Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.03.1911, Page 53
197
ar alvarlega um það, mun finna rökin sjálfur. Mörg skil,
og það þau, sem optlega varða miklu, eru af hendi leyst með
því að vera stundvís, eins og hjer er búið að sýna fram
á. Stundvísin styrkir skilsemina ákaflega mikið, af því ó-
skilsemin er optlega ávöxtur af þeim hugsunarhætti og
venjum, sem óstundvísin hefir alið og fóstrað. Stundvís-
in eflir líka beinlínis hagsæld einstaklingsins, og gerir
honum því auðveldara að reynast skilamaður.
Skilsemi íslendinga er, því miður, ekki í góðu áliti
meðal útlendinga, og kennum við þess tilfinnanlega á
margan hátt. Við þurfum svo margt til útlendinga að
sækja, að við megum ekki án þess vera, að hafa traust
þeirra. það er ekki gott að búast við því, að verða að kaupa
allt dýrara, þegar ekki er borgað út í hönd, af því selj-
endur óttast það, að við sjeum vanskilamenn. Að sama
brunni ber með innanlandsviðskiptin. Hið almenna álit
um óskilsemina stendur mörgu góðu og þarflegu fyrir-
tæki fyrir þrifum, og bitnar eðlilega opt á saklausum
sem sekum. í samvinnufjelögum og í verzlun Iands-
manna yfirleitt er óskilsemin það átumein, sem lækna
þarf ef vel á að farnast.
Nú munu menn spyrja eitthvað á þessa leið: »Hvers-
vegna á að beina þessum atriðum að samvinnufjelögun-
um sjerstaklega, og hvernig geta þau ráðið hjer bót á
má!um?«
Svarið er ekki vandfundið.
Fjelögin eru umbótafjelög, sem vilja hrinda efnahag
manna og siðgæði í endurbætt horf. Til þeirra verður
því, fyrst og fremst, að beina þessum atriðum. Pau verða
að leggja aukna stund á það að bæta hugsunarháttirm,
ef þau eiga að gera sjer góðar vonir um það, að geta
bætt efnahaginn. Stundvísi og skilsemi þarf því að efla,
svo traust og virðing fylgi fjelagsskapnum út á við og
innbyrðis. Aðstaða fjelaganna í þessa átt er betri en
annara, sem minna vinna vilja að sama marki, einir sjer.
Pau setja sjer reglur sem ómissandi er að fylgja, og