Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.03.1911, Blaðsíða 52

Tímarit  kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.03.1911, Blaðsíða 52
196 á að taka til starfa, og eptir það að til starfs er tekið; þegar einhverju á að skila á tilteknum tíma, o. s. frv. Pú kemur á tiltekinn stað á fastsettum tíma, og sá, sem hafði stefnt þjer þangað, eða lofað að koma, fyrir- finnst ékki; verður þú þá að bíða hans góða stund og má ske fara erindisleysu á endanum. Petta er harla al- gengt, um háa sem lága, og það enda á þeim stöðum, þar sem ætla mætti að hin æðri þekking »uppljórnaði« vegu manna. Sjaldnar mun forföllum um að kenna, held- ur er þetta miklu optar skortur á því, að hafa tamið sjer stundvísi, sem þá leiðir til óorðheldni. En svo langt er þó ekki komið, að óorðheldnin sje talin kostur. Verkamaðurinn vill hafa ákveðinn vinnutíma og setur upp tímakaup. Um þetta er gerður gildur samningur, sem bótum varðar ef rofinn er. Samt er það ekki talið saknæmt að hafa það, svo að segja, fyrir reglu, að taka nokkrum mínútum of seint til vinnunnar, þegar byrja skal, eða hve nær sem hlje verður veitt, og hvíla þar að auki hönd, fyrir óþarfa mas eða ógætni. Allir þeir, sem lengi hafa fengizt við verkstjórn, munu kannast við, að þetta á sjer optlega stað. Mínúturnar verða að stundum, stund- irnar að dögum, sem tapast frá vinnunni, þegar samn- ingurinn nær til langs tíma. Þetta stafar enn af óstund- vísi, sem leiðir til vanskila og samningsrofa, þó þeir má ske athugi það ekki, sem hlut eiga að máli, nje vilji við það kannast. Pá er það og töluvert algengt að óstundvísin kemur fram, þegar rækja skal skrifleg störf á rjettum tima, bæði á æðri og lægri stöðum: að gefa reikning, kvittanir, til- kynningar, skýrslur, vottorð o. s. frv. Ekki er vöntun á þessu annað en skyldurof, opt og tíðum, þó það orð hljómi ekki vel í eyrum. A öllum sviðum viðskiptalífsins kemur óstundvísin þannig fram sem þjóðargalli, meira og minna. Að leiða rök að því nána sambandi, sem er á milli stundvísi og skilsemi ætti ekki að þurfa. Hver sem hugs-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga
https://timarit.is/publication/329

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.