Morgunblaðið - 26.11.2008, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 26.11.2008, Qupperneq 44
44 MenningFÓLK MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. NÓVEMBER 2008 Miðasala S. 545 2500 www.sinfonia.is STOÐIR ERU AÐALSTYRKTARAÐILI SINFÓNÍUHLJÓMSVEITAR ÍSLANDS ■ Á morgun kl. 19:30 Myndir á sýningu Hljómsveitarstjóri: Rumon Gamba Einleikari: Sif Tulinius Joseph Haydn: Sinfónía nr. 93 Modest Músorgskíj: Myndir á sýningu Þorkell Sigurbjörnsson: Fylgjur Eitt ástsælasta hljómsveitarverk allra tíma, klassísk heiðríkja frá Haydn og einleiksverk eftir Þorkel Sigurbjörnsson. Fullkomin blanda. Munið súpufundinn: Ingibjörg Eyþórsdóttir kynnir verkin og tónskáldin yfir ilmandi súpu á tónlistarkynningu Vinafélagsins á Hótel Sögu kl. 18 á tónleikadag. Allir velkomnir. ■ Föstudagur 5. desember kl. 19:30 Víkingur og Bartók Hinn ungi píanósnillingur Víkingur Heiðar Ólafsson leikur einleik í mögnuðum píanókonsert Bartóks.  Og það væri e.t.v. ekki slæm hugmynd ef hljómsveitirnar Dr. Spock, Agent Fresco og Slugs skytust út í Hagkaup og festu kaup á þriggja lítra dunknum af Fem- inine og Heart áður en þær halda í tónleikaferð um landið. Ferðin ber yfirskriftina Skítapakk á skítatúr og má ganga að því vísu að hún verði ein sú sveittasta sem farin hefur verið um landið undanfarin ár og að líkamsilmurinn í hljóm- sveitarrútunni verði rammari en eftir langan laugardag í Gym 80. Og talandi um líkamsrækt, Dr. Spock fagnar útgáfu nýjustu plötu sveitarinnar Falcon Christ í spinn- ing-tíma í Sporthúsinu í Kópavogi í hádeginu í dag. Ef Skítapakkið ilmaði eins og Ásdís Rán Fólk Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson jbk@mbl.is SÉRSTÖK gala-sýning á leikverkinu Dansaðu við mig verður haldin í Iðnó annað kvöld, en sýningin er til styrktar UNIFEM á Íslandi. Hugmyndina að þessari sérstöku uppfærslu á höfundur verksins, Þórdís Elva Þorvaldsdóttir Bachmann. „Ég er einlæg áhugamanneskja um baráttuna gegn ofbeldi gegn konum, og hef gert ýmislegt til að leggja mitt af mörkum í þeirri baráttu. Ég hef t.d. rifið kjaft í hinum ýmsu pistlum, og á tímabili var ég pistlahöfundur á Grapevine þar sem ég lét gamminn geisa um þessi mál. Svo hef ég líka verið sjálfboðaliði í sam- tökum á borð við V-daginn,“ segir Þórdís. Sérstakt appelsínugult þema verður á sýningunni og verður boðið upp á appelsínugulan kokteil, auk þess sem gestir eru hvattir til að klæðast appelsínugulu, eða í það minnsta skreyta sig með einhverju appelsínugulu. „Ég uppgötvaði mér til mikillar gleði að ég á alveg ofsa- lega glaðlegt appelsínugult pils sem ég ætla að flagga,“ seg- ir Þórdís og hlær. Upphitun verður ekki af verri endanum því Ragnheiður Gröndal ætlar að taka nokkur lög fyrir sýningu. Kokteillinn hefst kl 19.30 og sýningin sjálf kl. 20. Miðaverð er 3.200 kr. og renna 1.000 kr. af hverjum seldum miða óskiptar til UNI- FEM. Miðasala er í Iðnó og á midi.is. Nánari upplýsingar um Dansaðu við mig má finna á leikhusandanna.blog- spot.com.  Ilmvatnsframleiðandinn Ray Saxx hefur nú sent frá sér þrjú ný ilmvötn sem kallast þeim mun- úðarfullu nöfnum Amaze, Feminine og Heart. Þetta væri svo sem ekki í frásögur færandi ef fyrirsætan Ás- dís Rán Gunnarsdóttir væri ekki andlit ilmlínunnar en Ásdís gerði samning við framleiðandann fyrr á þessu ári og myndin (ljósm. Arn- old.is) sem er meðfylgjandi var sér- staklega tekin fyrir auglýsinga- herferðina sem nú fer í hönd. Samkvæmt bloggsíðu Ásdísar er hægt að nálgast ilmvötnin í Hag- kaupum og í Vesturlandsapóteki. Fyrstir koma, fyrstir fá! Ásdís Rán andlit þriggja ilmvatna Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson jbk@mbl.is „HÚN hlakkar rosalega til að spila á Íslandi, enda hefur hún ekki spil- að hérna lengi. Þannig að þetta verður rosalega gaman,“ segir Sig- tryggur Baldursson trommuleikari um væntanlega tónleika Emilíönu Torrini í Háskólabíói hinn 13. des- ember. Sigtryggur hefur spilað með Emilíönu á tónleikum hennar víðs vegar um heiminn að undan- förnu, og var að koma til Íslands eftir langt flug frá Ástralíu þegar blaðamaður náði tali af honum. „Það var afskaplega gaman í Ástr- alíu, og allt gekk mjög vel. Það var uppselt á öllum tónleikunum, nema reyndar í Melbourne, enda vorum við á frekar stórum stað þar. En það var næstum því fullt,“ segir Sigtryggur og bætir því við að Em- ilíana sé greinilega vinsæl í Ástr- alíu. „Hún hefur víst verið vinsæl þar nokkuð lengi, það er víst ekk- ert nýtt. Síðasta plata hennar seld- ist til dæmis mjög vel þar,“ segir Sigtryggur sem spilaði síðast í Ástralíu árið 1990, þá með Syk- urmolunum. Miðasala hefst í dag Emilíana hefur verið að fylgja sinni nýjustu plötu eftir, en hún heitir Me and Armini og kom út í september. Platan hefur selst vel víða um heim, en hér á landi hafa rúmlega 5.000 eintök selst, og hef- ur platan því náð gullsölu. Emilíana hefur ekki spilað á Ís- landi í rúm tvö ár, en síðustu tón- leikar hennar á heimavelli voru á Bræðslunni á Borgarfirði eystri hinn 29. júlí árið 2006 þegar hún spilaði á tónleikum ásamt skosku hljómsveitinni Belle & Sebastian. Á næsta ári mun Emilíana halda tónleikaferð sinni áfram og ætlar hún þá meðal annars að heimsækja Bretland og Bandaríkin. Eins og fram hefur komið hafa nokkur lög Emilíönu hljómað í vin- sælum sjónvarpsþáttum að undan- förnu, og nægir þar að nefna hinn gríðarlega vinsæla Grey’s Anatomy. Þá muna eflaust margir eftir laginu „Gollum’s Song“ sem hún samdi fyrir stórmyndina The Two Towers og vakti mikla athygli, enda lokalag myndarinnar. Forsala á tónleika Emilíönu í Háskólabíói hefst kl. 10 í dag. Miðasala fer fram á midi.is og á af- greiðslustöðum mida.is. Forsölu- ..verð er 4.900 kr. og aðeins verða 750 miðar í boði. Emilíana til Íslands  Heldur tónleika í Háskólabíói hinn 13. desember  Fyrstu tónleikar hennar á Íslandi í rúm tvö ár  Me and Armini hefur selst í rúmlega 5.000 eintökum hér Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson Á heimleið Emilíana hlakkar mikið til að spila á heimavelli. „JÚ, JÚ. Þetta er líkt, en við hjá Senu drógum reyndar aðeins úr þessu þegar þetta kom frá hönnunarstofunni því við sáum skyldleikann um leið,“ segir Eiður Arnars- son, útgáfustjóri Senu, spurður út í kunnuglegt merki á umslagi nýrrar plötu Ragga Bjarna Lögin sem mega ekki gleymast en merkinu svipar óneitanlega til merkis þýska útgáfufyrirtækisins Deutsche Grammophone sem hefur um áratuga skeið sérhæft sig í útgáfu á vandaðri og oftar en ekki klassískri tónlist. „Við erum að vísu ekki fyrstir til að vitna í þetta þekkta merki og þetta hefur reyndar verið gert oft áð- ur,“ bætir Eiður við og segir að vissulega hafi það verið hugmyndin að vísa til þess að Raggi Bjarna væri orðinn klassískur í huga margra Íslendinga. „Þarna eru ákveðin sjónræn gildi klassíkurinnar tekin og yfirfærð á dægurlagasöngvarann sem okkur finnst vel við hæfi. Svo á Raggi náttúrlega ekkert annað skilið en að vera gefinn út hjá Deutsche Grammophone.“ Litlar líkur eru á að umboðsaðili þýsku plötuútgáf- unnar hér á landi muni fetta fingur út í umslag plötunnar því sá aðili er Sena en það mætti spyrja sig hvort ekki sé búið að útiloka útgáfu plötunnar í Þýskalandi. Klassískur Raggi Bjarna Kunnuglegt merki prýðir umslag nýjustu plötu söngvarans Klassískur Merkið í hægra horninu svipar mjög til þekkts merkis Deutsche Grammophone. Emilíana hefur verið á miklu tónleikaferðalagi að undan- förnu til þess að fylgja eftir nýj- ustu plötu sinni, Me and Armini. Á meðal landa sem hún hefur heimsótt að undanförnu má nefna Bretland, Holland, Belgíu, Frakkland, Þýskaland og nú síð- ast Ástralíu. Tónleikaferðinni verður svo haldið áfram í mars þegar hún heldur níu tónleika víðs vegar um Bretlandseyjar, og heldur svo til Bandaríkjanna þar sem hún mun m.a. spila á tónlistarhátíðum. Á ferð og flugi www.midi.is www.emilianatorrini.com Þórdís Elva Verður í appelsínugulu pilsi annað kvöld. Allir í appelsínugulu til styrktar UNIFEM

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.