Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.03.1911, Page 5
149
verkun og flokkun á ull, og því næst til að ferðast um
landið og kynna bændum meðferð á ull til útflutnings.
Stjórnarráðið rjeði Sigurgeir Einarsson til fararinnar.
Hefir hann samið fróðlega skýrslu um ferð sína, sem
ýms dagblöð vor hafa tekið upp. Þykir vel við eiga að
birta skýrsluna einnig í þessu tímariti, svo hún geymist
þar þeim, er hennar vilja leita. Efni skýrslunnar er líka
svo nátengt verkefni þessa rits, að hún á þar fyllilega
he'ima. Verður þá jafnframt nokkuð minnst á tillögur
höfundarins og að endingu komið fram með nokkrar
reglur um ullarverkun, sem hafa gefizt vel, þar sem þeim
hefir verið fylgt.
SKÝRSLA
til stjórnarráðs íslands frá Sigurgeir Einarssyni.
Hjeðan frá Reykjavík fór eg beina leið til Hull. Að
loknu starfi þar fór eg til London; því næst fór eg til
Bradford, og gerði þar ullarhúsið Messrs. Tattersfield &
Co. allt til þess, að greiða fyrir erindi mínu, eptir að eg
kynntist Tattersfield sjálfum og syni hans. Þeir Tatters-
field & Co. hafa skrifstofu bæði í Bradford og Phila-
delphiu, og hafa í 15 ár keypt mikið af íslenzkri ull.
í borgum þessum er, eins og kunnugt er, mikill ullar-
iðnaður og stórir ullarsalar.
Fjekk eg þar ýmsar upplýsingar um ull og meðferð
hennar, en ábótavant var þeim svo, að eg gat ekki við
þær unað og byggt skýrslu mína á þeim.
Eg taldi því óhjákvæmilegt að fara til Ameríku, til
þess að fá frekari og nákvæmari upplýsingar, enda af
ýmsum orsökum ekki hægt að byggja á enskum upp-
lýsingum. Fór eg því til Liverpool og tók mjer far það-
an með »Mauritania« til Ameríku.
í Bandaríkjunum fór eg um borgirnar New-York,
Boston, Philadelphia og Bristol.
í borgum þessum er mestur og stærstur ullariðnaður