Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.03.1911, Síða 29

Tímarit  kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.03.1911, Síða 29
173 Skattanefndin hefir komizt að þeirri niðurstöðu, að við værum fátækasta þjóð álfunnar: ættum minnstan höfuðstól, miðað við fólksfjölda. Og um skuldirnar hefir víða verið getið. þaðersýnt: að við erum stórskuldugir fátæklingar. Stundum er dæmt um hag þjóðanna eptir eyðslu þeirra. Væri sá mælikvarði hafður við okkur, myndum við taldir mjög vel megandi. Peir landar okkar, sem lifað hafa meðal alþýðu í öðrum löndum, votta það, einum rómi, að daglegt viðurværi manna þar sje lakara og nautnin minni, en hjer gerist. Og þó hafa þessir menn naumast kynnzt fátækustu alþýðunni: verkálýðnum. Danir eru taldir meðal auðugustu þjóða. Pó las eg nýlega danska bók, þar sem kvartað er yfir því, að ekki sje hægt að kenna börnunum þar í sveitunum: Pau taki ekki eptir kennslunni fyrir sulti. Margar enn svartari lýs- ingar mun þó vera hægt að fá af skuggahverfum stór- borganna. Hjer á landi, að minnsta kosti í sveitunum, hygg eg þá fjölskyldu sjaldfundna, sem eyði ekki miklu um þarfir fram, * * * Eyðslusemin hjer á landi, borin saman við fátæktina og skuldirnar, sannar okkur það, að alþýða okkar lifir betra lífi en alþýða annara landa; landið sjálft veitir henni allt eins vel, til fæðis og klæða. En framleiðslan gengur líka öll í eyðsluna. Við erum svo fátœkir af því við kunnum ekki að spara okkur saman í höfuðstól. Við er- um svo skuldugir af því við eyðum meiru en framleitt er, — og af því við þurfum að fá höfuðstól að láni, til allflestra fyrirtækja. F*að er þessi voðinn: eyðslan fram yfir framleiðsluna, sem þarf að girða fyrir og »stemma að ósi«. F*að hygg eg öllum hljóti að skiljast. En þar kemur margt til greina, þegar úr skal bæta,

x

Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga
https://timarit.is/publication/329

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.