Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.03.1911, Side 48

Tímarit  kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.03.1911, Side 48
192 Yfirleitt mun því mega segja að kaupfjelagsskapurinn hafi gengið allvel þ. á. Aðsóknin að sláturhúsunum norðanlands fer, á flestum stöðum, allt af vaxandi, og fjelögin halda sömu stefnu og áður með samvinnu sín á meðal. En nú er þar komið nýtt atriði til greina, þar sem ýmsir kaupmenn eru nú farnir að stofna sláturhús. Þetta er að vísu gott, að því leyti til, að þá má þó vænta dá- lítið vandaðri kjötverkunar en áður gerðist. En í sam- keppnisskyni sýnist þetta samt vera gert, og til þess að hindra frekari framgang þeirrar einu rjettu og hollu stefnu ímálinu: að framleiðendur taki alveg umráð og meðferð þessarar verzlunarvöru í eigin hendur. Tímaritið hefir áður bent á, að ekki væri vel álitlegt fyrir kaupmenn að stofna sláturhús: viðskiptafestan við verzlanir þeirra væri eigi svo viss; þeir ættu óhægt með að ná samræmi sín á meðal í verkun og flokkun kjöts- ins, en það hamlaði aptur verðhækkun vörunnar. í stuttu máli: þeir gætu eiginlega ekki keppt við samlagshús bænda, þar seni hagnaðarvon hvers einstaklings heimtar alúð og vandvirkni, frá fyrsta stigi til hins síðasta. Tíma- ritið vonast einnig eptir því, í einlægni að segja, að svona rætist úr; alls ekki vegna þess, að því sje illa við kaupmenn eða vilji gera þeim skaða. En kaupmenn eru að reyna að gera eðlilegum og nauðsynlegum samtökum þjóðarinnar skaða með þessu aukabrölti sínu. Og, ímynd- aður hagnaður einstaklinganna á að rýma fyrir þjóðar- nauðsyn. Nú er þess þá enn meiri þörf en áður, að bændur haldi fast við sinn fjelagsskap, hver flokkur á sínu svæði, og efli hann sem bezt. Eins er því varið með næsta at- riðið, að þrátt fyrir ýmislega vöntun og misfellur, verða sláturfjelögin, enn betur en áður, að treysta samband sitt og samvinnu, og kosta hins fremsta kapps um það tvennt: að vanda allt sem bezt og sjá svo til, að engin aðskotadýr geti smeygt sínum varningi inn undir hið

x

Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga
https://timarit.is/publication/329

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.