Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.03.1911, Page 13

Tímarit  kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.03.1911, Page 13
157 í einu; ætti þar af leiðandi að geyma hana þar í vöru- geymsluhúsi til söludags. Tillögur mínar verða því í stuttu máli þessar: 1. að komið sje upp þvottahúsum og ullin þvegin svo vel, að í henni verði helzt sem næst 10 % af ó- hreindum (að ekki sje farið nær lágmarkinu fyrst, á meðan reynsla er að fást). 2. að þvottahús þessi starfi undir opinberu eptirliti. 3. að ullin sje flokkuð í þrjá flokka, eins og tekið er fram undir flokkuninni. 4. að haustull sje öll aðskilin; 5. að ullin verði flutt hjeðan beina leið til Boston. Skýrsla þessi er að mörgu leyti íhugunarverð, og bregður nýju Ijósi yfir ýms atriði, er snerta ullarverkun landsmanna. Hún getur eflaust að miklu gagni komið, ef almenningur vill hagnýta sjer, á rjettan hátt, þær bendingar, sem í henni koma fram. Þó að önnur ferð, í tilbót, verði farin til útlanda í sama tilgangi, og þá kunni að koma fram nánari skýringar og bendingar, má telja líklegt, að meginatriði þau, sem skýrslan tekur fram, haldist að mestu óbreytt, og tillög- ur þær, sem skýrslan flytur, taki þá heldur eigi veruleg- um breytingum. það er því líklegt, að eigi sje of snemint að athuga til- lögurnar nú þegar og reyna að gera sjer Ijóst, hvernig þær koma heim við fengna reynslu og hagi almennings, og enn fremur hversu líklegar þær eru til þess að geta kom- ist til framkvæmda, áður en langir tímar líða. Um þetta vill Tímaritið fara nokkrum orðum,

x

Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga
https://timarit.is/publication/329

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.