Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.03.1911, Side 32

Tímarit  kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.03.1911, Side 32
176 Fjöldi þessa ómagalýðs stafar, mestmegnis, af tveim orsökum: almennri óbeit íslendinga á erviðri vinnu, nú á dögum, og svo því, hve auðvellt var að fá sjer lán, fyrir og eptir aldamótin síðustu. Almenningur veit það ofur vel, að til eru tvær leiðir, til þess að afla sjer lífsnauðsynja. Fyrri leiðin: að vinna þær sjálfur úr skauti náttúrunnar, með orfinu eða árinni, finnst mörgum býsna torsókt og ervið. Hún gefur opt svo smátt í aðra hönd: Ijelegan fatnað, fábreytt viður- væri, Ijeleg húsakynni og litla virðingu í lífinu; bogið bak og djúpar andlitshrukkur í ellinni. það er allt annað að fara hina leiðina: að láta aðra afla fyrir sig. Þeir sem hana fara, eru feitir og sællegir. Peir hafa hvítt lín um hálsinn, hreinar og mjúkar hendur; húsin þeirra eru hallir, móts við kofana hinna; þeir erviða ekkert sjálfir, en hafa samt nóg af öllu, sem hinir verða að framleiða, — seiða það til sín með tómum tölustöfum og villuljósi. Og eðlilega finnst mörgum manninum sjálfsagt að fara seinni leiðina. Hann byrjar einhverskonar verzlun, fjárbrask eða hrossabrask upp til sveita, eða þá vöru- verzlun niðri á mölinni. Varla getur svo efnalítinn spjátr- ung, að eigi þykist hann fær um að stofna ofurlitla búðarkytru og fá »slatta« af vörum til að byrja með. Leiðin er um bankana. Sjaldan vantar ótortrygga ábyrgð- armenn. Verzlunin gengur bærilega á yfirborðinu, fyrsta sprettinn. Nýi kaupmaðurinn á nokkra kunningja og venzlamenn, sem vilja verzla við hann, og svo vilja margir »prófa nýju búðina«. Til stuðnings verzluninni á hann einnig part í »sjávarútvegi«. En hann þarf auðvitað á pening- um að halda, maðurinn. Og lánstraustið er peningar. Það er svo sem óhætt að ganga í ábyrgð fyrir hann; hjálpa honum til að hafa sig upp. Skárri er það nú bölvuð meinsemin að neita því, að lána nafnið sitt, dá- Iítinn tíma. Efnuðu bændurnir ofan úr sveitinni, sem við hann verzla, og hásetarnir á »útveginum« hans eru ekki

x

Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga
https://timarit.is/publication/329

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.