjá og fyrirhyggju þannig að tekið sé á
aðsteðjandi vandamálum í tæka tíð.
Ég vil sjá bankastjórn Seðlabankans leysta frá störf-
um og hana skipaða að nýju hæfum einstaklingum og
aldrei aftur uppgjafa stjórnmálamönnum. Aldrei aftur
verði banki þjóðnýttur eða yfirtekinn nema að vel at-
huguðu máli þannig að afleiðingar slíks verknaðar
liggi fyrir áður en hann fer fram.
Ég vil sjá Fjármálaeftirlitið hafa virkt eftirlit með
starfsemi fjármálafyrirtækja þannig að aldrei aftur
komi til þess að þjóðin þurfi að borga fyrir afglöp í
stjórnsýslunni tengd slíkri starfsemi. Kostnað við þetta
nauðsynlega eftirlit þarf ríkissjóður að greiða en ekki
fjármálastofnanirnar, sem þannig öðlast yfirráð yfir
eftirlitinu.
Ég vil sjá traust og trúverðugt uppgjör banka og
sparisjóða og umfram allt að eignir séu rétt skráðar og
óbólgnar vegna ímyndaðrar viðskiptavildar.
Ég vil banna lífeyrissjóðum að fjárfesta í öðru en rík-
isskuldabréfum. Fulltrúar þeirra eiga ekkert erindi í
stjórnir hinna og þessara félaga og stofnana.
Ég vil að óspillt jörð rísi úr ægi. Laun séu hófstillt og
réttlát. Eftirlaunaósómi þingmanna og ráðherra horf-
inn. Sjálftaka stjórnenda á þóknunum á kostnað hlut-
hafa félaga sé úr sögunni. Innborgun hlutafjár félaga
fari fram lögum samkvæmt og án undantekninga. Ég
vil sjá hátekjuskatt á nýjan leik.
Ég vil að stjórnvöld viðurkenni í verki, að þau starfi í
umboði fólksins í landinu og veiti því trúverðugar upp-
lýsingar í samræmi við beztu vitund og án vandræða-
gangs.
Ég vil að leitað sé í smiðju erlendra óvilhallra aðila
við endurskipan fjármálakerfis þjóðarinnar. Hin vel
menntaða þjóð virðist því miður til þess vanhæf að
stjórna fjármálum sínum. Við höfum góða reynslu af
innflutningi réttlætis frá útlöndum og slíkur innflutn-
ingur skemmir ekki viðskiptajöfnuðinn.
Ég vil sjá nýja mynt leysa af hólmi hina annars alsak-
lausu krónu, sem er fórnarlamb misviturrar stjórn-
sýslu.
Ég vil sjá, að fólkið í landinu kjósi eftir málefnum og
einstaklingum í stað þess að rígbinda sig í staðnað kerfi
misheppnaðra stjórnmálaflokka. Þannig og aðeins
þannig nýtir það vald sitt til að koma á breytingum.
Ég vil sjá frjálsa, öfluga og óháða fjölmiðla þannig að
menn geti tjáð skoðanir sínar óttalausir um að vegna
þeirra þurfi þeir að þola stöðumissi, sviptingu tækifæra
og tekna. Hin bláa hönd heyri sögunni til.
Yfirskrift þessa greinarkorns er samhljóða heiti á
bók, sem Sir Thomas Moore, fyrrverandi ríkiskanslari
Englands á valdatíma Hinriks 8, skrifaði og gaf út á
árinu 1516. Í henni er lýst ímynduðu fyrirmyndarríki,
sem var í hrópandi andstöðu við það sem þá tíðkaðist.
Sir Thomas var annálaður fyrir góðsemi, réttsýni,
umburðarlyndi, hófsemd og miskunnsemi. Fyrirmynd-
arríkið tekur mjög mið af þessum gildum. Hann var
hins vegar fastur fyrir í skoðunum og lét ekki bláhenta
tækifærissinna hagga sér.
Hann var enda hnepptur í fangelsi fyrir skoðanir sín-
ar, sem voru skilgreindar sem landráð, og höggvinn af
honum hausinn árið 1535.
Vonandi verður ekki ógæfu Íslands allt að liði.
Útópía – fyrirmyndarríkið
Sverrir Ólafsson, viðskiptafræðingur
og fyrrverandi sjálfstæðismaður.
NÚ ER svo komið að allir Íslendingar, ungir sem aldn-
ir, liggja undir því ámæli að vera þjófar og svindlarar af
verstu gerð. Þetta mun verða svo þar til þeir aðilar
koma fram sem ábyrgðina bera og viðurkenna afglöp sín
opinberlega. Gildir þá einu hvort menn eru þessa dag-
ana í skjóli verkalýðsfélaga, embætta eða undir vernd-
arvæng núverandi stjórnvalda. Hreinsun og um leið end-
urnýjun í öllu fjármálakerfinu er algerlega nauðsynleg
til endurnýjunar á trausti okkar Íslendinga.
Forgangsröðun í hinu nýja Íslandi verður að vera
skýr. Jakkafatamömmudrengir hafa fengið sitt tækifæri og nú verðum við
að tryggja okkar minnstu bræðrum og systrum betra líf. Mannsæmandi
kjör. Aðgang að okkar þjóðfélagi á jafnréttisgrunni og er þá allt innifalið;
menntun, atvinna og tómstundir svo eitthvað sé nefnt.
Flokkshlýðni er nokkuð sem ekki má há okkur næstu árin. Við verðum
öll að gera okkar besta fyrir Ísland næstu árin. Ég skora á málsmetandi
fólk að setjast niður og bjóða sig fram til næstu alþingiskosninga; fagfólk,
verkafólk, listamenn, virkjanasinna og náttúruverndarsinna. Allar tegund-
irnar.
Sjúklingafélög hafa mörg hver tapað öllu því fé sem nurlað hefur verið
saman, með sjálfboðavinnu, á undanförnum árum. Nú reynir á að stjórn-
völd taki til við að veita þeim styrk til starfa áfram og sjái um að bæta þess-
um félögum þann skaða sem þau hafa orðið fyrir. Öflugt starf þeirra er
ákaflega mikilvægt einmitt núna.
Heilbrigðisþjónusta er sá grunnur sem ekki má skaða á neinn hátt.
Stöndum vörð um frábæra þjónustu og bætum það sem betur má fara.
Félagsþjónusta á Íslandi er í skötulíki sé miðað við Norðurlöndin. Hún er
nokkuð góð miðað við Mongólíu og spurningin er: Hvaða viðmið viljum við
hafa? Við búum við norrænt velferðarkerfi segja ráðamenn okkur. Þetta er
einhver mesta lygi sem uppi hefur verið. Við erum langt frá því að búa við
norrænt velferðarkerfi. Ég skora á ráðamenn að mjaka okkur í rétta átt í
þessari þjónustu.
Hættum augljósri sóun á almannafé. Dæmi um augljósa sóun er t.d. Ör-
yggisráðið, lofthelgisvarnir og sendiráð í öllum krummaskuðum, svo eitt-
hvað sé nefnt af gæluverkefnum veraldarfirrtra embættismanna.
Áfram Ísland – stöndum saman að alvöru uppbyggingu.
Hvernig getum við gengið
eða ekið upprétt aftur?
Guðjón Sigurðsson,
formaður MND-félagsins.
Fáðu úrslitin
send í símann þinn