Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.03.1911, Side 8

Tímarit  kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.03.1911, Side 8
152 orsök þess, að sumir hafa dregið af nafninu, að hún væri notuð sem fyr getur. En það er misskilningur. Annars er ull vor talin jöfn »Lincoln«-ull að gæðum. Óhrein ull. F*ví hefir verið hreift hjer, hvort ekki væri heppilegt að hætta ullarþvotti, og senda hjeðan alla ull óþvegna. Eg rannsakaði þetta efni svo vel sem eg hafði föng á, og svöruðu allir, er eg spurði þar um, bæði ullar- salar og ulliðnrekendur því á einn veg, að sjálfsagt væri að þvo hana sem bezt. Þær ástæður, sem þéir töldu fram með þvottinum, voru: 1. Að ullin skemmdist ekki. í ullinni væri mikið af sauðfitu og sandi, er gæti eyðilagt ullina meira eða minna, ef hún væri geymd lengi og ekki þvegin, og gæti það gert ullina ónotandi og óseljandi. 2. Að tollur af ullinni yrði minni, því þá þyrfti ekki að greiða toll af þeim óhreinindum, er burtu hefðu ver- ið þvegin. Einkum lögðu Ameríkumenn áherzlu á þetta atriði, enda er tollurinn þar mjög hár. 3. Að ullin seldist ver, ef hún væri óþvegin, bæði af því, er fyr nefndan toll snerti, og líka vegna þess, að ullarsalarnir yrðu, er þeir keyptu ullina, að áætla hversu mikið af óhreinindum væri í henni, og tækju þá eðlilega sem hæst óhreinindahlutföll, svo þeir töpuðu ekki. Petta virðist mér engum efa undirorpið, einkum og sjerstaklega, ef takast má að þvo ullina vel, og vil eg því mæla móti því, að nokkur ull sje send utan óþvegin, hvort sem það er haustull eða vorull. Haustull. Hún er mest öll flutt út óþvegin. Allir lögðu þeir á- herzlu á það, Ameríkumennirnir, er jeg þar um spurði, að hún yrði þvegin, því þeir töldu haustullina góða, og hún væri að mun fíngerðari en vorullin. »

x

Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga
https://timarit.is/publication/329

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.