Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.03.1911, Qupperneq 1

Tímarit  kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.03.1911, Qupperneq 1
Enn um vöruvöndun. Ull og ullarverkun. Um langan aldur hefir óunnin ull vérið ein af aðal- útflutningsvörum sveitabænda. Svo er að sjá á fornsög- um vorum, að fyr á öldum hafi ullin nær því eingöngu verið unnin f landinu sjálfu, til fatnaðar handa lands- mönnum, og til viðskipta við útlönd. Smám saman fór það vaxandi sem flutt var út af óunninni ull, eptir því sem heimaiðnaðurinn þvarr, og nú er'svo komið að megnið af þeirri ull, sem fellst til í landinu, fer óunnið til útlanda. Er þá eigi annað fyrir ullinni haft en hirða hana af fjenu, þvo hana og laga svolítið til, áður en hún er flutt í kaupstaðinn. Árið 1882 var öll ull, sem fluttist frá íslandi 1,733,000 pd., en árið 1909 var hún 1,962,600 pd. Af þessu er auðsætt að útflutningur ullar fer vaxandi og að hjer er ekki um smámuni að ræða. Eðlisgóð og velverkuð ull er einhver hin fallegasta efnisvara og þægilegasta í allri meðferð. Og um nota- gildi_ hennar og eptirspurn þarf eigi að efast, meðan mannfólkið þarfnast fatnaðar til skjóls og fegurðaráhrifa. Að vísu keppa ýmsar efnisvörur við ullina á markaðn- 11

x

Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga
https://timarit.is/publication/329

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.