Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.03.1911, Page 21
165
úr V3 af gamalli keitu og 2ls vatns. Bezt er keitan til þvotta,
þegar hún er orðin þriggja til sex mánaða gömul, og
betra það sem er undir í ílátinu en ofan á. Bezt er hreint
tjarnarvatn í löginn, ef hægt er að ná í það. Löginn skal
hita allt að 50 stigum Réaumur, eða svo, að illþolandi
sje að halda hendinni niðri í honum*. Hitann skal hafa
sem jafnastan í pottinum, og aldrei meiri en hjer segir.
Sje ullin óhrein mjög og sauðfitumikil, þarf hún að vera
10 — 15 mínútur í leginum, en sje hún þur og hrein,
nokkru skemur. Varast skal að hafa þröngt á ullinni í
leginum.
4. gr.
Mjög vandlega verður að skola ullina úr köldu vatni,
eptir að hún er tekin úr pottinum. Skal það gert í renn-
andi vatni, helzt lækjarbunu, svo skólpið renni burt sem
fyrst. Áríðandi er að greiða ullina vandlega í kalda þvott-
inum, og tína úr henni öll óhreinindi.
5. gr.
Velja skal góðan þerrivöll undir ullina, helzt vel hreins-
aðann túnbala, sem farinn er dálítið að spretta. Ekki er
ullin fullþur meðan kul finnst, þegar hlýrri hendi er
stungið inn í ullarbynginn.
6. gr.
[Þessi grein er um flokkunina, og er hún lík því sem
fyr segir, bls. 162.]
7. gr.
Um. leið og ullin er aðgreind í flokka, skal enn skoða
hana vandlega, tína úr henni fætlinga, sem eptir hafa
orðið; lagða, sem ekki hafa þvegist vel, flóka, sem eigi
verða greiddir, og öll óhreinindi, sem í hafa slæðst. Pá
skal og greiða hana úr þvælum þeim, sem hún lendir
* Þetta er rtokkuð hærra hitastig en S. E. telur bezt við eiga. Sbr.
skýrslu hans. S. /.