Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.03.1911, Qupperneq 9

Tímarit  kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.03.1911, Qupperneq 9
153 í íslénzkri haustull eru nú 20 — 25 % af óhreinindum, en það er nokkru meir en í sunnlenzkri vorull. Að öllum þeim upplýsingum athuguðum, er jeg fjekk um haustullina, tel eg heppilegast að hún sje þvegin á sama hátt og vorull, en flokkun á henni er talin óþörf. Hvernig íslenzka ullin er r>ú- Eins og öllum, er við það fást, er vitanlegt, þá þarf hver verksmiðja, er notar ull, að hreinþvó hana. Engin ull, hversu vel sem hún er verkuð, er svo vel þvegin, að minna sje en 8 % í henni af óhreinindum, enda má, vegna tolllaganna í Bandaríkjunum, ekki vera minna en það af óhreinindum í henni, er þar kemur. íslenzku ullinni er allmjög ábótavant, hvað þvottinn snertir. Bezta ull, er komið hefir frá Norðurlandi, hefir haft 12% af óhreinindum; annars hefir norðlenzk ull 12—18 % óhreinindi. / Sunnlenzk og önnur íslenzk ull er að mun verri, því að óhreinindi hennar eru frá 16 — 25 %; auk þess er mjög kvartað yfir því, hversu mikið af grasi, lyngi og sandi sje í henni; er hún yfirleitt afarilla þvegin og illa með farin, að dómi Ameríkumanna. En þetta, hversu mikill óhreindamunur er í ullinni, hefir mikil áhrif á verð hennar. Sá, er ullina kaupir, verður allt af að reyna að sjá um, að hann skaðist ekki á kaupunum, og verður því allt af að áætla, hversu mörg pund af alhreinni ull hann fær. Er kaupandi veit, t. d. að fjórði hluti allrar sunnlenzkrar ullar getur verið óhreinindi, er hætt við að hann áætli 25 og jafnvel 28 — 30 %, en hins vegar getur ullin verið miklu betri, jafn- vel nokkur hluti hennar niður í 16 %; þess vegna er það, að það er mikil verðhækkun, sem má vænta að fá- ist, er ullin er svo verkuð, að seljandinn getur sjálfur sagt, hversu mikil óhreinindi eru í ullinni, eins og t. d.

x

Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga
https://timarit.is/publication/329

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.