Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.03.1911, Qupperneq 43

Tímarit  kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.03.1911, Qupperneq 43
187 höfum við lítið með ullina ykkar að gera. Síld og annan fisk kaupum við austan frá hafi, en við teljum víst að Hudsonsflói sje auðugur af allskonar fiski, og þarf því ekki að sækja slíkt til íslands. Þessar vörur eigið þið því að selja öðrum, og kaupa svo það sem þið fáið með beztum kjörum frá okkur, fyrir peninga. En ennþá er ótalin sú vara, sem jeg álít þið getið selt okkur með mestum ágóða. Það eru ullardúkar og tilbúin föt. Fyrir þá vöru er svo mikill markaður hjá okkur, að þó öll ís- lenzka ullin væri unnin í dúka, og föt saumuð úr þeim, þá gengi það allt út hjá okkur og meira til. Og það, sem þið getið ekki selt okkur, yrðum við að kaupa frá löndum, þar sem kaupgjald er miklu hærra en á íslandi, svo þið hefðuð ekki að óttast samkeppnina. Aðalatriðið er, að dúkarnir og fötin sje vandað. Hitt hirðum við minna um, þó vörurnar sjeu nokkuð dýrar. Og til þess að tilbúin föt yrðu við hæfi Kanadamanna, þyrftuð þið annaðhvort að senda skraddara vestur, til að kynnast fatasniði okkar, eða fá þá að vestan, til að kenna ykkur. Og helzt ætti að vinna allt undir umsjón manna, sem væru vel að sjer í þeirri grein, að öðrum kosti væri allt yfirlitið af þeim.« Jeg þakkaði Vestmanninum fyrir lesturinn og bað hann að vekja máls á umræðuefni okkar þar vestra. Hann bað mig að gera slíkt hið sama hjer heima. Eptir að samtal það, sem frá er skýrt hjer að framan, átti sjer stað, las eg í blaði frá Akureyri frásögn um síldarbræðslu Norðmanna á Siglufirði. þar var sagt að síldarlýsið væri aðallega notað til smurninga á vjelar, en það sem ekki bræðist (úrgangurinn), væri haft til áburð- ar og myndi fara til Ameríku. Kom mjer þá til hugar, hvort þarna væri eigi vara, sem hentugt væri að senda á skipum okkar til Hudsonsflóa, og þaðan með járn- braut til landa okkar, sem stunda hveitirækt vestur í Manitoba, og fá aptur hveiti og aðrar kornvörur. Einnig fannst mjer að vel færi á því, að sjómenn

x

Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga
https://timarit.is/publication/329

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.