Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.03.1911, Side 14

Tímarit  kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.03.1911, Side 14
158 Fyrsta tillagan um þvottahús og þvott ullarinnar er veigamesta tillagan, en jafnframt sú, sem reynast mun einna örðugast að koma í framkvæmd, eptir hugsun- arhætti almennings að dæma, og því, hversu gengið hefir að koma áþekkum fyrirtækjum í framkvæmd, og án undanbragða hjer á landi, enn sem komið er. Tillagan fer í þá átt sem Tímaritið hefir eindregið talið hina rjettu stefnu að takmarkinu: samræmislegri vöru- vöndun. Petta samræmi getur ekki náðst, hvað landbún- aðarvörur okkar snertir, nema framleiðendur gangi í fje- lagsskap, fylgi þar föstum reglum og hafi á þann hátt sjálfir allan útbúnað vörunnar ineð höndum, án óvið- komandi milliliða, og útiloki gersamlega alla keppinauta, sem að einhverju leyti ætla að skreyta sig með fjöðrum samlagsframleiðenda. Við höfum nokkuð svipað dæmi, þar sem meðferð okkar og flokkun á saltkjötinu er. F*ar eru menn, meir og meir, farnir að beygja sig undir skipulagið og fylgja almennum, föstum reglum, þó það sje dálítið kostnaðarsamara í bili en gamla aðferðin. Til skamms tíma var það býsna al- gengt að slátra talsverðu af fjenu heima og flytja svo kjötið á klökkum í kaupstaðinn í misjöfnum umbúðum, stundum margar mílur. Þessi heimaverkun þótti svo »þægileg«, en um hitt var lítið hugsað, hvaða áhrif þetta hefði á verðmæti vörunnar. Heimaverkaða smjörið er að sæta sömu örlögum og meðferð, sem saltkjötið. F’að þykir borga sig að hætta við hina »ódýru«? heimaverkun. Að sama brunni virðist hljóta að bera, fyr eða síðar, með verkun ullarinnar, og það þess heldur, sem þar er enn meiri vandkvæðum bundið, að heimaverkunin geti orðið samræmisleg, heldur en þó á sjer stað með kjöt og smjör, eins og allir kunnugir hljóta að skilja, án fr$k- ari skýringa. Að vísu má nokkuð bæta ullarverkunina, víða hvar, á heimilunum sjálfum, frá því sem nú er. En þar »slær sinn

x

Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga
https://timarit.is/publication/329

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.