Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.03.1911, Page 56

Tímarit  kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.03.1911, Page 56
200 Astæður þess tel eg góðar og tryggar. Eptir því, sem eg hefi bezt getað athugað, er Iögð áherzla á það í fje- laginu, í öllum greinum, að festa fjelagsskapinn með því, að leggja fram ríkulegan skerf, árlega, til þeirra sjóða, sem eiga að tryggja stnrfsemina og mæta áföllum, sem fyrir kunna að koma. Vil eg eindregið mæla með því, að slíku sje haldið áfram, því styrkur fjelagsins hlýtur að vaxa við það, að eiga sem mestan höfuðstól sjálft, til fullra umráða.<i: í þetta skipti er með ýtarlegra móti skýrt frá hag og starfsemi þessa fjelags, í því skyni, að íslenzku kaupfje- lögin heimfæri til sín það, sem þau geta, af reynslu ann- ara og nútíðarstefnu. F*ó ólíku sje saman að jafna með afl og viðskiptaveltu, þar sem okkar smáu kaupfjelög eru annars vegar, en útlend risafjelög hins vegar, þá eru al- staðar hin sömu meginatriði, sem hafa þarf hugföst, ef vel á að farnast, og þá ekki sízt þau: að vanda sem bezt til allra reikningsskila, og verja árlega talsverðu af ágóðanum til að auka stofnfjeð og tryggingarsjóðina. Þetta er reynslan búin að kenna útlendu fjelögunum, og hún hefir sýnt okkur hið sama. Sem betur fer erum 'við nú, hin síðari árin, að verða hlýðnari lærisveinar reynslunnar en áður, eins og Timaritið, bæði nú og áð- ur, hefir sýnt fram á. 2. Frá Englandi. Það er algengt í útlöndum, að sambandskaupfjelögin senda menn á aðalfundi erlendra fjelaga. Sendimaður enska fjelagsins á aðalfundi danska Sambandsins talaði þar nokkur orð, og fjellu þau á þessa leið: Samvinnufjelögin hafa þegar afkastað miklu starfi, þar sem þau hafa sannað það, að alþýða manna getur, með góðum árangri, framleitt lífsnauðsynjar og úthlutað þeim (verzlað með þær). Hin stóru samlagsfjelög hafa stýrt verzluninni heiðarlega á allan hátt, og auk þess haft

x

Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga
https://timarit.is/publication/329

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.