Morgunblaðið - 26.11.2008, Síða 37

Morgunblaðið - 26.11.2008, Síða 37
örmum og kynnt þér undraheim himnaríkis. Við, þín önnur fjölskylda viljum því kveðja þig í hinsta sinn hér með þessum orðum og sendum þér þessa kveðju. Kæra fjölskylda, við finnum svo mikið til með ykkur í þessari miklu sorg. Megi guð styrkja ykkur og hjálpa ykkur að finna frið í hjarta því við elskum ykkur öll svo mikið. Ástar- og saknaðarkveðjur, Sigursteinn, Alda Björg, Ásdís Helga, Ármann Örn og Sæþór. Ó, Guð minn, því skilur þú okkur eftir með svo margar erfiðar spurningar? Af hverju er ungum manni sem á ekkert nema bjarta framtíð fyrir sér ekki gefið að sjá ljósið? Af hverju eigum við að skilja að gleðin og sorgin séu það nátengdar að ef við kynnum ann- arri tilfinningunni þá hlýtur hin að fylgja fast á eftir? Ó, Guð minn, hvað við hljótum að efast um mis- kunn þína og náð þegar svo skelfi- legir atburðir gerast. En innst í hjarta mínu veit ég að þú munt hugga og sefa allar þessar tilfinn- ingar sem við berum núna og gera hlutina bærilegri. Við biðjum þig góði Guð að geyma yndislegan dreng, hjálpa foreldrum ,systkinum, öfum og ömmu að stíga þessi erfið skref sem framundan eru. Guð blessi minningu þína, elsku frændi og vinur. Margrét, Hörður og Karen Harpa. Elsku vinur. Hvíl í friði. Komin er kveðjustundin, klökknar og blúg er lundin. Friður þér falli í skaut, far vel á friðarbraut. Englar ljóssins þig leiði, lýsi og veginn þinn greiði þá héðan þú hverfur á braut (G.H.) Elsku Þorsteinn, Hulda, Ásta Særún, Hinrik, Birkir, Þorsteinn Logi og aðrir aðstandendur. Við sendum okkar dýpstu samúðar- kveðjur, megi guð gefa ykkur styrk í þessari miklu sorg. Hrefna og Þröstur. Elsku Sigurður Heiðar. Hver hefði trúað því að svona stuttu eftir skólagöngu okkar þyrftum við að setjast niður og skrifa minning- argrein um einn úr bekknum. Þetta er án nokkurs vafa erfiðasta heimaverkefni sem við höfum feng- ið á okkar lífsleið. Á meðan við berjumst við sorgina í hjörtum okkar, þá leitum við allra þeirra leiða sem við getum til að finna þá trú sem vonandi kemur til með að fleyta okkur í gegnum þessa erfiðu tíma. Eitt það dýrmætasta sem við eigum þessa stundina eru allar góðu minningarnar um þig. Minn- ingar sem koma til með að lifa í hjörtum okkar og fylgja okkur alla tíð, minningar um góðan og ljúfan strák og frábæran bekkjarfélaga. Minning þín mun alltaf verða ljós í lífi okkar. Við vonum svo sannarlega að þú hafir fundið þá ró sem þú leitaðir að og sért kominn á enn betri stað, þar sem þú getur fylgst með okkur og veitt okkur þann styrk sem við þurfum á að halda á stundum sem þessum. Hafðu það gott elsku vin- ur. Í bljúgri bæn og þökk til þín, sem þekkir mig og verkin mín. Ég leita þín, Guð, leiddu mig, og lýstu mér um ævistig. Ég reika oft á rangri leið, sú rétta virðist aldrei greið. Ég geri margt sem miður fer, og man svo sjaldan eftir þér. Sú ein er bæn í brjósti mér, ég betur kunni þjóna þér. Því veit mér feta veginn þinn og verðir þú æ Drottinn minn. (Pétur Þórarinsson.) Kæra fjölskylda. Við sendum ykkur innilegar samúðarkveðjur og biðjum góðan Guð að styrkja ykkur í sorginni. Fyrir hönd 8́8-árgangs Nesskóla, Petra Lind. Elsku Sigurður, ég vil þakka þér fyrir allt og allar þær góðu og skemmtilegu stundir sem við áttum saman og þær voru margar. Það var svo gaman að vera í kringum þig og vera með þér, eins og í sum- ar þegar við vorum að hjóla á krossurunum saman á flugvellinum í Neskaupstað og þú fórst upp alla stóru hólana en ég upp minnsta hólinn. Var það mjög skemmtilegur tími og mun ég ávallt muna þig sem hressa, góða og skemmtilega, stóra frænda minn. Ég mun sakna þín svo hræðilega mikið. Mun ávallt elska þig og þú munt alltaf vera í hjarta mínu. Þinn frændi og vinur, Arnar Tjörvi. Það var morguninn 14. nóvem- ber að pabbi sagði mér að þú værir dáinn. Ég vissi ekki alveg hvernig ég átti að bregðast við. Ég hélt áfram að tala smástund en svo tóku tárin að streyma niður kinn- arnar og ég áttaði mig á raunveru- leikanum. Ég áttaði mig á því að þú, góður vinur minn og einn uppá- haldsfrændi, værir farinn fyrir fullt og allt. Aldrei fengi ég aftur að fylgjast með frumlegu uppátækj- unum þínum, ekki kíkja á rúntinn með þér langt fram á nótt eða horfa með þér og Birki á dvd með rautt Lays og kók eins og við átt- um til að gera. Einnig finnst mér sárt að hugsa til þessa að ég eigi ekki eftir að hitta Sigurð frænda á djamminu, hoppa upp um hálsinn á honum og knúsa hann eins og svo oft áður. En ég fékk að upplifa alla þessa hluti og fyrir það er ég mjög þakklát. Þú varst alltaf svo góður við mig og þú passaðir upp á mig. Þér fannst alltaf sjálfsagt að taka frænku þína með þegar þið strák- arnir voruð að brasa eitthvað. Ég hef kynnst miklu af frábæru fólki í gegnum þig og mörgum sem ég álít vini mína í dag. Við skemmtum okkur oft vel á djamminu. Alltaf tókst þér að koma mér til að brosa. Sem dæmi má nefna um verslunarmannahelg- ina þegar þú skelltir þér á ball, með blátt listaverk í andlitinu, krullaða hárkollu sem þú kallaðir Jósefínu og svartan pípuhatt. Ekki mörgum öðrum hefði dottið þetta í hug og reyndi ég að segja þér að þú myndir aldrei ná að hössla út á þetta. En viti menn, mér skjátl- aðist. Einnig man ég eftir því í sumar á Frönskum dögum þegar þú varst með blikkandi sólgleraugu og hálsmen og dansaðir af svo mik- illi innlifun að ég næstum skamm- aðist mín. En það var einmitt það sem gerði þig svo frábæran. Þú skammaðist þín aldrei fyrir að vera nákvæmlega eins og þú vildir vera og gera nákvæmlega það sem þú vildir gera þá stundina. Ég veit að þú vakir yfir fjöl- skyldunni þinni núna. Þú átt góða fjölskyldu og ég vona að Guð veiti þeim styrk til að takast á við það sem fram undan er. Elska þig að eilífu. Þín frænka og vinkona, Alida Ósk. Elsku frændi. Það er svo sárt að sjá á eftir þér. Það er ótrúlegt að hugsa til þess að við eigum aldrei eftir að sjá þig aft- ur. Stórt skarð er höggvið í frænd- garðinn. Þín verður sárt saknað. Vonandi líður þér vel þar sem þú ert núna. Við vitum að þú vakir yf- ir fjölskyldunni þinni sem á um svo sárt að binda. Elsku Þorsteinn, Hulda, Birkir, Ásta Særún og fjölskylda við send- um ykkur innilegar samúðarkveðj- ur, megi góður guð veita ykkur styrk í sorginni Þín, Smári, Bjarki, Erna Björg og fjölskylda. Minningar 37 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 2008 ✝ Ástkær systir okkar, mágkona og frænka, ODDNÝ JÓNSDÓTTIR frá Lunansholti, lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni föstudaginn 21. nóvember. Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju fimmtudaginn 27. nóvember kl. 11.00. Jarðsett verður í Skarðskirkjugarði, Landsveit, sama dag kl. 15.30. Guðrún Jónsdóttir, Þuríður Jónsdóttir, Björgvin Kjartansson og frændfólk. ✝ Elskuleg frænka okkar, ÞÓRA HELGADÓTTIR frá Merkigarði, sem andaðist á Heilbrigðisstofnun Sauðárkróks sunnudaginn 16. nóvember, verður jarðsungin frá Reykjakirkju laugardaginn 29. nóvember kl. 14.00. Elín I. Karlsdóttir, Arnþór Pálsson, Ólafur Guðmundsson, Sigríður Sæmundsdóttir, Sigurbjörg Guðmundsdóttir, Auðunn Ágústsson, Helgi Þór Sigurðsson og fjölskyldur. ✝ Eiginmaður minn, faðir okkar, fósturfaðir og afi, VIGFÚS ÞORSTEINSSON, Patreksfirði, lést laugardaginn 22. nóvember á Heilbrigðis- stofnuninni á Patreksfirði. Jarðsungið verður frá Patreksfjarðarkirkju laugar- daginn 29. nóvember kl. 14.00. Páley Jóhanna Kristjánsdóttir, Kristján P. Vigfússon, Sigríður Margrét Vigfúsdóttir, Friðþjófur Sævarsson, Jóhannes Ægir Baldursson, Ingibjörg Erna Arnardóttir og barnabörn. ✝ Alúðarþakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengda- föður, afa og langafa, KRISTJÁNS PÉTURSSONAR, Svansvík, Súðavíkurhreppi, sem andaðist föstudaginn 7. nóvember. Sérstakar þakkir til alls starfsfólks á Fjórðungssjúkrahúsinu á Ísafirði fyrir einstaka umönnun og hlýju síðastliðin ár. Heiðrún Kristjánsdóttir, Jóhanna R. Kristjánsdóttir, Pétur S. Kristjánsson, Rakel Þórisdóttir, Þorgerður H. Kristjánsdóttir, Hermann S. Gunnarsson, barnabörn og barnabarnabarn. Enn kvarnast úr bjargi stórfjölskyld- unnar þegar fellur frá frænka mín Besta, eins og hún hefur verið kölluð frá blautu barnsbeini. Það er ekki flókin saga á bak við nafnið sem hún hlýddi alla tíð. Stolt- um föður, Guðmundi Jóhannssyni, hrutu þessi orð af vörum í frum- bernsku Bestu, og nafngiftin varð að áhrínsorðum, „Besta“ var hún alla sína tíð. Þegar ég lít til baka er þessi kæra frænka mín fyrsti einstakling- urinn sem ég man eftir að hafa tengt nafnið frænka við af mínum nánasta frændgarði. Sem er nokkuð merki- legt því það leið drjúglangur tími frá því ég fyrst man eftir þessu hugtaki, Besta frænka, þar til ég sá hana fyrsta sinni. Það átti sér þá skýringu að hún bjó lengst af í Vestmanna- eyjum og fólk var nú ekki að flandra upp á land nema eiga til þess brýn erindi hér fyrrum. Fjarlægðin kom þó ekki í veg fyrir það að við bræð- urnir allir værum snemma mjög meðvitaðir um þessa ágætu frænku okkar sem bjó allt að því í útlöndum að okkar mati. Til þess sá frænka að senda okkur á afmælisdögum og um jól ullarflíkur af ýmsu tagi sem hún prjónaði af mikilli list okkur bræðr- um á stundum til mismikillar ánægju þar sem sumum þóttu þessar gjafir „stinga“ helst til mikið, einkum nær- Sigríður Guðmundsdóttir ✝ Sigríður Guð-mundsdóttir fæddist í Reykjavík 20. ágúst 1931. Hún lést á Landspít- alanum við Hring- braut 14. nóvember sl. Jarðarför hennar fór fram frá Kópa- vogskirkju 21. nóv- ember sl. fötin. Þessi eiginleiki frænku að muna ætíð eftir systkinabörnum sínum á merkisstund- um í þeirra lífi, þó að hún hefði eflaust nóg með sig og sína eins og títt var, var mjög ríkur þáttur í hennar per- sónuleika. Ég ræddi þessar prjónasendingar við Bestu þegar árin fóru að færast yfir og sagði hún mér þá að þegar þau Sigurgeir hefðu verið að basla við að koma sér upp sínu glæsilega húsi í Vestmannaeyj- um hefðu fjárráðin oft ekki verið mikil. Ekki vildi hún þó láta það verða til þess að hún gæti ekki með einhverju móti létt undir með öðrum og um leið glatt litla frændur í Reykjavík, þá var bjargráðið næst að grípa til prjónanna. Besta var alla tíð forkur til vinnu og um það vitna til að mynda um- mæli félaga minna sem störfuðu með henni við Héraðsdóm Reykjaness. Hún var úrræðagóð og afkastamikil, vílaði aldrei fyrir sér að leggja þar hönd á plóg sem þörfin kallaði hverju sinni hvort heldur í starfi, gagnvart fjölskyldu sinni eða til hjálpar vandalausum ef svo bar undir. Samband frænku og hennar góða manns Sigurgeirs Jóhannssonar hef- ur mér ætíð þótt lýsandi fyrir hvern- ig gott hjónaband mætti vera, sam- heldni, traust og vináttu tel ég hafa einkennt þeirra sambúð alla. Þau höfðu yndi af ferðalögum hverskon- ar, lengi vel voru ferðir til útlanda stór þáttur í þeim efnum en með ár- unum óx vægi ferða um okkar fallega land jafnt og þétt. Þau ferðalög verða nú ekki fleiri í þessari tilvist og er þar skarð fyrir skildi hjá vini mín- um Sigga. Með þakklæti fyrir áratuga vin- áttu kveð ég nú Bestu frænku hinsta sinni og bið henni guðs blessunar. Birgir Þór Borgþórsson. Morgunblaðið birtir minning- argreinar alla útgáfudagana. Skil | Greinarnar skal senda í gegn- um vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is – smella á reitinn Senda efni til Morg- unblaðsins – þá birtist valkosturinn Minningargreinar ásamt frekari upplýsingum. Skilafrestur | Ef birta á minning- argrein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins tiltekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birting- ardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar séu ekki lengri en 3.000 slög (stafir með bilum - mælt í Tools/Word Count). Ekki er unnt að senda lengri grein. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur, og votta þeim sem kvaddur er virðingu sína án þess að það sé gert með langri grein. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síð- una. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli, sem nánustu aðstandendur senda inn. Þar koma fram upplýs- ingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, fæddist, hvar og hve- nær hann lést, um foreldra hans, systkini, maka og börn og loks hvað- an útförin fer fram og klukkan hvað athöfnin hefst. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minning- argreinunum. Undirskrift | | Minningargreinahöf- undar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir grein- unum. Myndir | Ef mynd hefur birst í til- kynningu er hún sjálfkrafa notuð með minningargrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja mynd er ráðlegt að senda hana á mynda- móttöku: pix@mbl.is og láta umsjón- armenn minningargreina vita. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.